Mál nr. 321/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 321/2026
Fimmtudaginn 3. september 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 5. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. apríl 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. apríl 2026, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 59. gr, sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sökum þess að hann hefði ekki upplýst stofnunina um nauðsynlegar upplýsingar sem höfðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefið fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 248.295 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 5. maí 2026. Með bréfi, dags. 6. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. maí 2026 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Vinnumálastofnun hefði þegar fellt viðurlög og innheimtu úr gildi, sbr. ákvörðun stofnunarinnar frá 7. maí 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. maí 2026, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst frá kæranda samdægurs og frekari gögn bárust 29. maí 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. júní 2026, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 12. júní 2026. Þá bárust frekari gögn frá kæranda 30. júní 2026.
II. Niðurstaða
Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. apríl 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr. 59. gr, sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Vinnumálastofnun hefði þegar fellt viðurlög og innheimtu úr gildi, sbr. ákvörðun stofnunarinnar frá 7. maí 2026. Þau gögn sem bárust frá Vinnumálastofnun 12. júní 2026 staðfesta að um réttar upplýsingar sé að ræða.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir