06. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch
Fitch staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum
Matsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtímaskuldir í erlendri mynt sem A með stöðugum horfum. Samkvæmt matsfyrirtækinu endurspeglar þessi einkunn á annan bóginn háar þjóðartekjur, sterkar stofnanir, góð lífskjör og gott viðskiptaumhverfi og á hinn bóginn að hagkerfið reiðir sig að stórum hluta á hrávörur í útflutningi og er næmt fyrir ytri áföllum auk fyrri reynslu af sveiflum í efnahags- og fjármálum.