22. september 2026 /
Innviðaráðuneytið

Mælt fyrir heildarlögum um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi að heildarlögum um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Með lögunum er innleidd í lög samevrópskar reglur (netöryggisgerð ESB) um Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA) og netöryggisvottun upplýsinga- og fjarskiptatækni. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á síðasta þingi en er nú endurflutt.

Frumvarp þetta er liður í því að efla traust, öryggi og samkeppnishæfni Íslands á stafrænum innri markaði Evrópu. Markmið reglugerðarinnar sem frumvarpinu er ætlað að innleiða er tvíþætt: Annars vegar að styrkja hlutverk Netöryggisstofnunar Evrópu, ENISA, og hins vegar að koma á samræmdu evrópsku netöryggisvottunarkerfi fyrir vörur, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.

„Með frumvarpi þessu er lagður skýr grundvöllur að virkri þátttöku okkar í þeirri samvinnu. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir smærri ríki, enda virða netógnir ekki landamæri. Með aðild að sameiginlegri evrópskri umgjörð nýtum við sameiginlega sérfræðiþekkingu, greiningargetu og viðbragðsgetu sem erfitt væri að byggja upp að fullu á landsvísu einu saman,“ sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í framsöguræðu sinni á Alþingi í dag.

Evrópska netöryggisvottunarkerfið byggir á því að skapa sameiginleg viðmið og fullvissu um öryggi tæknilausna. Með því er stuðlað að auknu trausti notenda og komið í veg fyrir að hvert ríki þrói sitt eigið, ósamræmda kerfi. Þannig er dregið úr kostnaði fyrirtækja sem starfa yfir landamæri og innri markaðurinn styrktur. Netöryggisvottunin er valkvæður kostur fyrir fyrirtæki.