16 september 2026
/

Ísland valið til forystu í stjórn fiskimálanefndar FAO

{image.Description}

Ísland var kjörið sem fyrsti varaformaður COFI – þeirrar stjórnarnefndar Matvæla og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, sem fer með fiskveiðar og lagareldi– á fundi nefndarinnar í Róm sem haldinn var dagana 7-11. september sl. Stjórnarnefndir FAO eru þrjár; en auk (i) fiskveiða- og eldis fjalla þær um (ii) landbúnað og (iii) skógrækt.  Ísland, sem var eitt landa tilnefnt til setu í stjórnarnefndinni af hálfu Evrópu-kjördæmisins innan FAO, tók við varaformennskunni í lok fundarins, fyrir tímabilið 2026-2028 og skv. hefð innan stofnunarinnar er gert ráð fyrir því að því að Ísland taki við formennsku í nefndinni fyrir tímabilið 2028-2030. Stefán Ásmundsson, sérlegur ráðgjafi í málefnum hafsins og sjávarútvegsmálum í utanríkisráðuneytinu, var tilnefndur til setu í nefndinni af Íslands hálfu og mun sinna þessu forystuhlutverki. Hann var áður formaður undirnefndar COFI um fiskveiðistjórnun frá því nefndin tók til starfa árið 2024 þar til Indland tók við þeirri formennsku í febrúar á þessu ári.

 

Í ár eru liðin sextíu ár síðan COFI var komið á fót og á þeim tíma hefur hún verið æðsti vettvangur þar sem sjávarútvegur og síðar málefni tengd lagareldi eru til umræðu á alþjóðavettvangi og er helsti stefnumótunarvettvangur heimsins varðandi þessi málefni. 
FAO hefur markað sér afgerandi hlutverk í hnattrænu samstarfi og samráði varðandi stefnumótun sem varðar mál svo sem rannsóknir á auðlindum sjávar, svæðasamvinnu ríkja um nýtingu auðlinda, stjórnun fiskveiða, eftirlit með fiskveiðum auk gagnasöfnunar um viðskipti með sjávarfang.

 

Í starfi sínu innan COFI hefur Ísland lagt áherslu á málefni eins og mikilvægi hafsins sem uppsprettu heilnæmrar fæðu, mikilvægi þess að fiskveiðar séu sjálfbærar á vísindalegum grunni, efnahagslegt mikilvægi sjávarútvegs, baráttu gegn ólöglegum fiskveiðum, stuðning við eflingu sjávarútvegs í þróunarríkjum, minni sóun með meiri fullnýtingu á afla, eflingu svæðisbundinnar fiskveiðistjórnunar fyrir deilistofna, vernd umhverfis hafsins, tengingu starfs FAO við aðrar alþjóðastofnanir, nýtingu COFI til að ná samkomulagi um viðmiðunarreglur á þeim sviðum þar sem hnattrænt samstarf og samhæfing er nauðsynlegt, og eflingu COFI innan stofnunarinnar í heild. Áherslur Íslands í hinu nýja forystuhlutverki innan COFI verða í samræmi við þetta.

Á undanförnum árum hefur Ísland lagt sig fram um að styðja við verkefni á vegum FAO sem miða að því að styrkja stöðu þróunarríkja til að takast á við margháttaðar áskoranir sem tengjast stýringu á og aðgengi að auðlindum þeirra. Nokkur atriði má þar nefna sérstaklega:

Ísland kostaði sérstaka úttekt á fyrirkomulagi á aðgangi svokallaðra þriðju ríkja í fiskveiðilögsögum annarra ríkja, einkanlega með áherslu á þróunarríki sem eiga oft fullt í fangi með að fylgjast með veiðum í lögsögum sínum og stjórna aðgangi og nýtingu auðlinda innan þeirra. Í framhaldi af útgáfu skýrslu um það mál hefur nú verið afráðið að íslensk stjórnvöld mæti kostnaði við næsta áfanga verkefnisins. Hann felur í sér að unnar verði tillögur og leiðbeiningar um - í meginatriðum - hvernig hátta megi samskiptum og samstarfi ríkja í milli og tryggja eðlilega umgjörð um fyrirkomulag varðandi aðgang að og nýtingu sjávarauðlinda.

Ísland hefur greitt kostnað við uppbyggingu og þróun alþjóðlegs rafræns eftirlits- og gagnakerfis (Global Information Exchange System, GIES) sem ætlað er að tryggja að fylgst sé með veiðum og löndunum fiskiskipa og skráningu á afla. Er kerfið mikilvæg stoð fyrir að hægt sé að koma í veg fyrir ólöglegar, óskráðar og ótilkynntar veiðar á grundvelli svokallaðs Hafnríkisaðgerðasamnings  (Port State Measures Agreement, PSMA). Í ár eru liðin 10 ár frá því samningurinn gekk í gildi og nú hafa hátt í 90 ríki fullgilt hann. Það miðar að því að koma í veg fyrir að fiskiskip sem stunda ólöglegar og óskráðar veiðar geti notað hafnir í aðildarríkjunum og komið afurðum á markað. Þannig styður samkomulagið við markmið um ábyrga og sjálfbæra nýtingu auðlinda sjávar. GIES-kerfið er virkt og unnið er að því að styðja við víðtæka hagnýtingu þess meðal ríkja.

Svæðisbundnar fiskveiðistjórnunarstofnanir (e. Regional Fisheries management Organisations, RFMOs) gegna lykilhlutverki í að tryggja sjálfbæra nýtingu sameiginlegra auðlinda sjávar. Ísland hefur lagt til við FAO að ráðist verði í sérstakt verkefni sem miðar að því að þessar svæðisstofnanir fái sem best risið undir hlutverki sínu og nú er unnið að undirbúningi þess. Í verkefninu felst greining á starfsháttum stofnananna sem lúta að vísindum og ákvörðunum um auðlindanýtingu; hvernig – að mati þáttökuríkja og að teknu tilliti til úttekta á árangri - samþætta megi nýtingarstefnu og hagsmuni þróunarríkja; og loks, að skilgreina þær aðferðir og þætti sem eru til þess fallnir að styrkja aðkomu þróunarríkja að starfi slíkra stofnana þar sem þau hafa beina hagsmuni, t.d. sem strandríki.

Á vegum FAO er unnið að framgangi verkefnaáætlunar sem kalla mætti Bláu umbreytinguna (Blue Transformation), sem er heildstæð áætlun um styrkingu efnahags- og samfélagsþróunar á svæðum sem eru háð fiskveiðum og eldi. Bætt staða stúlkna og kvenna í þeim atvinnugreinum er þar meðal markmiða. Í nýundirritaðri samstarfsáætlun Íslands og FAO (júlí 2026) er sérstaklega til tekið að Ísland hyggist veita FAO stuðning sem þjónar þeim ásetningi. Unnið er að því að skilgreina verkefni sem Ísland geti stutt við á sviði jafnréttismála.

Ísland hefur verið virkur þátttakandi í starfi COFI allt frá því nefndin var sett á fót árið 1966 – hún fagnar  því 60 ára afmæli á þessu ári. Málflutningur á vettvangi nefndarinnar endurspeglar þá afstöðu íslenskra stjórnvalda að auðlindir sjávar eigi að nýta á sjálfbæran hátt á grundvelli bestu vísindalegrar þekkingar, að virða beri rétt ríkja til sjálfbærrar nýtingar auðlinda innan lögsögu sinnar og að samstarf milli ríkja sé mikilvægt varðandi hagnýtingu auðlinda sem ekki eru að öllu leyti innan lögsögu eins ríkis. Ennfremur, að samstarf á alþjóðavettvangi feli í sér tækifæri til yfirfærslu þekkingar og færni til ríkja sem eru síður í færum til þess að nýta auðlindis sjávar á vísindalegan og ábyrgan hátt, - auk þess sem ýmis mál séu þess eðlis að hnattræn stefnumótun og gerð alþjóðlegra viðmiðunarreglna sé afar gagnleg.

Staða fyrsta varaformanns næstu tvö ár - og formennska í nefndinni sem vænta má að fylgi í kjölfarið – gefur mikilsverð tækifæri til að fylgja eftir áherslum Íslands á vettvangi FAO í hinu marghliða kerfi þegar kemur að málefnum sjávarútvegs, veiða og eldis, og mikilvægi heilbrigðs vistkerfis. Afgerandi þáttur þessara greina í efnahagslegu tilliti er nú almennt viðurkenndur og hlutur í fæðukerfum – einnig m.t.t. næringar- og fæðuöryggis – fer vaxandi og verður æ ljósari.