23. október 2026 /

Úrskurður nr. 467/2026

Hinn 23. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 467/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26070014

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 18. mars 2025 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir A), og atvinnurekandinn [...], kt. [...] (hér eftir B), ákvörðun Vinnumálstofnunar, dags. 12. mars 2025, um synjun framlengingar á tímabundnu atvinnuleyfi til handa A í því skyni að ráða sig til starfa hjá B.

Kærendur gera kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002 er atvinnurekanda og útlendingi sameiginlega heimilt að kæra ákvörðun á grundvelli laganna.

Með lögum um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 79/2026 sem birt voru í stjórnartíðindum 7. júlí 2026 var gerð sú breyting á 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga að kærunefnd útlendingamála úrskurðar nú í kærum á grundvelli laganna. Jafnframt var kveðið á um í 23. gr. að kærur sem borist hefðu ráðuneyti félags- og húsnæðismála vegna ákvarðana um tímabundin atvinnuleyfi fyrir gildistöku laga nr. 79/2026 skuli afgreiddar af nefndinni í samræmi við lög um atvinnuréttindi ásamt breytingum.

Kæra þessi barst ráðuneyti félags- og húsnæðismála fyrir gildistöku umræddra laga og hefur kærunefnd útlendingamála tekið yfir meðferð hennar.

2 Málsatvik

Samkvæmt gögnum málsins fékk A fyrst útgefið tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli skorts á starfsfólki skv. 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, frá 9. nóvember 2020 til 1. október 2021. Var leyfið veitt vegna starfa hans sem múrara með vísan til framlagðra menntunargagna og útgefins starfsleyfis. Var leyfið endurnýjað þrisvar sinnum með gildistíma til 1. október 2024. A lagði fram umsókn um endurnýjun á atvinnuleyfi á sama grundvelli, þ.e. vegna skorts á starfsfólki, sbr. 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, 12. júlí 2024. Sótt var um atvinnuleyfi fyrir A, sem albanskur ríkisborgari, vegna starfa hjá B.

Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 29. október 2024, voru kærendur upplýstir um að afgreiðslu umsóknar þeirra hefði verið frestað þar sem Vinnumálastofnun hefði upplýsingar um það að menntunargögn vegna náms A í „Akademia Profesionale VIZION“ í Albaníu væru til skoðunar. Í erindinu kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu hefðu stjórnvöld í Albaníu staðfest að sú menntastofnun væri ekki til í þeirri mynd sem vísað væri til. Í málinu væri því rökstuddur grunur um fölsun gagna í því skyni að afla A atvinnu- og dvalarleyfis hér á landi. Samkvæmt b-lið 1. mgr. 27. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga varðar það sektum eða fangelsi ef maður af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir upplýsingar sem eru í verulegum atriðum rangar eða augljóslega villandi vegna umsókna á grundvelli laganna. Væri Vinnumálastofnun samkvæmt 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga heimilt að synja um veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna brota starfsmanns og atvinnurekanda á lögunum. Í samræmi við framangreint lægi fyrir að umsókninni yrði hafnað. Var veittur sjö daga frestur til að koma á framfæri frekari upplýsingum þrátt fyrir framangreint. Hinn 5. nóvember 2024 bárust andmæli frá kærendum þar sem mótmælt var þeim sjónarmiðum sem komu fram í erindi Vinnumálastofnunar.

Hinn 12. nóvember 2024 var A og Vinnumálastofnun tilkynnt sú ákvörðun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins að afturkalla ákvörðun Menntamálastofnunar frá október 2020 um viðurkenningu A til starfa í múraraiðn hér á landi og að ráðuneytið hefði gert Sýslumanninum á Austurlandi að afturkalla starfsleyfi hans í múraraiðn.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. mars 2025, var umsókn kærenda um tímabundið atvinnuleyfi til handa A synjað á grundvelli 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga þar sem A hefði lagt fram röng, villandi eða fölsuð gögn í þeim tilgangi að afla viðurkenningar á starfsréttindum iðnaðarmanns og atvinnu- og dvalarleyfis hér á landi. Kærendur kærðu ákvörðunina til ráðuneytis félags- og húsnæðismála 18. mars 2025 og óskuðu eftir frestun réttaráhrifa með vísan til 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærendur lögðu fram greinargerð 10. apríl 2025 og 23. júní 2025 lagði vinnumálastofnun fram umsögn. Hinn 7. júlí 2025 lögðu kærendur fram athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Með úrskurði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 10. júlí 2025, var beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hafnað.

