14. október 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Atvinnuvegaráðuneytið

Plastmengun ógnar vistkerfum sjávar heimskautanna á milli

{image.Description}
Naja Bertolt Jensen

Alþjóðleg ráðstefna um plastmengun í hafi, sem fram fer í Hörpu dagana 20. – 22. október nk., verður sett í næstu viku. Til að vekja athygli á ráðstefnunni og því aðsteðjandi vandamáli sem lífríki og vistkerfi heimsins standa frammi fyrir vegna plastmengunar, hyggst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra taka þátt í átakinu Strandhreinsun Íslands í Reykjavík á morgun. Um er að ræða átak á vegum íslenskra stjórnvalda til að hreinsa strandlengju landsins af plasti og öðrum úrgangi með kerfisbundnum hætti.

Vaxandi plastmengun í hafi ógnar vistkerfum sjávar og sjálfbærri nýtingu hafsins. Ómengað haf er undirstaða lífríkis sjávar en í dag finnst plast alls staðar í hafinu; fljótandi á yfirborðinu, marandi í vatnssúlunni, á sjávarbotninum og í sjávardýrum. Örplast er komið inn í fæðukeðjuna og greinist í manneskjum. Til að takast á við plastmengun og vernda vistkerfi sjávar, verja lýðheilsu og tryggja alþjóðlega velsæld er nauðsynlegt að auka skilning á vandanum og umfangi hans.

Von er á um 250 vísindamönnum, stefnumótendum og leiðtogum úr atvinnulífinu til landsins, frá rúmlega 30 löndum, til að ræða nýjustu rannsóknir, mögulegar lausnir og miðla góðum starfsháttum og nýjungum.

Þetta er þriðja alþjóðlega ráðstefnan um plastmengun í hafi sem ríkisstjórn Íslands boðar til í samvinnu við innlenda og alþjóðlega samstarfsaðila, en fyrri ráðstefnur einblíndu á stöðu mála í norðurhöfum.

Að þessu sinni er áherslan á Atlantshafið frá norðri til suðurs í samstarfi við ráðuneyti og stofnanir frá Suður Afríku, Brasilíu og Marokkó, auk stofnana á borð við Alþjóðahaffræðinefnd Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (IOC UNESCO og Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES)).

Styrktaraðilar ráðstefnunnar eru m.a. Verkís, Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, Norræna ráðherranefndin ásamt utanríkis-, atvinnu-, og umverfis, orku og loftslagsráðueytinu.

Skipulagning er í höndum utanríkisráðuneytisins í samstarfi við Norðurslóðanet Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Unga umhverfissinna og PAME (Protection of the Arctic Marine Environment) vinnuhóp Norðurskautsráðsins sem er staðsettur á Akureyri.

Formaður vísindanefndar ráðstefnunnar er Magnús Jóhannesson, fyrrverandi framkvæmdastjóri skrifstofu Norðurskautsráðsins.

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna og skráning hér.