17. september 2026 /

Úrskurður nr. 396/2026

Hinn 17. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 396/2026

í stjórnsýslumálum nr. KNU26010062

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 19. janúar 2026 barst kærunefnd útlendingamála kæra [...], fd. [...], ríkisborgara Sómalíu (hér eftir kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2026, um að synja umsókn hennar um fjölskyldusameiningu við [...], fd. [...], ríkisborgara Sómalíu (hér eftir A), á grundvelli 69. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik og málsmeðferð

Umsókn kæranda um fjölskyldusameiningu var móttekin hjá Útlendingastofnun 19. desember 2024. Umsóknin er byggð á því að kærandi vilji sameinast föður sínum, A. Föður kæranda var veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. júní 2024.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2026, var umsókn kæranda um fjölskyldusameiningu synjað. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til þess að faðir kæranda, sem umsókn um fjölskyldusameiningu byggi á, hafi ekki endurnýjað dvalarleyfi sitt tvisvar líkt og áskilið sé í 2. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Þá væru ríkar sanngirnisástæður í skilningi sama ákvæðis ekki fyrir hendi. Kærandi ætti því ekki rétt á fjölskyldusameiningu á grundvelli 69. gr. laganna.

Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 19. janúar 2026. Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru sinni.

3 Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð til stuðnings kæru sinni.

4 Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að nánasti aðstandandi íslensks eða annars norræns ríkisborgara sem er með fasta búsetu hér á landi eða útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis skv. 61., 62., 63., 64., 70., 2. mgr. 73. og 78. gr. eða ótímabundins dvalarleyfis skv. 58. gr. geti með umsókn fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar að fullnægðum skilyrðum 55. gr. og VIII. kafla laganna. Til nánustu aðstandenda teljist maki, sambúðarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans og á framfæri og foreldrar 67 ára og eldri.

Í 2. mgr. 69. gr. laganna kemur m.a. fram að nánasti aðstandandi útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis skv. 3. mgr. 73. gr. geti með umsókn fengið dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar að fullnægðum skilyrðum 55. gr. og VIII. kafla laganna hafi sá sem umsóknin er byggð á fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað fyrir framlagningu umsóknar. Heimilt er að veita undanþágu frá kröfu um endurnýjun ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða. Sama gildir um nánustu aðstandendur útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis skv. 74. gr. hafi dvalarleyfið verið endurnýjað tvívegis.

Umsókn kæranda um fjölskyldusameiningu er byggð á því að hún vilji sameinast föður sínum, sem er handhafi dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, skv. 74. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2026, var umsókn kæranda um fjölskyldusameiningu synjað. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til þess að faðir kæranda hafi ekki endurnýjað dvalarleyfi sitt í tvígang líkt og 2. mgr. 69. gr. laga um útlendinga áskilji. Var það mat stofnunarinnar að ekkert benti til þess að ríkar sanngirnisástæður væru fyrir hendi í máli kæranda. Kærandi ætti því ekki rétt á fjölskyldusameiningu á grundvelli 69. gr. laga um útlendinga, að svo stöddu.

Fyrir liggur að faðir kæranda fékk dvalarleyfi sitt útgefið 28. júní 2024 og hafði hann því ekki fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað fyrir framlagningu umsóknar kæranda um fjölskyldusameiningu 19. desember 2024. Samkvæmt afdráttarlausu orðalagi 2. mgr. 69. gr. laga um útlendinga þarf sá sem umsókn um fjölskyldusameiningu er byggð á að hafa fengið dvalarleyfi sitt, á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, endurnýjað í tvígang fyrir framlagningu umsóknar. Eru því skilyrði um endurnýjun dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 69. gr. laga um útlendinga ekki uppfyllt í málinu.

Samkvæmt 2. mgr. 69. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita undanþágu frá kröfu um endurnýjun ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða. Um er að ræða undanþágu sem var lögfest með lögum nr. 68/2024, um breytingu á lögum um útlendinga. Í frumvarpi til breytingarlaganna kemur fram að með ríkum sanngirnisástæðum vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða sé einungis átt við ef viðkomandi var umönnunaraðili maka síns áður en hann yfirgaf heimaríki sitt eða ef viðkomandi á barn í heimaríki sem er í bráðri hættu, er þar án annars forsjáraðila eða á við alvarleg veikindi að stríða. Kæranda var, með hliðsjón af framangreindu ákvæði, veitt færi á að leggja fram sjónarmið varðandi aðstæður sínar og hvort að aðkallandi umönnunarsjónarmið ættu við. Kærandi lagði hvorki fram sjónarmið hjá Útlendingastofnun né á kærustigi málsins. Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi fram umsókn um fjölskyldusameiningu samhliða móður sinni og systkinum. Samkvæmt upplýsingum í umsókn er kærandi búsett með móður sinni og systkinum. Gögn málsins benda ekki til þess að ríkar sanngirnisástæður vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða mæli með því að undanþága verði veitt í tilviki kæranda. Eru lagaskilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis á grundvelli fjölskyldusameiningar því ekki uppfyllt.

Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun hefur dvalarleyfi föður kæranda nú verið endurnýjað í tvígang, síðast 26. maí 2026 með gildistíma til 28. júní 2027. Kærandi getur því lagt fram nýja umsókn um fjölskyldusameiningu. Með framangreindum leiðbeiningum er þó ekki tekin afstaða til niðurstöðu slíkar umsóknar.

Umsókn kæranda barst Útlendingastofnun 19. desember 2024. Kæranda var fyrst veittur frestur til að leggja fram athugasemdir er varðar ríkar sanngirnisástæður 5. nóvember 2025. Var ákvörðun í málinu tekin 7. janúar 2026. Óhjákvæmilegt er að gera athugasemdir við framangreindan málshraða, m.a. með hliðsjón af 9. gr. stjórnsýslulaga. Er því beint til Útlendingastofnunar að hraða vinnslu sambærilegra mála.

Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?