3 Málsástæður kærenda

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði.

Kærendur byggja á því að orðalag hinnar kærðu ákvörðunar beri með sér þá afstöðu Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brotið gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga, án þess að slík háttsemi hafi verið staðfest með dómi eða viðurlagaákvörðun. Vísa kærendur til þess að ekkert liggi fyrir um að A hafi réttarstöðu sakbornings vegna meintra brota eða að hann hafi verið boðaður til skýrslutöku hjá lögreglu vegna þeirra.

Kærendur telja að skýra beri 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga með hliðsjón af 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þannig að sekt útlendings þurfi að vera sönnuð áður en ákvæðinu verði beitt á þeim grundvelli að hann hafi áður brotið gegn lögunum. Vísa kærendur í því sambandi til álits umboðsmanns Alþingis nr. 3786/2003 um að það kunni að fara gegn fyrirmælum framangreindra ákvæða ef handhafar opinbers valds lýsi mann sekan um refsiverðan verknað áður en sekt hans hafi verið slegin föst með dómi.

Telja kærendur hina kærðu ákvörðun því fara gegn 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Jafnframt byggja þeir á því að Vinnumálastofnun hafi brotið gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttar, sbr. einnig 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrárinnar, 13. gr. Alþjóðasamnings um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi og 1. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Sé ákvörðunin því haldin efnislegum annmarka sem leiða eigi til ógildingar hennar.

Kærendur telja að rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi og að Vinnumálastofnun hafi við ákvörðun sína eingöngu byggt á rannsókn háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Sú rannsókn hafi að meginstefnu falist í því að tölvubréf hafi verið sent til rangs ráðuneytis í Albaníu, þ.e. ráðuneytis menntamála í stað ráðuneytis iðnaðar- og íþróttamála. Í svari albanska ráðuneytisins komi hvorki fram hvort eða hvenær skólinn hafi verið starfandi né staðfesting á því að skólinn sé ekki eða hafi ekki verið til.

Kærendur mótmæla jafnframt þeirri ályktun að á Facebook-síðu skólans hafi komið fram að unnt væri að kaupa prófskírteini fyrir 150 evrur. Hið rétta sé að þar hafi verið auglýst námslína í stjórnun á árunum 2016-2017 gegn 150 evra skráningargjaldi. Síðasta færsla síðunnar hafi verið frá 12. apríl 2017 og varðað skráningu á tungumálanámskeið. Hvergi á síðunni sé minnst á að unnt hafi verið að kaupa prófskírteini á 150 evrur.

Kærendur hafna þeirri fullyrðingu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar að skólinn hafi ekki verið til og að prófskírteini A sé falsað. Telja þeir framlögð gögn ekki renna stoðum undir þær ályktanir. Þvert á móti telja kærendur tölvubréfasamskipti ráðuneytanna styðji frásögn A um að skólinn hafi verið sameinaður öðrum skóla og síðar hætt starfsemi eftir að kærandi hafi útskrifast.

Kærendur byggja á því að Vinnumálastofnun hafi borið sjálfstæð skylda til að tryggja að málið væri nægilega upplýst áður en ákvörðun væri tekin, þótt rannsókn annars stjórnvalds hafi legið henni til grundvallar. Vísa þeir í því sambandi m.a. til álita umboðsmanns Alþingis nr. 4771/2006, 1385/1995 og 3698/2003. Telja kærendur Vinnumálastofnun því hafa brotið gegn rannsóknarskyldu 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kærendur byggja jafnframt á því að A hafi ekki verið veittur aðgangur að þeirri ábendingu sem laut að því að skólinn væri ekki til, þrátt fyrir beiðni hans þar um og rétt hans til aðgangs að gögnum samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga. Af þeim sökum hafi A ekki átt kost á því að taka til varna og koma að sjónarmiðum sínum vegna þeirra upplýsinga áður en ákvörðun var tekin.

