Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Grindavík
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1–50 af 55
    Raða eftir:
    02. nóv. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Breytt aðferðafræði við mat á ávinningi af gerð varnargarða á Reykjanesi

    Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur boðist til að annast öflun sérfræðiálits um gagnsemi varnargarða við Grindavík og Svartsengi. Lagt verður mat á hvaða hagsmunum hafi verið bjargað með gerð þeirra og hvernig slík skipulögð forvörn geti dregið úr tjónskostnaði í hamförum af sama toga. ​ NTÍ mun leita til hérlendra sérfræðinga auk jarðvísindasérfræðinga af vettvangi alþjóðlegra endurtrygginga með sérfræðiþekkingu á áhættuútreikningum. Talið er að slík vinna verði gagnleg og muni skila umtalsverðum ávinningi ef vel tekst til.

    04. okt. 2026Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Forsendur ekki fyrir hendi til að hefja skólahald í Grindavík að svo stöddu

    Ríkisstjórnin fjallaði í morgun um stöðu mála í Grindavík í ljósi áframhaldandi náttúruvár og óvissu um þróun jarðhræringa. Það er mat ríkisstjórnarinnar að ekki séu að svo stöddu forsendur til að hefja að nýju skólahald í Grindavík eða að stuðla að aukinni búsetu barna í bænum. Engin gögn liggja fyrir sem styðja að skólahald geti hafist í Grindavík við núverandi aðstæður. Mat ríkisstjórnarinnar byggir á rammaáætlun Grindavíkurnefndar um endurreisn Grindavíkur og skýrslu Alþjóðabankans um sama efni, áhættumati Grindavíkurnefndar og hættumati Veðurstofunnar.

    15. júl. 2026Forsætisráðuneytið, Grindavík

    Nýr samráðshópur stjórnvalda og Grindavíkurbæjar

    Frá júní 2025 hafa fulltrúar forsætisráðuneytisins, Grindavíkurnefndar og bæjarstjórnar Grindavíkur átt í reglubundnu samtali um framtíðaruppbyggingu Grindavíkur. Nú er unnið að formlegri skipun samráðshóps stjórnvalda og Grindavíkurbæjar.

    08. jún. 2026Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Áhættumat fyrir þéttbýlið í Grindavík endurskoðað

    Undanfarna mánuði hafa stjórnvöld unnið að endurskoðun á fyrirkomulagi við gerð áhættumats fyrir þéttbýlið í Grindavík. Markmiðið vinnunnar er að styðja við endurreisn Grindavíkur með öryggi íbúa að leiðarljósi. Forsætisráðherra kynnti endurskoðun áhættumats fyrir ríkisstjórn í síðasta mánuði.

    21. maí 2026Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Skarphéðinn Berg Steinarsson ráðinn verkefnisstjóri í málum Grindavíkur

    Skarphéðinn Berg Steinarsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málefnum Grindavíkur. Hann mun stýra samhæfingu af hálfu ríkisins varðandi Reykjaneselda og uppbyggingu Grindavíkurbæjar. Alls bárust 17 umsóknir um starfið sem er tímabundið til tveggja ára.

    23. des. 2025Dómsmálaráðuneytið, Almannavarnir, Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Tímabundnar heimildir til uppbyggingar varnargarða renna sitt skeið – undirbúningur að almennri löggjöf hafinn

    Heimildir samkvæmt lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga til að taka ákvarðanir um uppbyggingu varnargarða og aðrar sambærilegar framkvæmdir í þágu almannavarna renna sitt skeið í lok árs 2025.

    04. nóv. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Ný stuðningsúrræði fyrir Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar 18. mars sl. var samþykkt tillaga forsætisráðherra um að styðja sérstaklega við tekju- og eignaminni heimili Grindvíkinga tímabundið til áramóta á meðan leitað yrði varanlegri lausna á húsnæðisvanda þeirra. Þá var jafnframt samþykkt tillaga um að styðja við atvinnulíf í bænum gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja með sérstöku framlagi ríkisins. Útfærsla viðbótarhúsnæðisstuðnings vegna leiguhúsnæðis liggur nú fyrir og vinna við úrræði fyrir atvinnulíf komin vel á veg.

    09. okt. 2025Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Grindavík, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Opið fyrir umsóknir í Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík

    Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík

    10. ágú. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Kallað eftir sjónarmiðum Grindvíkinga um endurreisn og framtíðarsýn bæjarins

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á opnum fundi í Gjánni í Grindavík og tók þátt í umræðum með Grindvíkingum um framtíð bæjarins. Á fundinum kom fram að stjórnvöld hafi sett af stað opið samráðsferli um næstu skref í endurreisn Grindavíkur.

    10. ágú. 2025Dómsmálaráðuneytið, Grindavík, Almannaöryggi

    Ráðherra samþykkir hækkun varnargarða við Grindavík

    Dómsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ríkislögreglustjóra um viðbætur við varnargarða norðan Grindavíkur. Með ákvörðuninni verður varnargarðurinn hækkaður um tvo til þrjá metra á um 450 metra kafla til að tryggja virkni hans og auka vernd bæjarins gagnvart mögulegu hraunflæði.

    11. júl. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Fjármála og efnahagsráðuneytið óskar eftir mati á aðgerðum á Reykjanesi og þeim verðmætum sem þær björguðu

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur farið þess á leit við Héraðsdóm Reykjaness að dómkvaddir verði matsmenn til að meta kostnað ríkissjóðs af þeim aðgerðum sem ráðist var í til að draga úr eða koma í veg fyrir tjón í eldgosahrinu á Reykjanesskaga sem hófst í desember 2023. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að höfða mál gegn þeim aðilum sem matsbeiðnin beinist að.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar í dag var tekin ákvörðun um framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum. Gerðar verða breytingar sem miða að því að færa stuðning úr formi sértækra neyðarúrræða og í almennari farveg. Einstaklingar og fjölskyldur í sérstaklega viðkvæmri stöðu munu áfram njóta nauðsynlegs stuðnings.

    04. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Samið við Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankann um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavík

    Íslenska ríkið hefur gengið frá samningi við Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankann um að annast stuðningslán til rekstraraðila í Grindavík. Samningurinn er í samræmi við lög um stuðningslán sem Alþingi samþykkti fyrir áramót.

    24. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Unnið að gerð framtíðarsviðsmynda um Grindavík

    Vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga hafa stjórnvöld á liðnum misserum gripið til umfangsmikilla ráðstafana til þess að tryggja öryggi almennings og verja og tryggja virkni mikilvægra innviða.

    09. feb. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Samtal um framtíðaruppbyggingu Grindavíkur

    Forsætisráðuneytið, Grindavíkurbær og Grindavíkurnefnd eiga nú í samtali um framtíðaruppbyggingu Grindavíkur.

    04. jan. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Skipað að nýju í Grindavíkurnefnd

    Skipað hefur verið að nýju í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór Sigurðsson sendiherra gegnir áfram formennsku í nefndinni en Jóhanna Lilja Birgisdóttir, forstöðumaður fyrir þjónustuteymi Grindvíkinga, og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi í atvinnuteymi Grindavíkurbæjar, koma ný inn í nefndina.

    19. nóv. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Sértækur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur um þrjá mánuði

    Alþingi samþykkti í gær lagafrumvarp sem velferðarnefnd mælti fyrir um að framlengja því úrræði að veita Grindvíkingum sértækan húsnæðisstuðning.

    02. sep. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Frumvarp um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík

    Ríkissjóður mun bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarði króna.

    16. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðherra heimsækir Grindavík

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, heimsótti Grindavík síðastliðinn miðvikudag. Í heimsókn sinni naut hann leiðsagnar Fannars Jónassonar bæjarstjóra og Guðnýjar Sverrisdóttur og Gunnars Einarssonar sem bæði eiga sæti í framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur sem í daglegu tali nefnist Grindavíkurnefndin.

    08. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Samantekt um fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík

    Fjármála og efnahagsráðuneytið safnar mánaðarlegum upplýsingum um fjárhagsleg afdrif fólks sem hafði búsetu eða starf í Grindavík í október 2023 og veltu fyrirtækja í Grindavík.

    03. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Opnað fyrir sölu á íbúðarhúsnæði í Grindavík

    Íbúar í Grindavík sem óska eftir því að selja ríkissjóði íbúðarhúsnæði sitt í gegnum Fasteignafélagið Þórkötlu, samkvæmt nýsamþykktum lögum Alþingis, geta nú fyllt út umsókn á Ísland.is.

    02. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Mælti fyrir nýju úrræði til að mæta vanda rekstraraðila í Grindavík

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík.

