8. október 2026 /

Úrskurður nr. 424/2026

Hinn 8. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 424/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26020031

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 10. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í sjö ár, sbr. f-lið 1. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi. Kærandi krefst þess til vara að endurkomubann hans verði fellt niður eða stytt verulega.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi ekki handhafi gilds dvalarleyfis hér á landi. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 10. september 2011 en umsókn hans var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. desember 2012. Kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla 3. september 2013 og fékk það útgefið 13. febrúar 2014. Dvalarleyfi kæranda var endurnýjað í nokkur skipti, síðast með gildistíma til 21. maí 2023. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. nóvember 2023, var umsókn kæranda frá 22. maí 2023 um endurnýjun dvalarleyfis hafnað með vísan til ófullnægjandi fylgigagna með umsókn. Kærandi lagði fram beiðni um endurupptöku hjá Útlendingastofnun 15. nóvember 2023. Þeirri beiðni var synjað með ákvörðun stofnunarinnar frá 28. nóvember 2023 og með úrskurði kærunefndar útlendingamála, dags. 12. mars 2024 var ákvörðunin staðfest. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi með skráð lögheimili á Íslandi frá 12. nóvember 2013 til 22. maí 2023. Kærandi var skráður til heimilis í heimaríki frá og með 22. maí 2023. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi dvalið áfram hér á landi á árunum 2024 til 2026 og greitt staðgreiðslu af launum.

Samkvæmt upplýsingaskýrslu lögreglu, dags. 16. janúar 2026, er kærandi grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna, sem liður í skipulagðri brotastarfsemi hér á landi. Kærandi hafi verið stöðvaður af lögreglu 15. janúar 2026 þar sem hann hafi verið með fíkniefni í smelluláspokum í fórum sínum. Við húsleit í íbúð, sem kærandi hafi borið lykla að, hafi fundist meint kannabisefni auk hvíts efnis í smelliláspokum. Farsími, símkort, tómir smelluláspokar og grammavog hafi einnig fundist. Í upplýsingaskýrslu kemur fram að kærandi sé skráður sakborningur í fimmtán málum hjá lögreglu aftur til ársins 2012. Gefin hafi verið út sektargerð í tveimur málum fyrir vörslu ávana- og fíkniefna og vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án gildra ökuréttinda. Í ljósi þess að fíkniefni hafi fundist í fórum kæranda og við húsleit auk þess sem kærandi hafi ekki gefið trúverðugar skýringar á dvöl sinni hér á landi sé það mat lögreglunnar að kærandi dvelji hér í þeim tilgangi að stunda sölu og dreifingu fíkniefna. Að mati lögreglu sé brottvísun og endurkomubann því nauðsynleg ráðstöfun til verndar allsherjarreglu og almannahagsmunum. Brotaferill kæranda er nánar rakinn í kafla IV.

Með vísan til framangreinds var kæranda birt tilkynning, dags. 16. janúar 2026, um hugsanlega brottvísun og endurkomubann, sbr. f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kæranda var veittur þriggja daga frestur til að leggja fram andmæli vegna málsins. Kærandi lagði fram andmæli 22. janúar 2026. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2026, var kæranda brottvísað og ákveðið endurkomubann til landsins í sjö ár á grundvelli f-liðar 1. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Kæranda var birt ákvörðunin sama dag. Fram kom í ákvörðuninni að skilyrði brottvísunar samkvæmt f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga væru uppfyllt. Ákvæði 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga ætti ekki við þegar brottvísun byggði á f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar væri felldur niður á grundvelli e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 10. febrúar 2026 og lagði fram greinargerð og önnur fylgigögn 14. febrúar 2026.

