Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt
- Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt
- Gjald verður lagt á einstaklinga 18 ára og eldri sem ekki hafa skattalega heimilisfesti á Íslandi fyrir aðgang að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum.
- Ekki verður innheimt gjald af einstaklingum sem búsettir eru á Íslandi
- Við greiðslu fær viðkomandi skírteini sem veitir aðgang að stöðunum þremur í eitt ár.
- Gjaldið verður 4.500 kr. á háannatíma frá 1. júní til 30. október og 3.000 kr. frá 1. nóvember til 31. maí.
- Áætlað er að gjaldtaka muni hefjast þann 1. maí 2027.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald. Í frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins, Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stuðla að öryggi, álagsstýringu og verðmætasköpun í ferðaþjónustu líkt og fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Einstaklingar sem hafa ekki skattalega heimilisfesti á Íslandi þurfa að greiða náttúru- og innviðagjald að upphæð kr. 4.500 fyrir skírteinið sem gildir í eitt ár. Utan háannatíma eða á tímabilinu 1. nóvember til 31. maí er gjaldið kr. 3.000. Gjaldið nær ekki til fólks með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem hefur þegar tekið þátt í fjármögnun innviða og náttúruverndar sem skattgreiðendur. Ríkisfang ræður ekki gjaldskyldunni. Hins vegar þurfa allir einstaklingar 18 ára og eldri að afla rafræns aðgangsskírteinis (QR - kóði) fyrir umrædd svæði. Ferðaskrifstofum og ferðasölum verður gert kleift að kaupa skírteini fyrir fram fyrir sína viðskiptavini.
Áætlaðar tekjur ríkissjóðs vegna gjaldsins eru sex til sjö milljarðar króna á ári. Fyrir árið 2027 eru tekjur áætlaðar um fimm milljarðar króna, er þá miðað við að lögin taki gildi 1. maí.
Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður ekki lengur heimilt að innheimta bílastæðagjöld landsvæða í eigu eða umsjón ríkisins þar sem náttúru- og innviðagjald er innheimt og verða bílastæðagjöld innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum þar með ekki lengur innheimt.
„Það hefur verið samstaða um það í langan tíma, bæði af hálfu ferðaþjónustunnar og almennings, að þörf sé á að fjármagna nauðsynlegt uppbyggingar- og viðhaldsstarf vegna þess álags á innviði og náttúru sem fylgt hefur hröðum vexti í ferðaþjónustu“ segir atvinnuvegaráðherra „Þessi áhersla endurspeglast bæði í gildandi atvinnustefnu og ferðamálastefnu, þar sem sjálfbærni og vernd náttúru og innviða er sett í forgang samhliða áframhaldandi þróun greinarinnar. Fyrri ríkisstjórnir hafa margsinnis reynt að finna lausn á þessu viðfangsefni og lagt fram tillögur þar að lútandi, án þess að niðurstaða hafi fengist. Það er því sérstakt fagnaðarefni að geta lagt fram frumvarp um aðkallandi mál sem búið er að ræða svo lengi og gera nokkrar atlögur að.”
Eftirlit á gjaldskyldum stöðum
Gjaldtakan fer fram á þremur fyrrgreindum stöðum sem eru fjölsóttustu ferðamannastaðir í eigu ríkisins og þar með þau svæði sem verða fyrir mestum ágangi ferðamanna.
Eftirlit með gjaldtökunni verður á vegum Ferðamálastofu og verður eftirlitsaðilum heimilt að krefjast framvísunar aðgangsskírteina, persónuskilríkja eða annarra nauðsynlegra upplýsinga.