Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
18. janúar 2016 /
Forsætisráðuneytið

Fer úr velferðarráðuneytinu í forsætisráðuneytið

Matthías Pál Imsland
Matthías Pál Imsland

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur ráðið Matthías Pál Imsland sem aðstoðarmann sinn. Matthías er 41 árs. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni, BA-prófi frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og síðar MS-prófi frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Þá hefur hann stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stjórnunarnám við North Park University í Chicago í Bandaríkjunum.

Matthías hefur undanfarin ár starfað sem aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra. Áður vann hann sem ráðgjafi fyrir erlend fyrirtæki á sviði framtaksfjárfestinga. Þar áður var Matthías framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express. Matthías starfaði um tíma í opinberri stjórnsýslu, fyrst sem sviðsstjóri fræðslu-, félags- og menningarsviðs á Blönduósi og síðar í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Að loknu námi starfaði hann hjá Símanum við ýmis stjórnunarstörf.

Verkefni Matthíasar í forsætisráðuneytinu verða meðal annars á sviði stefnumörkunar og samræmingar til að styðja við forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra hefur haft einn aðstoðarmann, Jóhannes Þór Skúlason, frá því að Ásmundur Einar Daðason lét af starfi aðstoðarmanns á síðasta á ári. Með ráðningu Matthíasar verða aðstoðarmennirnir aftur tveir.

Var efnið hjálplegt?