    02. ágú. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Samkomulag milli fjármála- og efnahagsráðherra og lífeyrissjóða vegna húsnæðislána lífeyrissjóða í Grindavík

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Markmið samkomulagsins er að ríkissjóður styðji við þá fasteignaeigendur í Grindavík sem fallið hafa utan úrræða annarra lánveitenda húsnæðislána í Grindavík um niðurfellingu á vöxtum og verðbótum af lánum þeirra.

    15. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík

    Lausn í málum búseturéttarhafa í Grindavík

    Í samræmi við heimild í lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að styrkja búseturéttarhafa um 95% af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra.

    06. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík, Efnahagsmál og opinber fjármál, Úkraína, Loftslagsmál

    Aðalfundur Þróunarbanka Evrópuráðsins haldinn á Íslandi

    Í dag samþykkti Þróunarbankinn fyrstu lánsumsókn til bankans frá ríkissjóði Ísland, að fjárhæð 150 milljónir evra. Íslensk stjórnvöld sóttu um lánið sem varúðarráðstöfun vegna mögulegra útgjalda í tengslum við náttúruhamfarir í nágrenni Grindavíkur.

    14. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    80 milljarða stuðningur ríkissjóðs vegna Grindavíkur

    Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna fjölbreyttra stuðningsaðgerða við Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga árin 2023 og 2024 nemi um 80 milljörðum króna. Ráðuneytið hefur tekið saman kostnað ríkisins sem fellur til vegna ýmissa stuðningsaðgerða við Grindavík sem nýleg lög kveða á um, sem og vegna aukinna fjárveitinga til stofnana, einkum Almannavarna, vegna jarðhræringanna.

    06. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Upplýsingar um fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík

    Fjármála og efnahagsráðuneytið safnar mánaðarlegum upplýsingum um fjárhagsleg afdrif fólks sem hafði búsetu eða starf í Grindavík í október 2023 og veltu fyrirtækja í Grindavík. Upplýsingunum er safnað í þeim tilgangi að fylgjast með hvernig fólki sem orðið hefur fyrir beinum áhrifum af jarðhræringum og eldgosum við bæinn reiðir af í kjölfarið.

    22. maí 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Grindavík, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Framkvæmdanefnd skoðaði aðstæður í Grindavík

    Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ kynnti sér aðstæður í Grindavík í gær.

    17. maí 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Frekari stuðningsaðgerðir fyrir Grindavík kynntar

    Ríkisstjórnin kynnti í dag tillögur um frekari stuðning við heimili og fyrirtæki í Grindavík. Tillögurnar felast í stuðningslánum með ríkisábyrgð til grindvískra fyrirtækja, viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta.

    17. maí 2024Innviðaráðuneytið, Grindavík, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Árni Þór, Guðný og Gunnar taka sæti í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ

    Árni Þór Sigurðsson, Guðný Sverrisdóttir og Gunnar Einarsson taka sæti í sérstakri framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.

    17. maí 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Sértækur húsnæðisstuðningur við íbúa í Grindavík framlengdur til ársloka

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja til við Alþingi að framlengja til ársloka því úrræði að veita íbúum í Grindavík sértækan húsnæðisstuðning.

    15. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Þórkatla hefur undirritað 471 kaupsamning vegna íbúðarhúsnæðis í Grindavík

    Fasteignafélagið Þórkatla hefur yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík eða um 85% allra umsókna sem borist hafa. Alls hefur félagið fengið 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum, en heildarfjöldi þeirra eigna sem geta fallið undir úrræðið er um 900.

    14. maí 2024Innviðaráðuneytið, Grindavík, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Lög um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti í dag lagafrumvarp innviðaráðherra um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar.

    06. maí 2024Innviðaráðuneytið, Grindavík, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Nýr rafstrengur lagður til Grindavíkur til bráðabirgða

    Nýr rafstrengur verður lagður til Grindavíkur til bráðabirgða í því skyni að koma á rafmagni í bænum.

    26. apr. 2024Forsætisráðuneytið, Grindavík

    Gylfi Þór ráðinn í samhæfingu vegna Grindavíkur

    Forsætisráðuneytið hefur tímabundið ráðið Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur.

    21. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík

    Örn Viðar Skúlason ráðinn framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu

    Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra félagsins. Örn Viðar lauk meistaraprófi í hagverkfræði frá Tækniháskólanum í Berlín og meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.  Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri fyrirtækja og hefur undanfarin ár starfað sem fjárfestingarstjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins ásamt því að sitja í stjórnum fjölmargra sprotafyrirtækja.

