16. sep. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Friðlýsingar, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur íslenskrar náttúru
Blikastaðakró - Leiruvogur friðlýst á Degi íslenskrar náttúru
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag — á Degi íslenskrar náttúru friðlýsingu Blikastaðakróar -Leiruvogs í Grafarvogi. Friðlýsingin er unnin í samstarfi ráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, Reykjavíkurborgar og Mosfellsbæjar.