18. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið
Mál nr. 109/2026 Úrskurður 18. nóvember 2026
Mál nr. 109/2026 Aðlögun kenninafns: Katarínubur
Hinn 18. nóvember 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 109/2026.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 2. nóvember 2026, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX að kenna sig við móður sína, Katharina, þannig að nafn hennar verði aðlagað að íslensku og kenninafn umsækjanda verði Katarínubur.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á móðurkenninguna Katarínubur.