Samhliða stjórnsýslukæru óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefnd, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga. Beiðni kæranda var synjað 18. febrúar 2026. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun var kæranda fylgt úr landi til heimaríkis af heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 19. febrúar 2026. Hinn 1. júní 2026 bárust viðbótargögn frá kæranda. Gögn málsins bárust frá Útlendingastofnun 10. febrúar og 21. september 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til þess að hann hafi verið búsettur á Íslandi frá árinu 2011 eða í tæp 15 ár. Hann hafi verið með gilt dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla frá 13. febrúar 2014 til 21. mars 2023. Kærandi tali íslensku og hafi stundað atvinnu á veitingastað og greitt staðgreiðslu skatta. Þá vísar kærandi til þess að hann eigi íslenska dóttur, fædda árið 2013. Fyrir liggi formlegur og staðfestur umgengissamningur frá Sýslumanninum í Reykjavík, dags. 2. október 2013. Kærandi hafi verið handtekinn 15. janúar 2026. Lögregla hafi krafist gæsluvarðhalds yfir kæranda en héraðsdómur hafi hafnað kröfunni og talið gæsluvarðhald fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í ljósi tengsla kæranda við landið. Þrátt fyrir niðurstöðu héraðsdóms hafi Útlendingastofnun tekið ákvörðun um brottvísun kæranda.

Kærandi telur ákvörðun Útlendingastofnunar ranga og vísar til þess að hann hafi verið búsettur hér í 15 ár. Hann hafi aldrei hlotið dóm fyrir alvarleg ofbeldis- eða fíkniefnabrot. Kærandi sé því ekki ógn við almannahagsmuni. Útlendingastofnun vísi til 15 afskipta lögreglu, en horfi fram hjá því að afskiptin hafi einungis leitt til minniháttar sektargerða vegna neysluskammta og umferðarlagabrota. Ef kærandi væri raunverulega sá hættulegi og stórtæki brotamaður sem stofnunin haldi fram hefði 15 ára dvalartími óhjákvæmilega leitt til alvarlegri sakfellingu. Þá liggi ekkert hlutlægt hættumat fyrir í málinu sem sýni að hann ógni allsherjarreglu. Það mál sem hafi leitt til handtöku kæranda sé á frumstigi rannsóknar og kærandi neiti sök. Að byggja svo íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun á getgátum lögreglu sé gróft brot gegn mannréttindum kæranda. Staðhæfingar lögreglu og Útlendingastofnunar um tengsl við skipulagða brotastarfsemi séu órökstuddar getgátur. Kærandi telur að hinar meintu sakir nái ekki þeim alvarleikaþröskuldi sem f-liður 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga feli í sér. Þá vísar kærandi til þess að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi metið þá hættu sem stafi af kæranda og tengsl við landið og að dómurinn hafi komist að því að nægilegt væri að kærandi myndi sæta tilkynningarskyldu í stað gæsluvarðhalds.

Kærandi vísar til þess að skráning lögheimilis kæranda í Albaníu séu eingöngu stjórnsýsluleg framkvæmd Þjóðskrár í kjölfar fyrri úrskurðar kærunefndar en ekki raunverulegur dvalarstaður kæranda. Dvöl hans á Íslandi sé óumdeild samkvæmt þeim gögnum sem liggi fyrir. Kærandi telur að ákvörðun um brottvísun muni valda honum og barni hans óafturkræfum skaða. Umgengni við barn kæranda sé mikilvægt atriði. Fyrir liggi formlegur og staðfestur umgengissamningur frá Sýslumanninum í Reykjavík. Útlendingastofnun kjósi að líta framhjá þessum samningi og geri lítið úr fjölskyldutengslum kæranda með því að benda á að hann hafi ekki skráða forsjá. Þótt ákvörðun Útlendingastofnunar beinist að kæranda sé ljóst að hún muni hafa djúpstæð áhrif á barn hans. Varanlegur aðskilnaður föður og barns gangi í berhögg við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga. Einnig brjóti slíkt gegn Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Brottvísun föður myndi ótvírætt rjúfa þau tengsl og hafa alvarlegar afleiðingar fyrir barnið. Slíkt tjón sé óafturkræft og gangi gegn hagsmunum barnsins, sem eigi að vera í fyrirrúmi við ákvarðanatöku. Útlendingastofnun hafi ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína að þessu leyti. Kærandi vísar til þess að hann muni leggja fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla verði ákvörðun Útlendingastofnunar ógilt.

Í viðbótargreinargerð vísar kærandi til viðbótargagna er varðar umgengni hans við barn sitt. Sálfræðimat sýni að barnið sé í viðkvæmri stöðu vegna ýmissa einkenna. Að taka kæranda úr lífi barnsins sé þvert gegn því öryggi sem fagaðilar telji henni lífsnauðsynlegt og hætt við að einkenni hennar versni. Samkvæmt yfirlýsingu móður hafi kærandi alla tíð verið virkur í lífi hennar. Móðir lýsi því að kærandi og barnið eigi í daglegum samskiptum og hittist að jafnaði tvisvar til þrisvar í viku. Vegna kvíða og sérþarfa barnsins treysti hún sér ekki alltaf til að gista annars staðar en kærandi hafi aðlagað sig að þörfum barnsins. Nærvera hans sé nauðsynleg fyrir hennar líðan, öryggi og sjálfstraust. Meðfylgjandi gögn séu yfirlýsing barnsins og barnsmóður kæranda. Barn kæranda segist tala við föður sinn á hverjum degi, leita til hans eftir stuðningi þegar henni líði illa og segi með berum orðum að pabbi hennar eigi heima á Íslandi. Réttur hennar til að njóta samvista við föður sinn hljóti að vega þyngra en óstaðfestar grunsemdir lögreglu um meint brot hans. Brottvísun kæranda sé ekki eingöngu íþyngjandi fyrir hann heldur bein atlaga að geðheilsu og öryggi viðkvæms barns. Þegar meint brot kæranda séu metin gagnvart því óbætanlega tjóni sem barn kæranda muni líða sé ljóst að brottvísun brjóti gegn meðalhófsreglu.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem er án dvalarleyfis ef það er nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Ekki er fjallað nánar um ákvæðið í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga.

Samkvæmt framangreindu kemur til skoðunar hvort að brot kæranda sé þess eðlis að nauðsynlegt sé að brottvísa honum vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Samkvæmt upplýsingaskýrslu lögreglu, dags. 16. janúar 2026, er kærandi grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna, sem liður í skipulagðri brotastarfsemi hér á landi. Kærandi hafi verið stöðvaður af lögreglu 15. janúar 2026 þar sem hann hafi verið með fíkniefni í smelluláspokum. Kærandi hafi greint frá því að búa á tilteknu heimilisfangi en hafi ekki viljað fara með lögreglu þangað til að framvísa vegabréfi. Lögregla hafi séð skilaboð í síma kæranda er varðaði annað heimilisfang og hafi lögreglan ákveðið að fara þangað. Við komuna þangað hafi komið í ljós að lyklar sem kærandi bar á sér gengu að sameign hússins og einni íbúð á stigaganginum. Við leit í þeirri íbúð hafi fundist meint kannabisefni auk hvíts efnis í smelliláspokum. Farsími, símkort, tómir smelluláspokar og grammavog hafi einnig fundist við húsleit. Til viðbótar framangreindu kemur fram í skýrslu lögreglu vegna framangreindrar handtöku kæranda, dags. 15. janúar 2026, að handtaska sem hafi fundist við leit í framangreindu húsnæði sé samskonar taska og hafi komið við sögu í fimm öðrum nánar tilgreindum málum hjá lögreglu. Lögreglu gruni að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Í framburðarskýrslu lögreglu, dags. sama dag, vegna skýrslutöku af kæranda, kemur m.a. fram að kærandi hafi neitað sölu fíkniefna en hafi greint frá því að hafa sjálfur keypt og ætlað að kaupa fíkniefni.

