15 september 2026
/

Ásmundur Helgason skipaður forseti Félagsdóms

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ásamt Ásmundi Helgasyni, forseta Félagsdóms, og Ásgerði Ragnarsdóttir, fyrrum forseta Félagsdóms.

Ásmundur Helgason hefur verið skipaður forseti Félagsdóms en hann var áður varaforseti dómsins. Björn L. Bergsson hefur verið skipaður varaforseti eftir að hafa gegnt embætti dómara við Félagsdóm. Þá hefur Hólmfríður Grímsdóttir verið skipuð dómari við Félagsdóm. Skipanirnar koma í kjölfar þess að Ásgerður Ragnarsdóttir, fyrrum forseti Félagsdóms, var skipuð dómari við Hæstarétt.

Ásgerður var skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026 og lét á sama tíma af störfum sem forseti Félagsdóms.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið óskaði eftir tilnefningu Hæstaréttar vegna breytinga á skipan dómsins. Hæstiréttur tilnefndi þrjá dómara til embættanna og hefur félags- og húsnæðismálaráðherra nú skipað þá í samræmi við tilnefninguna.

Um Félagsdóm

Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur skipar ráðherra dómara í Félagsdóm. Hæstiréttur tilnefnir þrjá dómara, þar á meðal forseta og varaforseta dómsins, og eru þeir skipaðir ótímabundið.