19. sep. 2025Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna synjunar ríkisskattstjóra á beiðni um niðurfellingu á álögðum dráttarvöxtum
Þann 25. október 2024 barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu (hér á eftir ,,ráðuneytið“) stjórnsýslukæra […] fyrir hönd […] (hér á eftir ,,kærandi“). Kærð er ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 25. júlí 2024, um synjun á beiðni kæranda um niðurfellingu á álögðum dráttarvöxtum sem lagðir voru á kæranda í kjölfar leiðréttinga á virðisaukaskattsskilum vegna virðisaukaskattsnúmers kæranda […] fyrir uppgjörstímabilin nóvember-desember 2022 og uppgjörstímabilin janúar-febrúar, mars-apríl, júlí-ágúst og september-október 2023.