Í framangreindri upplýsingaskýrslu kemur fram að kærandi hafi verið skráður sakborningur í fimmtán málum hjá lögreglu aftur til ársins 2012. Kærandi sé skráður í máli með öðrum þekktum brotamanni sem einnig hafi verið brottvísað héðan af landi. Kærandi hafi gengist undir tvær sektargerðir fyrir vörslu ávana- og fíkniefna, sbr. 2., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur án gildra ökuréttinda, sbr. 2., 5. og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni og 50. og 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Kærandi hafi jafnframt verið sviptur ökuréttindum í 18 mánuði. Í ljósi þess að fíkniefni hafi fundist á kæranda og við húsleit auk þess sem kærandi hafi ekki gefið trúverðugar skýringar á dvöl sinni hér á landi sé það mat lögreglunnar að kærandi dvelji hér á landi í þeim tilgangi að stunda sölu og dreifingu fíkniefna. Mál kæranda svipi til sambærilegra mála annarra samlanda hans og lögreglu gruni að hann tengist skipulagðri glæpastarfsemi. Þá áréttar lögregla að innflutningur, framleiðsla og sala fíkniefnaefna og annarra ólöglegra efna sé brot sem beinist gegn almannahagsmunum og hafi fíkniefnaneysla og vandamál tengd henni haft afar skaðleg áhrif á samfélagið og sé álitin raunveruleg ógn við heilsu fólks á Íslandi. Sala og dreifing fíkniefna sé alvarleg ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins m.a. þeirra hagsmuna að vernda einstaklinga og þjóðfélagið í heild gegn þeirri skaðsemi sem ávana- og fíkniefni hafi verið talin fela í sér. Það sé mat lögreglu að það varði almannahagsmuni og særi réttarvitund almennings að erlendir brotamenn komi hingað til lands í þeim tilgangi að stunda afbrot og að framferði kæranda feli í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins til að heimila brottvísun. Að mati lögreglu sé brottvísun og endurkomubann því nauðsynleg ráðstöfun til verndar allsherjarreglu og almannahagsmunum.

Líkt og að framan er rakið bera gögn málsins með sér að kærandi hafi dvalið hér á landi í því skyni að stunda sölu og dreifingu fíkniefna, sem grunur er um að sé liður í skipulagðri brotastarfsemi. Við mat á því hvað fellur undir öryggi ríkis og almannahagsmuni í skilningi framangreinds ákvæðis er unnt að líta til túlkunar á sviði Evrópuréttar á hugtökunum og sjónarmiða við beitingu þeirra í framkvæmd. Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að fíkniefnabrot, einkum sem liður í skipulagðri glæpastarfsemi, geti réttlætt brottvísun á grundvelli almannaöryggis og almannahagsmuna, sbr. dóm Evrópudómstólsins nr. C-145/09 Tsakouridis (m.a. 46. og 47. mgr. dómsins). Lagt er til grundvallar í framangreindum dómi að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram sem taki mið af eðli brots, hvort viðkomandi sé líklegur til að brjóta endurtekið af sér, auk tengsla við landið. Þá skuli taka mið af grundvallarréttindum einstaklings, einkum réttinum til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu, sbr. 7. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (m.a. 52. og 53. mgr. dómsins). Er til þess að líta að löggjafinn hér á landi hefur tekið skýra afstöðu gegn sölu og dreifingu fíkniefna með lögum um ávana- og fíkniefni auk almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að auki hafa stjórnvöld á sviði heilbrigðis- og löggæslumála lagt mikla áherslu á forvarnir gegn fíkniefnum. Íslensk stjórnvöld hafa jafnframt sett sér stefnu og aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Skipulögð brotastarfsemi beinist gegn samfélaginu og öryggi almennings. Hún grefur undan öryggi borgaranna þar sem hún sniðgengur og vanvirðir þau grundvallarsjónarmið lýðræðissamfélags að halda uppi lögum og reglu.

Við mat á því hvort framferði kæranda sé þess eðlis að nauðsynlegt sé að brottvísa honum vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna er litið til þess að kærandi, sem ekki hefur gilt dvalarleyfi hér á landi, er sakborningur í máli þar sem rökstuddur grunur er um að hann sé viðriðinn sölu og dreifingu fíkniefna og skipulagða brotastarfsemi. Sala og dreifing fíkniefna er brot sem varðar almenning og beinist gegn hagsmunum samfélagsins í heild sinni og öryggi almennings. Fyrir liggur grunur um refsiverða háttsemi sem framin sé í félagi við aðra og mat lögreglu að háttsemi kæranda varði við almannahagsmuni.

