16 september 2026
/

Ávarp á samgönguráðstefnu ITS Ísland

Ávarp flutt á Samgönguráðstefnunni 2026 sem félagið ITS Ísland stóð fyrir 16. september.

Ágætu ráðstefnugestir.

Það er mér sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin á Samgönguráðstefnuna 2026.

Samgöngur snerta daglegt líf okkar allra. Þær tengja fólk, byggðir og atvinnulíf og eru grunnforsenda verðmætasköpunar og lífskjara um allt land. Fjárfesting í innviðum er ein öruggasta leið okkar til að auka samkeppnishæfni landsins og bæta lífskjör til lengri tíma.

Alþingi samþykkti í sumar nýja samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040. Eitt af þeim lykilviðfangsefnum í samgöngumálum á Íslandi sem sett eru fram í samgönguáætlun fyrir næstu ár er nýsköpun og tækniþróun í samgöngum.

Í aðgerðaáætlun samgönguáætlunar fyrir árin 2026 til 2030 eru þó nokkrar aðgerðir sem tengjast tækni í samgöngum. Sérstaklega er vert að nefna aðgerðina sem ber heitið “Tækniþróun í samgöngum”, en samkvæmt henni verður mótað verklag um vöktun og innleiðingu tæknilausna með það að markmiði að stuðla að framförum og öryggi í samgöngum. Þessi ráðstefna fellur því vel að þeim áherslum og mun nýtast okkur í áframhaldandi stefnumótun.

Með aukinni notkun tækni í samgöngum getum við meðal annars aukið flutningsgetu núverandi samgönguinnviða, einfaldað fólki að ferðast milli staða með samþættingu ferðamáta og aukið umferðaröryggi til muna. Þar gegna snjöll samgöngukerfi, eða ITS – Intelligent Transport Systems – sífellt mikilvægara hlutverki.

Með slíkum snjalllausnum eru gögn, fjarskipti og stafræn tækni nýtt til að tengja saman vegfarendur, ferðamáta, ökutæki og innviði. Þannig má meðal annars miðla rauntímaupplýsingum um færð og umferð, greina hættur, stýra umferðarflæði og nýta fjárfestingar í samgöngukerfinu með skilvirkari hætti.

Samtökin ITS Ísland gegna mikilvægu hlutverki við að leiða saman stjórnvöld, sveitarfélög, rannsóknarsamfélagið og fyrirtæki á þessu sviði. Þau skapa jafnframt verðmæt tengsl við nágrannaþjóðir okkar og auðvelda okkur að miðla reynslu, læra hvert af öðru og innleiða lausnir sem þegar hafa sýnt gildi sitt.

Ég vil sérstaklega þakka ITS Íslandi fyrir frumkvæðið að þessari samgönguráðstefnu, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Ráðstefnan er mikilvægt framlag til umræðunnar um mótun framtíðar samgangna á Íslandi. Hér verður veitt dýrmæt innsýn í snjallar samgöngur með fræðandi erindum, hagnýtum dæmum og skýrri framtíðarsýn.

Dagskráin hér í dag speglar vel hversu víðtækt verkefnið er. Hér verður meðal annars fjallað um stafræna innviði, snjallkerfi í samgöngum, gjaldtöku af bílaumferð, Borgarlínu, landupplýsingar, umferðarlíkön, hleðsluinnviði framtíðar, deililausnir og umferðaröryggi.

Öll þessi viðfangsefni tengjast, og árangur næst ekki innan einnar stofnunar, eins ráðuneytis eða eins sveitarfélags. Hann krefst samvinnu ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja, fræðasamfélags og almennings

Við erum hér saman komin til að kynna okkur hvernig gervigreind, stafræn tækni og nýsköpun eru að umbreyta samgöngum um heim allan.

Ég hvet ykkur til að nýta daginn vel, ræða áskoranirnar af hreinskilni og leggja fram hugmyndir að raunhæfum lausnum. Við þurfum ekki alltaf að vera sammála um leiðirnar, en við verðum að geta sameinast um markmiðið: öruggt, öflugt og framtíðarmiðað samgöngukerfi fyrir allt samfélagið.

Ég þakka aðstandendum ráðstefnunnar fyrir frábæran undirbúning og óska ykkur öllum góðs og lærdómsríks ráðstefnudags.