Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
28. ágúst 2020 /
Sendiráð Íslands í Moskvu

Árni Þór Sigurðsson afhendir afrit af trúnaðarbréfi

Vladimir G. Titov, fyrsti varautanríkisráðherra Rússlands og Árni Þór Sigurðsson sendiherra
Embassy of Iceland in Moscow
Vladimir G. Titov, fyrsti varautanríkisráðherra Rússlands og Árni Þór Sigurðsson sendiherra

Árni Þór Sigurðsson, sendiherra í Moskvu, afhenti í gær Vladimir G. Titov, fyrsta varautanríkisráðherra Rússlands, afrit af trúnaðarbréfi sínu.

Við það tilefni ræddu þeir Árni Þór og Titov um samstarf Íslands og Rússlands á sviði viðskipta, menningar og stjórnmála. Samvinna ríkjanna á sviði norðurslóðamála var sérstaklega rædd en Rússland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu af Íslandi næsta vor.

Nýleg heimsókn utanríkisráðherra Íslands til Moskvu, stofnun rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins, fyrirhugaðir menningarviðburðir og gagnkvæmar heimsóknir voru einnig meðal umræðuefna.

 

Var efnið hjálplegt?