Kærandi vísar í greinargerð til þess að um ósannaða háttsemi sé að ræða og að ekkert hlutlægt hættumat liggi fyrir í málinu sem sýni að hann ógni allsherjarreglu. Kærandi vísar til þess að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi hafnað kröfu lögreglu um gæsluvarðhald og talið það fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í ljósi tengsla kæranda við landið. Dómurinn hafi komist að því að nægilegt væri að kærandi myndi sæta tilkynningarskyldu í stað gæsluvarðhalds. Í úrskurði héraðsdóms var fallist á að í málinu lægju fyrir næg gögn og upplýsingar sem leiddu til þess að álykta mætti svo að kærandi teldist undir rökstuddum grun um ítrekaða brotahegðun af því tagi sem uppfylli skilyrði um hegðun sem gefi til kynna að hann ógni allsherjarreglu, öryggi ríkisins eða almannahagsmunum. Í úrskurðinum var tekið fram að skilyrði b- og g-liðar 1. mgr. 115. gr. laga um útlendinga væru uppfyllt. Var það hins vegar niðurstaða dómsins að tilkynningarskylda samkvæmt 114. gr. laga um útlendinga væri nægjanlegt úrræði til að ná því markmiði sem að væri stefnt, einkum í ljósi tengsla kæranda við landið. Með hliðsjón af meðalhófi teldist gæsluvarðhald því ósanngjörn ráðstöfun.

Mat samkvæmt 115. gr. laga um útlendinga er ekki samskonar mat og við ákvarðanatöku um hvort beita eigi brottvísun samkvæmt f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Heldur felst aðeins í því mat á því hvort líklegt sé að aðili í málinu muni koma sér hjá því að hlíta ákvörðun stjórnvalda og því sé nauðsynlegt að tryggja nærveru hans með þeim úrræðum sem þar koma fram. Ákvæði f-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga gerir ekki kröfu um að viðkomandi hafi verið dæmdur fyrir refsiverða háttsemi. Við beitingu f-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga verður að gera ríkar kröfur til málsmeðferðar og að fyrir liggi rökstutt mat lögreglu og gögn sem sýna fram á umrædda ógn. Gögn málsins sýna fram á rökstuddan grun um að kærandi sé viðriðinn brotastarfsemi sem feli í sér dreifingu og sölu fíkniefna og hann sé staddur hér á landi meðal annars í því skyni að fremja refsiverða háttsemi. Slík brotahegðun er ógn við öryggi ríkisins og almannahagsmuni. Með vísan til framangreinds verður talið að framferði kæranda sé með þeim hætti að nauðsynlegt sé vegna öryggis ríkisins og almannahagsmuna að brottvísa honum og að slík ákvörðun brjóti ekki gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga.

Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Samkvæmt 4. mgr. 102. gr. á ákvæði 3. mgr. ekki við þegar brottvísun er nauðsynleg vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna, sbr. m.a. f-lið 1. mgr. 98. gr. laganna.

Í greinargerð vísar kærandi til þess að hann eigi barn hér á landi, sem sé íslenskur ríkisborgari, sem njóti stuðnings hans og umgengni. Kærandi hefur á kærustigi lagt fram yfirlýsingar barnsins og barnsmóður og umgengnissamning til stuðnings máli sínu. Þrátt fyrir að 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga komi ekki til skoðunar þegar einstaklingum er brottvísað á grundvelli f-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga nýtur kærandi réttar til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu sem tryggður er í 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Bar Útlendingastofnun því að leggja mat á tengsl kæranda hér á landi og hvort að skerðing á framangreindum réttindum með brottvísun væri nauðsynleg og í samræmi við lög.

Með hliðsjón af 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verður að horfa til þess hvort að ákvörðun um brottvísun skerði rétt viðkomandi til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu og hvort að ákvörðunin sé í samræmi við það sem lög mæli fyrir um og nauðsyn beri til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmálans. Hagmunir kæranda og aðstandanda hans af því að hann fái að dveljast hér áfram skulu vegnir gegn þeim samfélagslegu hagsmunum sem liggja að baki ákvæði f-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og heimildum til að takmarka rétt manna til fjölskyldulífs, sbr. 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrár og 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þau sjónarmið sem mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar í málum af þessum toga eru t.a.m. eðli þess brots sem viðkomandi hefur gerst sekur um, lengd dvalar viðkomandi í því ríki sem tekur ákvörðun um brottvísun og félags-, menningar- og fjölskyldutengsl viðkomandi við dvalarríki og heimaríki, sbr. t.d. mál Balogun gegn Bretlandi (nr. 60286/09) frá 4. október 2013 og Ndidi gegn Bretlandi (nr. 41215/15) frá 14. september 2017. Dómstóllinn hefur almennt veitt ríkjum talsvert svigrúm til mats þegar kemur að brottvísun aðila vegna alvarlegra afbrota með vísan til allsherjarreglu þótt aðili hafi fjölskyldutengsl við ríkið, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi.

Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi töluverð tengsl við landið með tilliti til dvalartíma, fjölskylduaðstæðna og atvinnu. Yfirlýsingar móður og barnsins bera með sér að kærandi sé í reglulegri umgengni við barn sitt og að samband þeirra sé náið. Kærandi gegni mikilvægu hlutverki í lífi barnsins og veiti henni margvíslegan stuðning. Samskipti þeirra séu regluleg í gegnum síma og styttri samverustunda. Fyrir liggur þó að kærandi hefur ekki verið í lögmætri dvöl hér á landi frá árinu 2023 auk þess sem hann hafi stundað atvinnu án tilskilinna leyfa. Þá hefur kærandi ekki gert reka að því að bæta úr þeirri stöðu t.a.m. með því að leggja inn umsókn um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun á grundvelli tengsla sinna við landið. Að framan hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að brottvísa kæranda vegna almannahagsmuna. Að teknu tilliti til þess vegur alvarleiki máls kæranda þyngra en hagsmunir hans og aðstandanda hans af því að hann fái að dvelja á landinu. Eru skilyrði 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrár og 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu uppfyllt í máli kæranda og samrýmist ákvörðun um brottvísun skilyrðum framangreindra ákvæða. Þá er einnig litið til þess að kærandi og barn hans hafa einkum ræktað samband sitt með samskiptum í gegnum síma og fjarfundabúnað auk styttri samverustunda. Geta þau viðhaldið þeim tengslum sínum og ræktað samband sitt áfram í gegnum fjarfundabúnað auk þess sem barn kæranda getur heimsótt kæranda til heimaríkis hans.

Gerð er athugasemd við að framangreint mat hafi ekki farið fram hjá Útlendingastofnun. Með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa, málsatvika, einkum alvarleika brots kæranda og þess að dvöl hans undanfarin ár hér á landi var ólögmæt, er annmarkinn ekki slíkur að hann leiði til ógildingar á ákvörðun Útlendingastofnunar. Hefur verið bætt úr annmarkanum við málsmeðferð kærunefndar.

Í 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga kemur fram að endurkomubann skuli að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Þó geti endurkomubann varað lengur en fimm ár þegar útlendingur telst ógn við öryggi ríkisins, almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns skuli litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda gert að sæta endurkomubanni til sjö ára. Fyrir liggur að kærandi hefur einu sinni verið handtekinn vegna sölu og dreifingar fíkniefna og er kærandi skráður sakborningur í fleiri málum hjá lögreglu auk þess sem hann hefur gert tvær sektargerðir. Þá bera gögn málsins með sér að kærandi hafi dvalið hér á landi og starfað undanfarin ár án þess að hafa tilskilið atvinnu- og dvalarleyfi. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns ber að líta til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda en líkt og að framan er rakið á kærandi barn hér á landi sem er íslenskur ríkisborgari. Með hliðsjón af þeim tengslum sem kærandi hefur við landið er fallist á varakröfu kæranda og endurkomubann hans stytt úr sjö árum í fimm ár.

Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt c-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar slíkt telst nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Að teknu tilliti til málsatvika og þar sem komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að brottvísa beri kæranda vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til c-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga hófst endurkomubann kæranda þegar hann var fluttur úr landi 19. febrúar 2026. Athygli kæranda er jafnframt vakin á því að samkvæmt 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga er heimilt, samkvæmt umsókn þar um, að fella endurkomubann úr gildi hafi aðstæður breyst frá því ákvörðun um brottvísun var tekin, þó ekki fyrr en að tveimur árum liðnum. Þegar sérstaklega stendur á, að jafnaði þó ekki fyrr en að tveimur árum liðnum, má samkvæmt umsókn heimila þeim sem vísað hefur verið brott að heimsækja landið án þess þó að endurkomubann falli úr gildi, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun staðfest. Endurkomubann skal vera fimm ár.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda skal vera fimm ár.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant‘s re-entry bann shall be five years.

Þorsteinn Gunnarsson

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Var efnið hjálplegt?