NOTE: This article is more than 5 years old.
09 september 2013
/

Málþing um aðgerðaáætlanir sveitarfélaga gegn heimilisofbeldi


Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra

Málþing um aðgerðaáætlanir sveitarfélaga gegn heimilisofbeldi, 9. september 2013
Ávarp Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra
 

Góðir gestir.

Verið þið öll velkomin og bestu þakkir öllsömul sem hér eruð saman komin fyrir að sýna í verki áhuga á því mikilvæga málefni sem verður til umræðu hér í dag. 

Það er samstarfsteymi um heimilisofbeldi sem skipað var af hálfu velferðarráðuneytisins síðastliðið vor sem stendur fyrir þessu málþingi en hlutverk þess er að hafa umsjón með því að fylgt sé samræmdri heildarstefnu um heimilisofbeldi, að gerðir séu samstarfssamningar um tiltekna þjónustu og að tilraunverkefnum sé hrint í framkvæmd.

Þegar unnið er að stefnumótun og mótaðar aðgerðaáætlanir er mikilvægt að geta byggt á staðreyndum og góðri þekkingu á viðkomandi málefnasviði. Við búum svo vel að eiga orðið greinagóðar upplýsingar og greiningu á umfangi kynbundins ofbeldis vegna viðamikilla rannsókna á heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum sem unnar voru í tengslum við aðgerðaáætlun þáverandi ríkisstjórnar sem lögð var fram árið 2006. Ein þeirra leiddi í ljós að um 21% kvenna á aldrinum 18–80 ára hafði einhvern tíma verið beitt ofbeldi í nánu sambandi frá 16 ára aldri. Um 20% höfðu verið beitt líkamlegu ofbeldi og 6% kynferðislegu ofbeldi. 

Ég vil líka geta sérstaklega um nýlega könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir velferðarráðuneytið og veitir upplýsingar um aðstæður fatlaðra kvenna. Þar var rætt við þrettán fatlaðar konur sem allar höfðu einhvern tíma verið beittar ofbeldi af fólki sem stóð þeim nærri og þær áttu að geta treyst. Margar erlendar rannsóknir hafa sýnt að hættan á því að konur séu beittar ofbeldi eykst verulega ef þær búa við fötlun. Þetta verður að hafa hugfast í öllu tilliti og meðal annars við skipulag þjónustu við fatlað fólk og eftirlit með henni.

Við höfum í höndunum sláandi niðurstöður um umfang og afleiðingar heimilisofbeldis og ofbeldis í nánum samböndum. Við eigum að nota þær og nýta markvisst til að vinna gegn því samfélagsmeini sem ofbeldi felur í sér. Í mínum huga á þetta að vera forgangsmál. Þetta snýst um ákveðnar grundvallarspurningar; – spurningar um það í hvernig samfélagi við viljum búa, hvað við getum sætt okkur við, hvað við viljum sætta okkur við og hvað ekki. 

Að sjálfsögðu vill enginn búa í samfélagi þar sem ofbeldi er daglegt brauð. Um þetta held ég að allir séu sammála. Við erum líka komin svo langt að viðurkenna að heimilisofbeldi er ekki einkamál, líkt og var viðhorfið á árum áður. Viljinn til þess að gera eitthvað í þessum málum er fyrir hendi – og við þurfum að virkja þann vilja á markvissan hátt.

Samstarfsteyminu gegn heimilisofbeldi sem stendur fyrir þessu málþingi er meðal annars ætlað að koma á föstu samstarfi milli félagsþjónustu, barnaverndar, heilbrigðisþjónustu og lögreglu – og það á að vinna að því að öll sveitarfélög í landinu setji sér aðgerðaáætlun gegn heimilisofbeldi. 

Þótt sveitarfélögum sé ekki skylt að setja sér aðgerðaáætlun í þessum efnum finnst mér einboðið að þau geri það og skora á þau að vinna slíkar áætlanir og fylgja þeim fast eftir. Þetta hefur Reykjavíkurborg gert og Akureyrarbær sömuleiðis og það finnst mér til fyrirmyndar. Við heyrum nánar um áætlanir þeirra hér á eftir. Svo finnst mér einstaklega áhugavert Árverknisverkefnið - samstarfsverkefnið á Suðurnesjum gegn heimilisofbeldi sem sveitarfélög á Suðurnesjum ásamt Suðurnesjavaktinni standa fyrir og hefur töluvert verið fjallað um í fjölmiðlum en það virðist þegar hafa skilað sýnilegum árangri. Eins og segir í kynningu á Suðurnesjaverkefninu er markmiðið að gefa út skýr skilaboð til fólks um að ofbeldi á heimilum verði ekki liðið og áhersla er lögð á að veita þolendum heimilisofbeldis betri þjónustu.

María Gunnarsdóttir, forstöðumaður barnaverndar Reykjanesbæjar, kynnir á eftir Árvekniverkefnið á Suðurnesjum svo ég ætla ekki að fara um það mörgum orðum. Fyrst og fremst vil ég nefna að þarna hefur sýnt sig að það er hægt að ná árangri með samvinnu, breyttum áherslum og breyttu verklagi. 

