15. okt. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta
Samið um stuðning við jarðvanga Íslands: Einstök svæði á heimsvísu
Nýverið fór fram alþjóðleg ráðstefna samtaka evrópskra jarðvanga í Reykjanesbæ (European Geoparks Network Conference). Jarðvangar (e. geoparks) eru samfelld landfræðileg svæði, þar sem minjum og landslagi sem eru jarðfræðilega mikilvæg á heimsvísu og er stýrt eftir heildrænni stefnu um verndun, fræðslu og sjálfbæra þróun.
Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og fór nú fram í sautjánda sinn. Alls sóttu um 400 gestir ráðstefnuna, þar sem fram fóru um 200 kynningar og vinnustofur með fulltrúum háskóla og jarðvanga um alla Evrópu. Kynnt voru fjölbreytt verkefni jarðvanga sem meðal annars snúa að jarðfræði, verndun náttúruminja, rannsóknum, menntun og fræðslu, ferðaþjónustu, menningu og samfélagsþróun.