22. september 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Fræðslufundur um skimun fyrir ofbeldi og Ofbeldismóttöku barna

{image.Description}
Frá kynningarfundi í gamla Kennaraskólanum þar sem Bryndísarhlíð opnar næsta vor

Miðvikudaginn 23. september verður haldinn fræðslufundur fyrir heilbrigðisstarfsfólk og aðra fagaðila um allt land sem koma að þjónustu við börn vegna ofbeldis og/eða annarra áfalla. Að fræðslufundinum standa heilbrigðisráðuneytið, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Landspítali.

Kynning á skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum

Á fundinum verða tvö verkefni kynnt. Annars vegar skimun fyrir ofbeldi í 7. og 9. bekk í grunnskólum landsins en verkefnið hefst nú í október. Hins vegar Ofbeldismóttaka barna á Landspítala sem opnaði fyrir tilvísanir í ágúst síðastliðnum. Fjallað verður um tilurð skimunarinnar, tilgang og fyrirkomulag, tilkynningarskyldu, skráningu í sjúkraskrá og tilvísanir. Kynning á Ofbeldismóttöku barna á Landspítala verður um markhóp þjónustunnar og fyrirkomulag tilvísana í þjónustuna og eftirfylgd.

Skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum er meðal 25 aðgerða sem stjórnvöld kynntu haustið 2024 og fela í sér leiðir til að bregðast við ofbeldi á meðal barna og gegn börnum. Að loknu víðtæku faglegu undirbúningsstarfi undanfarin ár var skimunin forprófuð í 9. bekk í fimm grunnskólum á landinu síðastliðið vor. Niðurstöður úr forprófun voru nýttar til frekari umbóta á verkefninu, jafnframt liggja fyrir gæðaskjöl og fræðsla um framkvæmd skimunar. Útfærsla skimunarinnar felst í því að styrkja reglubundin samtöl hjúkrunarfræðinga sem sinna heilsuvernd skólabarna, um heilsu þeirra og líðan. Markmiðið er að skapa börnum eðlilegt og öruggt tækifæri til að ræða líðan, öryggi og mögulega reynslu af ofbeldi og að tryggja fagleg og samræmd viðbrögð í viðeigandi þjónustu ef svör barns gefa tilefni til.

Ofbeldismóttaka barna á Landspítala (OMB)

Undirbúningur OMB hefur staðið yfir undanfarin misseri. Opnað var fyrir tilvísanir í ágúst síðastliðnum en þar starfar nú þverfaglegt teymi sem samanstendur af sálfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskyldufræðingi og sérfræðingi í barnalækningum. Teymið veitir sérhæfða, þverfaglega og áfallamiðaða þjónustu fyrir börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og/eða öðrum áföllum og er þjónustan veitt á grundvelli tilvísana. Gert er ráð fyrir að tilvísanir berist frá heilbrigðisstarfsfólki innan og utan Landspítala. Ef börn greina frá ofbeldi við skimun í grunnskólum og metið er að þau þurfi á heilbrigðisþjónustu að halda vegna þess, fá þau tilvísun til OMB.

Starfsemi OMB er nú til húsa á Barnaspítala Hringsins en stefnt er að flutningi hennar í Bryndísarhlíð að Laufásvegi 81 næsta vor. Þar verður byggt upp þjónustu- og þekkingarsetur Landspítala á sviði ofbeldis og áfalla þar sem ofbeldis- og áfallateymi barna og áfallteymi fullorðinna verða til húsa.

Í febrúar voru kynnt áform um opnun sérhæfðrar ofbeldis- og áfallamóttöku innan Landspítala undir nafninu Bryndísarhlíð á næsta ári, í húsnæði gamla kennaraskólans við Laufásveg. Nánar um það í hér að neðan.