06. apr. 2019Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Loftslagsmál, Orka, Samgöngusáttmálinn, Atvinnuvegaráðuneytið
Markviss uppbygging innviða vegna orkuskipta í samgöngum
Hraðhleðslustöðvum við þjóðveginn verður fjölgað verulega og blásið verður til átaks með ferðaþjónustunni til að stuðla að orkuskiptum hjá bílaleigum, sem hafa víðtæk áhrif á samsetningu bílaflota landsmanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi þriggja ráðherra ríkisstjórnarinnar þar sem kynnt voru næstu skref varðandi orkuskipti í samgöngum á Íslandi.