Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
27. apríl 2018 /
Dómsmálaráðuneytið

Fjölmenn rakararastofuráðstefna undir forystu Íslands og Danmerkur á Evrópuráðsþinginu í gær

Ásmundur Einar Daðason ásamt Arnold Skribsted fastafulltrúa Danmerkur hjá Evrópuráðinu
Ásmundur Einar Daðason ásamt Arnold Skribsted fastafulltrúa Danmerkur hjá Evrópuráðinu

Ísland og Danmörk stóðu að fjölmennum rakarastofuviðburði fyrir Evrópuráðið og Evrópuráðsþingið í gær. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra opnaði viðburðinn og tók þátt í pallborðsumræðum um kynjamismunun á opinberum vettvangi ásamt Arnold Skribsted fastafulltrúa Danmerkur hjá Evrópuráðinu, Thorbjørn Jagland aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins og Rósu Björk Brynjólfsdóttur, þingmanni og varaforseta Evrópuráðsþingsins. 

Ásmundur Einar sagði í ræðu sinni frá hugmyndum og verkefnum sem miða að því að auka þátttöku karla í öllu jafnréttisstarfi sem fela m.a. í sér að uppræta staðlaðar hugmyndir um stöðu og hlutverk kynjanna.  Hann sagði jafnframt frá íslenska feðraorlofinu og jákvæðum áhrifum orlofstöku karla og jákvæðum viðbrögðum ungra karlmanna við #Ég líka hreyfingunni sem komu af stað herferðinni um ábyrgð karla á aðgerðum gegn kynbundu ofbeldi og kynferðislegri áreitni undir myllumerkinu #karlmennska.

Íslensk stjórnvöld eru þátttakendur í verkefni UN Women um HeforShe og hafa á alþjóðavettvangi tekið forystu hvað varðar verkefni um karla og jafnrétti undir yfirskriftinni Barbershop. Markmið verkefnisins er að standa fyrir svokölluðum rakarastofuráðstefnum sem fjalla um mismunandi þætti jafnréttismála á vettvangi allra alþjóðastofnana sem Ísland á aðild að til að virkja karla í baráttunni fyrir auknu jafnrétti kynjanna. Ísland leiðir einnig verkefni fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar um þrjár ráðstefnur á Íslandi, Danmörku og Svíþjóð og hefur jafnframt staðið fyrir viðburðum í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York og Genf, hjá NATO og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Viðburðina sækja karlar og konur í áhrifastöðum sem geta haft  áhrif á ákvarðanir og breytingar á stefnumótun á sviði alþjóðamála en þar hallar enn mjög á konur hvað varðar völd og áhrif og einnig hvað varðar samþættingu jafnréttissjónarmiða við stefnumótun og því þarf að breyta.

Ásmundur Einar átti einnig í gær fund með Snezana Samardzic-Markovic, framkvæmdastjóra málefnasviðs lýðræðis- og réttindamála, hjá Evrópuráðinu. Framkvæmdastjórinn vék í máli sínu sérstaklega að forystuhlutverki Íslands á sviði jafnréttismála og þakkaði fyrir framlag fulltrúa íslenskra stjórnvalda við mótun og samþykkt nýrrar jafnréttisáætlunar Evrópuráðsins fyrir árin 2018–2023 sem samþykkt var fyrir skömmu í ráðherraráðinu.  Einnig var rætt um framlag Íslands við mótun aðgerðaráætlunar Evrópuráðsins um stöðu og rétt fylgdarlausa barna og að verkefni Íslands um Barnahús væri fyrirmynd um hvernig tryggja megi réttarstöðu barna í kynferðisafbrotamálum.  Samardzic-Markovic óskaði eftir áframhaldandi stuðningi íslenskra stjórnvalda við aðildarríki Evrópuráðsins sem hafa áhuga á að læra af verkefninu og jafnvel að koma sér upp Barnahúsi að íslenskri fyrirmynd.

Var efnið hjálplegt?