14. október 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til nýrra loftslagslaga lagt fram á Alþingi

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um loftslagsmál á Alþingi. Frumvarpinu er ætlað að styrkja umgjörð loftslagsmála, tryggja eftirfylgni með skuldbindingum Íslands og hraða innleiðingu loftslagsaðgerða, en núgildandi lög eru frá árinu 2012. Frumvarpið kveður á um aukna áherslu á aðlögun að loftslagsbreytingum og viðnámsþol samfélagsins gagnvart áhrifum þeirra, auk þess sem vísindalegri ráðgjöf er gert hærra undir höfði en áður.

Í frumvarpinu er að finna nýtt ákvæði sem kveður á um skýr viðbrögð ef losun þróast með þeim hætti að Ísland sé ekki á réttri leið til að standa við loftslagsskuldbindingar sínar. Gefi losunarbókhald til kynna frávik frá skuldbindingum þarf meðal annars að meta fjárhagslegan kostnað, gera grein fyrir honum í ríkisreikningi og leggja fram tillögur að markvissari aðgerðum. Markmiðið er að tryggja aukið aðhald og skýrari ábyrgð ef stefnir í að markmiðum verði ekki náð.

Réttlát umskipti bundin í lög

Eitt meginmarkmiða frumvarpsins er að bæta stjórnsýslu loftslagsmála og tryggja að loftslagsaðgerðir komist hraðar til framkvæmda. Í þeim tilgangi felur frumvarpið í sér heimild til að starfrækja sérstök framkvæmdateymi sem eiga að hraða innleiðingu loftslagsaðgerða þvert á ráðuneyti og stofnanir. Þá er krafan um réttlát umskipti lögfest þannig að loftslagsaðgerðir taki mið af samfélagslegum áhrifum og stuðli ekki að auknum ójöfnuði.

Enn fremur er í frumvarpinu lagt til að Loftslagsráð verði vísinda- og sérfræðiráð með aukið sjálfstæði og sterkari faglegan grunn. Einnig verður starfsemi landsnefndar um loftslagsvísindi lögfest í fyrsta sinn. Markmiðið er að ákvarðanir stjórnvalda í loftslagsmálum byggi á bestu tiltæku vísindalegu þekkingu hverju sinni.

Skýrari markmiðssetning

Í frumvarpinu er mælt fyrir um að mótuð skuli loftslagsstefna fyrir Ísland. Stefnunni er ætlað að marka heildstæða framtíðarsýn stjórnvalda í loftslagsmálum og fela í sér bæði langtímamarkmið og skilgreind milli- og skammtímamarkmið. Jóhann Páll sagði í flutningsræðu sinni að samráð vegna stefnunnar hefði hafist á Umhverfisþingi 2025, með þátttöku 300 manns, og að um þessar mundir standi yfir vinnufundir með fulltrúum atvinnulífs, verkalýðshreyfingar, félagasamtaka og fleiri hagaðila.

Jafnframt er í frumvarpinu lagt til að fyrir árslok 2027 fari fram sérstakt mat á forsendum markmiðs Íslands um kolefnishlutleysi árið 2040. Í framsögu sinni sagði ráðherra markmið Íslands um kolefnishlutleysi 2040 hafa verið lögfest árið 2021 án þess að skilgreint væri nákvæmlega hvað fælist í því og hvernig það yrði mælt. Slík vinna væri löngu tímabær og í henni fælist jafnframt mat á raunhæfi markmiðsins um kolefnishlutleysi árið 2040 og möguleg endurskoðun þess.

Frumvarpið til nýrra loftslagslaga er afrakstur vinnu sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra setti af stað í upphafi árs 2025, sem felur í sér tiltekt í loftslagsmálum. Í vinnunni felst jafnframt kostnaðar- og ábatamat fyrir allar loftslagsaðgerðir í aðgerðaáætlun, uppfærð aðgerðaáætlun og skýrari forgangsröðun loftslagsaðgerða með tilgreiningu sérstakra forgangsverkefna, uppfærð og breytt markmið Íslands í loftslagsmálum og ný stefna Íslands í loftslagsmálum.