Landsáætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum, tímasettar aðgerðir 2026–2030
Unnin verði landsáætlun sem taki mið af ákvæðum samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamningsins). Landsáætlunin verði á breiðum grunni með tímasettum aðgerðum á framkvæmdatíma aðgerðaáætlunar þessarar. Stýrihópur hafi það hlutverk að fylgja eftir framkvæmd og innleiðingu landsáætlunarinnar og einnig verði mælaborð með upplýsingum um stöðu aðgerða í landsáætluninni. Þá verði landsáætlunin m.a. kynnt á vef Stjórnarráðs Íslands.
Markmið aðgerðarinnar verði að fylgja eftir og tryggja innleiðingu á ákvæðum samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.2, 5.3, 5.6, 10.2, 10.3, 10.4, 16.1, 16.2, 16.3, 16.6 og 16.10.
Staða aðgerðar:
Landaáætlun gegn kynbyndnu ofbeldi gagnvart konum 2026-2030, var kynnt 30. apríl 2026. Unnið er að framkvæmd aðgerða og mælaborð um stöðu aðgerða hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins.