14. október 2022 /
Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf

Sendiherra afhendir forseta Sviss trúnaðarbréf

Ignazio Cassis, forseti Sviss og Einar Gunnarsson, sendiherra Íslands gagnvart Sviss.
Ignazio Cassis, forseti Sviss og Einar Gunnarsson, sendiherra Íslands gagnvart Sviss.

Einar Gunnarsson, sendiherra Íslands gagnvart Sviss og fastafulltrúi gagnvart alþjóðastofnunum í Genf, afhenti Ignazio Cassis, forseta Sviss, trúnaðarbréf síðastliðinn þriðjudag.

Við það tilefni ræddu Einar og Cassis, sem enn fremur gegnir embætti utanríkisráðherra, samstarf ríkjanna á vettvangi EFTA og á norðurslóðum. Horfur öryggismála í Evrópu og samráð Íslands og Sviss á sviði mannréttindamála bar einnig á góma.

Forsetar Sviss eru kjörnir af sambandsþingi ríkisins úr hópi starfandi ráðherra og gegna embætti til eins árs í senn.

Var efnið hjálplegt?