15. september 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Aðgerðaáætlun um fjölmiðla: Nýtt verklag um auglýsingakaup

{image.Description}
Mynd: MNH
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Stjórnarráðið hefur ákveðið að beina auglýsingakaupum sínum til fjölmiðla. Þessi ákvörðun er í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla, sem kynnt var 19. desember síðastliðinn.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti ríkisstjórninni í nóvember að ráðuneyti hans hefði ákveðið að kaupa einungis auglýsingar af fjölmiðlum. Í kjölfarið var verklagið kynnt ráðuneytisstjórum og upplýsingafulltrúum allra ráðuneyta sem tóku jákvætt í erindið og hafa nú tileinkað sér breytt verklag. Þá hefur menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneytið einnig sent stofnunum sínum erindi þar sem vakin er athygli á breyttu verklagi og þær hvattar til að tileinka sér það. Þrátt fyrir að um tilmæli sé að ræða er lögð áhersla á að auglýsingakaup annars staðar en í fjölmiðlum séu ekki í samræmi við fyrrnefnda aðgerðaáætlun og því æskilegt að fyrir slíkum kaupum sé skýr rökstuðningur.

Þá hvetur ráðuneytið stofnanir jafnframt til þess að kaupa áskriftir að fjölmiðlum til að auka aðgang starfsmanna að fréttum og samfélagsumræðu og stuðla að sjálfbærum rekstri fjölmiðla.

„Það skiptir máli að það sé ekki sjálfkrafa fyrsta val að kaupa birtingar á samfélagsmiðlum. Auðvitað geta komið upp tilvik þar sem ekki næst með góðu móti til ákveðins markhóps með birtingum í fjölmiðlum en það er sannarlega ekki alltaf. Því hvet ég sem flesta sem versla birtingar til þess að staldra við og spyrja sig hvort það séu fleiri og mögulega betri leiðir til þess að kaupa auglýsingar og styðja við faglega fjölmiðla. Það sama á við um fréttir – stöldrum við og hugum að því hvaðan þær sannarlega koma. Er fréttin frá ritstýrðum fréttamiðli og unnin af fréttamanni? Eða er fréttin af samfélagsmiðli með óskýran uppruna og án ritstjórnar?,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Góður gangur í aðgerðaáætlun

Sem fyrr segir er þessi ákvörðun liður í fyrrnefndri aðgerðaáætlun sem byggir á viðamiklu samráði við fjölmiðla landsins. Góður gangur er í framfylgd áætlunarinnar; t.a.m. var frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla samþykkt á Alþingi í vor og hafa reglur um Talsetningar- og textunarsjóð fjölmiðlaveitna og nýjan nýsköpunar- og þróunarsjóð fjölmiðla verði birtar í Stjórnartíðindum. Stefnt er að því að ljúka úthlutunum úr báðum sjóðum fyrir árslok en opið er fyrir umsóknir í Talsetningar- og textunarsjóð. Þá verða frumvörp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið og hækkun refsiramma höfundalaga lögð fram á Alþingi í haust.

Markmið aðgerðaáætlunarinnar er að styðja við fjölmiðlun og blaðamennsku, sem á í vök að verjast. Sterkir og faglegir fréttamiðlar veita stjórnvöldum og atvinnulífi aðhald, greina flókin mál og setja þau í samhengi við sögu og samtíma. Þeir stuðla að varðveislu íslenskrar tungu og menningar og eru ein helsta forsenda þess að almenningur hafi aðgang að traustum og sannreyndum upplýsingum. Lýðræðið þrífst ekki án stöndugra, sjálfstæðra og gagnrýninna fjölmiðla. Þess vegna hvílir rík ábyrgð á stjórnvöldum – og þeim stofnunum sem undir þau heyra – að stuðla að því að þeir fái þrifist.

Nánari upplýsingar um aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla má nálgast hér.