Telja kærendur að með þessu hafi verið brotið gegn andmælarétti A samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga og að sá annmarki, ásamt öðrum annmörkum á rannsókn málsins, hafi leitt til þess að málið hafi ekki verið nægilega upplýst. Kærendur benda jafnframt á að A hafi ekki verið unnt að afla frekari gagna frá skólanum þar sem hann hafi sameinast öðrum skóla og síðar hætt starfsemi.

Kærendur byggja á því að Vinnumálastofnun hafi brotið gegn málshraðareglu þágildandi 1. mgr. 32. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, þar sem umsókn kærenda hafi ekki verið afgreidd innan þess tveggja mánaða frests sem þar sé mælt fyrir um. Hin kærða ákvörðun hafi ekki verið kynnt A fyrr en 12. mars 2025, eða nær sex mánuðum eftir að Vinnumálastofnun tók við umsókn hans.

Kærendur telja framangreinda annmarka á málsmeðferð og efni ákvörðunarinnar verulega og að þeir eigi að leiða til ógildingar hennar. Þá byggja þeir á því að málsmeðferð Vinnumálastofnunar í heild hafi farið gegn markmiði laga um atvinnuréttindi útlendinga samkvæmt 2. mgr. 2. gr. þeirra um að tryggja réttaröryggi útlendinga sem koma hingað til landsins í atvinnuskyni.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð

Kærendur byggja á því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Vinnumálastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Jafnframt telja kærendur að Vinnumálastofnun hafi farið út fyrir valdmörk sín með því að leggja mat á háttsemi kærenda er falli undir 27. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

Í máli þessu reynir á hvort aðstæður kærenda falli undir 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga en ekki 27. gr. sömu laga. Kemur skýrt fram í ákvörðun Vinnumálastofnunar að þeim þætti hafi verið vísað til lögreglu. Er ekki fallist á að stofnunin hafi farið út fyrir valdmörk sín.

Ákvæði 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga felur í sér heimild til þess að synja umsókn einstaklings og ber Vinnumálastofnun við beitingu þess að leggja einstaklingsbundið mat á atvik máls og gæta að almennum reglum stjórnsýsluréttar. Með vísan í niðurstöðu kærunefndar í úrskurði þessum liggur fyrir að ákvörðun Vinnumálastofnunar byggði á málefnalegum sjónarmiðum og að ekki hafi verið gengið lengra en þörf krefur við beitingu ákvæðisins, enda ljóst að vægara úrræði en synjun um veitingu leyfisins sé ekki fyrir hendi.

Farið hefur verið yfir málsmeðferð Vinnumálastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Vinnumálastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Lagagrundvöllur

Um almenn skilyrði tímabundinna atvinnuleyfa er fjallað í a-e liðum 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

  1. Starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja eða aðrar sérstakar ástæður mæli með leyfisveitingu. Áður en leyfi er veitt ber atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar, nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar eða stofnunin hafi metið það svo að slík leit sé bersýnilega óþörf með hliðsjón af framboði og stöðu á vinnumarkaði.
  2. ....
  3. Fyrir liggi undirritaður ráðningarsamningur til tiltekins tíma eða vegna verkefnis milli atvinnurekanda og útlendings sem tryggi útlendingnum laun og önnur starfskjör til jafns við heimamenn í samræmi við gildandi lög og kjarasamninga þar um. Þegar um er að ræða störf sem falla utan gildissviðs kjarasamninga skal tryggja útlendingnum laun og önnur starfskjör til jafns við heimamenn en við mat á því hvort svo sé er Vinnumálastofnun m.a. heimilt að líta til viðmiðunarfjárhæða samkvæmt reglum ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald sem og upplýsinga frá Hagstofu Íslands og launakannana sem gerðar hafa verið af óháðum aðilum. Útlendingastofnun er heimilt að leita umsagnar stéttarfélags eða landssambands launafólks í hlutaðeigandi starfsgrein um laun og önnur starfskjör útlendings telji stofnunin þörf á.
  4. ....
  5. Atvinnurekandi ábyrgist greiðslu á heimflutningi útlendings að starfstíma loknum, ef um er að ræða ráðningarslit sem starfsmaður á ekki sök á eða ef útlendingur verður óvinnufær um lengri tíma vegna veikinda eða slysa. Í ráðningarsamningi skal koma fram til hvaða lands heimflutningur nær.