Það vill brenna við þegar erfið mál eru til umfjöllunar sem erfiðlega gengur að fást við að upp rísa kröfur um lagabreytingar og lagasetningar. Vissulega getur lagasetning verið nauðsynleg þegar auka þarf heimildir til eftirlits eða aðgerða. Höfum samt hugfast að við setjum ekki lög um viðhorf eða vitundarvakningu í samfélaginu – og stundum er einmitt viðhorfsbreyting og breytt og bætt vinnubrögð það sem mestu skiptir til að ná árangri.

Verkefnið á Suðurnesjum og árangurinn sem þar virðist hafa náðst sýnist mér benda til þess að við getum gert miklu betur innan ramma gildandi laga til að vinna gegn ofbeldi. Þetta snýst um að beita til fulls þeim heimildum og úrræðum sem lög leyfa og stofnanir samfélagsins hafa yfir að ráða. Þetta snýst um vilja og síðast en ekki síst um virka og vel skipulagða samvinnu þar til bærra aðila. 

Ágætu gestir.

Góðir hlutir gerast hægt er stundum sagt. Og eflaust vildum við flest sjá meiri árangur af þeirri vinnu sem farið hefur fram á liðnum árum til að vinna gegn ofbeldi í samfélaginu, hvort sem um er að ræða heimilisofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, einelti eða hvað annað þar sem beitt er valdi eða kúgun af einhverju tagi. Ég vil samt láta það koma skýrt fram að frá því að stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis árið 2006 hefur margt verið gert til góðs í þessum efnum og okkur miðar tvímælalaust í rétta átt. 

Fólk sem í störfum sínum fær vitneskju um ofbeldismál eða hefur af þeim bein eða óbein afskipti stendur frammi fyrir afar vandasömu og viðkvæmu verkefni. Það tekst enginn á við slík mál með hyggjuvitið eitt sem verkfæri og góðan vilja. Þetta krefst fagmennsku, þekkingar og þjálfunar og enn og aftur ítreka ég; þetta krefst þverfaglegs samstarfs og samvinnu. Þess vegna vil ég nota tækifærið og minna á fræðslurit fyrir fagstéttir um ofbeldi gegn konum í nánum samböndum sem gefin voru út árið 2009 og hafa veit ég reynst mörgum afar mikilvægur leiðarvísir í starfi og einnig nýst vel við kennslu. Markhóparnir eru starfsfólk félagsþjónustu, heilbrigðisstéttir, ljósmæður og lögregla – og ég hvet sveitarfélögin til að nýta sér upplýsingar úr þessum ritum í vinnu sinni við gerð aðgerðaáætlana gegn kynbundnu ofbeldi.

Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur sem hefur meðal annars veitt ráðgjöf við þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á síðustu árum á ofbeldi í nánum samböndum hefur skrifað einstaklega góða grein þar sem hún fjallar um kosti þess að sveitarfélögin setji sér aðgerðaáætlanir og að hverju þau eigi helst að huga í þeirri vinnu. Þar bendir hún á að slíkar áætlanir geti breytt viðhorfum almennings og fengið þannig pólitískt vægi, en einkum séu þær þó hugsaðar sem verkfæri til að koma á skipulögðum umbótum og verkferlum þar sem aðalatriðið er að veita betri og markvissari þjónustu. Í grein Hildigunnar kemur fram að í sveitarfélögum þar sem þjónusta við konur sem sæta ofbeldi er best sé mikil áhersla lögð á samræmda þjónustu og samvinnu stofnana sem koma að málum og sérstaklega gætt að hagsmunum barna. Enn fremur segir hún að ef sveitarfélag geti boðið heildstæða velferðarþjónustu fyrir alla þá íbúa sína sem verða fyrir ofbeldi af þessum toga, hafi mikið áunnist. 

Góðir gestir.

Ofbeldi í samfélaginu og aðgerðir gegn því eru mikið til umræðu um þessar mundir og stjórnvöld fá margvíslega hvatningu og brýningu um að gera betur. Fjölmiðlar sýna þessum málum mikinn áhuga og þótt stundum sé skotið föstum skotum og gagnrýnin hörð er ekki ástæða til annars en að taka því vel. Umræðan er af hinu góða og við getum örugglega gert betur. 

Það er von mín og trú að sveitarfélögin í landinu láti ekki sitt eftir liggja í því að vinna að þessum mikilvæga verkefni og setji sér aðgerðaáætlanir líkt og hér eru til umfjöllunar á málþinginu í dag. Heilbrigðiskerfið, félagsþjónusta, barnavernd, lögregla og dómskerfið eru lykilstofnanir í framvindu baráttunnar gegn ofbeldi. Afstaða almennings skiptir sömuleiðis máli og viðhorf samfélagsins í heild þar sem skilaboðin eru skýr: Við líðum ekki ofbeldi í neinni mynd, ekki undir neinum kringumstæðum.

Ég lýsi þetta málþing sett og óska þess að dagurinn verði öllum þátttakendum fræðandi og gagnlegur fyrir þá vinnu sem framundan er.

- - - - - - - - - - - - -
(Talað orð gildir)