    05. mar. 2024Innviðaráðuneytið, Grindavík, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Frumvarp lagt fram um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur

    Innviðaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa.

    27. feb. 2024Innviðaráðuneytið, Grindavík, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Innviðaráðherra undirritar samkomulag um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag Grindavíkurbæjar

    Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík undirrituðu fyrr í dag samkomulag um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag Grindavíkurbæjar.

    23. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Lög um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík samþykkt – upplýsingar og umsókn fyrir íbúa á Ísland.is

    Frumvarp um kaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík var samþykkt á Alþingi í gær. Upplýsingasíða fyrir Grindvíkinga er komin í loftið á Ísland.is þar sem m.a. er að finna svör við algengum spurningum. Enn er unnið að útfærslu á einhverjum atriðum en um leið og þau skýrast verða upplýsingar uppfærðar.

    23. feb. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Uppbygging húsnæðis á Reykjanesi

    Í byrjun árs skipaði Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, framkvæmdahóp með fulltrúum innviðaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að fylgja eftir tillögum fyrri starfshóps, um möguleika á hraðri uppbyggingu húsnæðis vegna afleiðinga náttúruhamfara við Grindavík, og vinna að framgangi tillagna hans og fjármögnun þeirra.

    22. jan. 2024Grindavík, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Aðgerðir til að tryggja örugga framtíð Grindvíkinga

    Ríkisstjórnin hefur í dag kynnt áform um aðgerðir sem miða að því að skapa forsendur fyrir öruggari framtíð fyrir Grindvíkinga og eyða þeirri óvissu sem hefur verið vegna fordæmalausra aðstæðna.

    21. des. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Opnað fyrir umsóknir á íbúðum fyrir Grindvíkinga

    Undanfarna daga hefur Leigufélagið Bríet staðfest kaup á íbúðum sem ætlaðar eru fyrir Grindvíkinga í takt við viljayfirlýsingu sem undirrituð var við stjórnvöld vegna hamfaranna á Reykjanesi.

    18. des. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Enn vantar húsnæði til leigu fyrir Grindvíkinga

    Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur var opnað fyrir rúmri viku en þar geta þau sem sérstaklega vilja styðja við Grindvíkinga boðið eignir sínar til útleigu. Enn vantar fjölbreyttari eignir á skrá.

    28. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík

    Alþingi samþykkti einróma frumvarp um stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavíkurbæ

    Frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavíkurbæ var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi í gær. Vinnumálastofnun annast framkvæmd laganna og vinnur nú að uppsetningu á umsóknarkerfi fyrir umsækjendur.

    24. nóv. 2023Grindavík, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Stuðningur við Grindvíkinga vegna húsnæðis

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðgerðirnar fela annars vegar í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar og hins vegar verður sett í forgang að tryggja Grindvíkingum húsnæði til leigu á meðan á almannvarnarástandi og rýmingu stendur og eftir atvikum lengur ef þörf krefur. ​ ​

    23. nóv. 2023Dómsmálaráðuneytið, Almannavarnir, Grindavík

    Varnargarður við Svartsengi

    Birting minnisblaða sem tengjast gerð varnargarðs

    22. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Grindavík

    Ræddi við erlenda fjölmiða um jarðhræringarnar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti fjölmiðlamiðstöðina í Hafnarfirði. Fór hún í sjónvarpsviðtöl hjá miðlum frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Brasilíu, Frakklandi og Kína.

    17. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík

    Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum nú í morgun frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um tímabundinn stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík.

    17. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Grindavík, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Skipun starfshóps um möguleika á hraðri uppbyggingu húsnæðis vegna afleiðinga náttúruhamfara við Grindavík

    Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að greina og kynna lausnir fyrir húsnæði fyrir Grindvíkinga, með áherslu á uppbyggingu nýrra húsnæðiseininga, vegna afleiðinga náttúruhamfara við Grindavík.

    16. nóv. 2023Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík, Mannauðsmál ríkisins

    Stofnanir komi til móts við starfsfólk ríkisins sem býr í Grindavík

    Í gildi er neyðarstig Almannavarna fyrir Grindavík og hefur íbúum bæjarins verið gert skylt að yfirgefa heimili sín. Óljóst er hvenær þeir fá að snúa aftur heim. Vegna þessa hefur orðið mikið rask á lífi fólks, margir búa við óvissu og er mikilvægt að þeim gefist færi á að sinna fjölskyldum sínum á þessum erfiðu tímum.

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband