09 september 2026
/

Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

{image.Description}

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Dómsmálaráðuneytið veitir slíka styrki til eins árs í senn. Lögð er sérstök áhersla á verkefni og viðburði sem snúa að baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.
Við úthlutun er horft til þess hvort;

  • verkefni hafi gildi og mikilvægi fyrir jafnréttismál,
  • verkefni búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hafi skýr markmið og mælikvarða.

Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutun má finna í úthlutunarreglum.

  • Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. október 2026.
  • Sótt er um styrk í gegnum eyðublað á vef Stjórnarráðsins.
  • Hver einstakur styrkur getur numið að hámarki tveimur milljónum króna.
  • Heildarupphæð til ráðstöfunar haustið 2026 er 10.000.000 kr.

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrests eða eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublað á vef Stjórnarráðsins.
Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga né einstaklinga (að þeim undanskildum sem sækja um styrk vegna doktorsverkefna). Ekki eru veittir rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða. Til að umsókn teljist gild skulu henni fylgja þær upplýsingar og gögn sem óskað er eftir á umsóknarvef.

Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum gegnum netfangið [email protected].

Tilkynningu var breytt 24. september.