Um tímabundin atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki er kveðið á um í 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Skilyrði atvinnuleyfis eru að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjunum eða í Færeyjum og að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt.

Í 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er kveðið á um að þrátt fyrir að skilyrði laganna séu uppfyllt sé heimilt að synja um veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna starfa útlendings hjá atvinnurekanda sem áður hefur brotið gegn lögunum, svo sem með því að hafa áður ráðið útlending til starfa án tilskilins atvinnuleyfis, ekki greitt laun í samræmi við gildandi kjarasamninga, ekki staðið skil á staðgreiðslu skatta eða tryggingagjalda. Sama á við ef um er að ræða útlending sem áður hefur brotið gegn lögunum svo sem með því að hafa ráðið sig til starfa án tilskilins atvinnuleyfis.

Í athugasemdum við 56. gr. frumvarps þess er varð að 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 75/2018, um breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra og fleiri lögum (vernd réttinda á vinnumarkaði, EES-mál), kemur meðal annars fram að gert sé „ráð fyrir að tekið verði fram í ákvæðinu að þrátt fyrir að skilyrði laganna séu uppfyllt sé Vinnumálastofnun heimilt að synja um veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna starfa útlendings hjá atvinnurekanda sem áður hefur brotið gegn ákvæðum laganna. Í þessu sambandi er átt við hvers konar brot gegn ákvæðum laganna, svo sem ef áður hefur komið í ljós við eftirlit Vinnumálastofnunar eða annarra aðila sem fara með eftirlit á innlendum vinnumarkaði að atvinnurekandi hafi ráðið útlending til starfa án tilskilins atvinnuleyfis samkvæmt lögunum. Jafnframt er gert ráð fyrir að hið sama gildi hafi atvinnurekandi áður ráðið útlending til starfa á grundvelli tímabundins atvinnuleyfis samkvæmt lögunum en ekki greitt honum laun í samræmi við gildandi kjarasamning í viðkomandi starfsgrein á því svæði þar sem vinna hlutaðeigandi starfsmanns fór fram eða ekki staðið skil á staðgreiðslu skatta og/eða tryggingargjaldi lögum samkvæmt. Er því ekki gert ráð fyrir að sýna þurfi fram á huglægan ásetning í tengslum við brot heldur verði nægjanlegt að Vinnumálastofnun sýni fram á brot, svo sem með upplýsingum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra eða upplýsingum sem stofnunin aflar í tengslum við lögbundið eftirlit á vinnumarkaði sem og frá öðrum aðilum sem fara með eftirlit á vinnumarkaði.“

Þá kemur jafnframt fram að hér sé „ekki um að ræða skyldu Vinnumálastofnunar til að synja um veitingu tímabundinna atvinnuleyfa í öllum tilvikum þegar framangreindar aðstæður eiga við hvað varðar hlutaðeigandi atvinnurekanda og/eða viðkomandi útlending heldur er hér um heimildarákvæði að ræða. Verður því að gera ráð fyrir að Vinnumálastofnun meti í hvert skipti þegar framangreindar aðstæður eiga við hvort nýta beri heimildina en í því sambandi verður jafnframt að gera ráð fyrir að Vinnumálastofnun gæti í störfum sínum að ákvæðum stjórnsýslulaga, svo sem hvað varðar jafnræði og meðalhóf, og gangi þannig ekki en lengra en þörf krefur hverju sinni við nýtingu heimildarinnar.“

6 Niðurstaða

Líkt og að framan er rakið var A veitt atvinnuleyfi hér á landi á grundvelli skorts á starfsfólki vegna starfs síns sem múrari hjá B, frá 9. nóvember 2020 til 1. október 2024. Hafði honum verið veitt leyfi til þeirra starfa á grundvelli starfsleyfis, útgefið 6. október 2020, á grundvelli menntunargagna sem lögð voru fram með umsókn kærenda um atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki 11. júlí 2024.

Vegna fjölda ábendinga um grundvöll gagna fjölmargra aðila sem höfðu fengið útgefin starfsleyfi hér á landi hóf háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið vinnu við rannsókn á þeim gögnum og beindist rannsóknin m.a. að starfsleyfi þess skóla sem hafði gefið út menntunargögn þeirra aðila, þ. á m. menntunargagna A. Við rannsókn ráðuneytisins var aflað upplýsinga frá stjórnvöldum í Albaníu um „Akademia Profesionale VIZION“. Samkvæmt þeim upplýsingum var skólinn ekki viðurkennd menntastofnun í starfsnámi í Albaníu og hafði skráður eigandi ekki leyfi eða heimildir til kennslu iðn- eða starfsnáms. Þá kom fram að eigandi „Akademia Profesionale VIZION“ hefði fyrst skráð rekstur árið 2016 sem þjálfunarmiðstöð á sviði stjórnmálafræði, lögfræðiaðstoðar og meðferðar einhverfra barna. Árið 2017 var heiti starfseminnar breytt í „Akademia Profesionale VIZION“ og hinn 18. apríl 2024 var skráningu atvinnugreinaflokkunar starfseminnar breytt þannig að hún tæki meðal annars til starfsnáms í iðngreinum. Með hliðsjón af framangreindum upplýsingum afturkallaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið viðurkenningu á starfsréttindum A og var Sýslumanninum á Austurlandi falið að afturkalla starfsleyfi hans.

Í framlögðum menntunargögnum A kemur fram að hann hafi lokið þriggja ára námi í múriðn við „Akademia Profesionale VIZION“ árið 2006. Kærendur kváðu A ómögulegt að afla frekari gagna frá skólanum þar sem hann hefði árið 2017 sameinast öðrum skóla. Líkt og að framan greinir liggur fyrir samkvæmt upplýsingum frá albönskum stjórnvöldum að skólinn var ekki viðurkennd menntastofnun í starfsnámi í Albaníu og að skráður eigandi hans hafði ekki leyfi eða heimildir til kennslu iðn- eða starfsnáms. Sá aðili sem skráður er fyrir framangreindri menntastofnun sem A kveðst hafa stundað nám við var fyrst skráður með starfsemi í Albaníu 23. september 2016 og þá formlega þjálfunarmiðstöð fyrir stjórnmálafræði, lögfræðiaðstoð og meðferðaraðili fyrir einhverf börn. Árið 2017 hafi nafni menntastofnunarinnar „Akademia Profesionale VIZION“ verið skráð hjá fyrirtækjaskrá/rekstrarskrá Albaníu. Eftir að íslensk stjórnvöld hófu rannsókn sína á hinni meintu menntastofnun og hófu að synja um viðurkenningu á prófskírteinum frá stofnuninni var gerð breyting 18. apríl 2024 á skráningu í fyrirtækjaskrá í iðnmenntun fyrir smíði, rafvirkjun, málara og fleiri iðngreinar. Kærendur hafa ekki lagt fram gögn sem geta stutt frekar við staðhæfingar A um að hann hafi stundað nám við skólann og útskrifast þaðan árið 2006 og með vísan til framangreindra upplýsinga verður gengið út frá því að A hafi lagt fram fölsuð gögn um menntun sína.

Hvorki í 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga né í athugasemdum í frumvarpi því er varð að lögunum er talið upp með tæmandi hætti hvers konar brot kunni að vera um að ræða þannig að ákvæðið eigi við. Framvísun skjala sem eru röng eða fölsuð í tengslum við umsókn um tímabundið atvinnuleyfi felur ótvírætt í sér brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga enda má ætla að einstaklingur sem getur ekki lagt fram rétt og löglega útgefin skjöl um menntun og starfsreynslu uppfylli ekki skilyrði laganna um útgáfu dvalarleyfis á grundvelli sérfræðiþekkingar. Þá er samkvæmt 24. gr. laganna heimilt að afturkalla atvinnuleyfi ef útlendingur hefur við umsókn, gegn betri vitund, veitt rangar upplýsingar eða leynt atvikum sem hefðu getað haft verulega þýðingu við leyfisveitinguna. Þá telst það jafnframt brot gegn ákvæði 27. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga ef maður af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir upplýsingar sem eru í verulegum atriðum rangar eða augljóslega villandi í tengslum við umsókn um tímabundið atvinnuleyfi.

Með vísan í framangreinda umfjöllun og gögn málsins er ljóst að kærendur hafa áður brotið gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga í skilningi 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga og rétt er að synja umsóknum kærenda um tímabundið atvinnuleyfi til handa A.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of labour is affirmed.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?