15. september 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Fyrsta stefna Íslands um opin og ábyrg vísindi samþykkt

{image.Description}
Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur samþykkt fyrstu heildstæðu stefnu Íslands um opin og ábyrg vísindi. Gildistími stefnunnar er  2026–2029 og kveður á um skýran ramma um opið og ábyrgt vísindastarf í samræmi við alþjóðleg viðmið og bestu starfsvenjur.

 

„Í fyrsta sinn hefur Ísland samþykkt heildstæða stefnu um opin og ábyrg vísindi. Markmiðið er að þekking sem verður til fyrir opinbert fé nýtist samfélaginu sem best – með gagnsæi, ábyrgð, öryggi og akademískt frelsi að leiðarljósi. Með stefnunni er stigið mikilvægt skref í átt að opnara og öflugra vísindasamfélagi um leið og dregið er úr sóun tíma og fjármuna sem getur skapast þegar aðgangur að rannsóknum, gögnum og aðferðum er takmarkaður um of,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Stefnan byggir á þeirri grundvallarhugmynd að þekking sem verður til fyrir opinbert fé sé sameiginleg auðlind sem eigi að vera aðgengileg samfélaginu. Með opnum aðgangi að rannsóknaniðurstöðum, gögnum og aðferðum er stuðlað að auknu gagnsæi, betri nýtingu opinbers fjár og meiri samfélagslegum áhrifum rannsókna. Jafnframt er lögð rík áhersla á ábyrgð, rannsóknaöryggi, persónuvernd og hugverkarétt.

Meðal helstu áherslna stefnunnar eru opinn aðgangur að fræðilegum birtingum og rannsóknagögnum, opin kennslugögn, öflugir rannsóknarinnviðir, aukin vísindamiðlun og þátttaka almennings. Leiðarljós hennar er að vísindi séu „eins opin og mögulegt er, en eins lokuð og nauðsyn krefur“.

Dregur úr tvíverknaði og flýtir fyrir nýsköpun

Opin vísindi styrkja traust, lýðræði og gæði ákvarðana með því að gera þekkingu aðgengilegri og gagnsærri. Þegar rannsóknaniðurstöður, gögn og aðferðir eru opnar eykst endurnýtanleiki og áreiðanleiki vísinda. Það dregur úr tvíverknaði og flýtir fyrir nýsköpun, ekki aðeins innan háskóla heldur einnig hjá fyrirtækjum, stofnunum og almenningi.

Opinn aðgangur að þekkingu getur jafnað tækifæri, sérstaklega fyrir smærri samfélög, stofnanir og fyrirtæki með takmarkað fjármagn, auk þess að auðvelda samstarf þvert á fræðigreinar og landamæri. Þá verður auðveldara að nýta rannsóknir til að takast á við samfélagslegar áskoranir, meðal annars í heilbrigðis-, loftslags- og menntamálum, þar sem greiður aðgangur að traustum gögnum og niðurstöðum skiptir miklu.

Stefnan er fjárfesting í innviðum þekkingar sem þjónar almannahagsmunum með betri rannsóknum, ábyrgari stjórnsýslu og samfélagi sem getur byggt umræðu og ákvarðanir á aðgengilegum og sannreyndum grunni.

Samhliða aukinni áherslu á opin vísindi gerir staðan í alþjóðasamfélaginu það nauðsynlegt að huga sérstaklega að ábyrgð, öryggi og viðeigandi vernd við miðlun gagna og rannsóknaniðurstaðna.

Stefnunni verður fylgt eftir með framvinduskýrslu auk þess sem heildarmat á framkvæmd hennar og áhrifum verður unnið seinni hluta árs 2029.