MDE vísar frá máli Gráa hersins gegn íslenska ríkinu
Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu. Málið hefur í fjölmiðlum hér á landi yfirleitt verið kennt við Gráa herinn.
Málið varðaði breytingar á íslenska lífeyriskerfinu sem gerðar voru 2016 og 2017. Þá voru ýmsir flokkar ellilífeyris sameinaðir í einn flokk og greiðslur úr almannatryggingakerfinu skertar um 45% hjá þeim sem fengu meira en 25 þúsund krónur á mánuði frá atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Kærendur í málinu töldu að íslenska ríkið hefði með þessum breytingum brotið gegn 14. grein mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. 1. gr. 1. viðauka við sáttmálann. Mannréttindadómstóllinn vísaði málinu frá þar sem ekki var sýnt fram á að kærendur hefðu orðið fyrir mismunun sem bryti gegn 14. gr. sáttmálans.
Dóminn má lesa hér (á ensku)