NOTE: This article is more than 5 years old.
30 september 2010
/

Vísindavaka

 

Góðir vísindavökustaurar

Ég vil byrja á því að fagna vísindavökunni sem slíkri.

Hún er afar jákvætt innlegg í umræðuna í dag, einmitt þegar þurfum hvað mest á jákvæðri og spennandi umræðu að halda.

Við eigum að horfa fram í tímann, sjá tækifærin og takast á við þau.

Vísindin spanna allt milli himins og jarðar J, ef svo má að orði komast.

Félagsvísindi, verkfræði- og náttúruvísindi, hugvísindi, menntavísindi, heilbrigðisvísindi og mörg fleiri vís yndi.

Vísindi felast í því að leita þekkingar með því að kanna reynsluna með skipulegum hætti og beita gagnrýni og rökhugsun.

Væntingar flestra eru að vísindin nálgist sannleikann eins og hægt er hverju sinni en séu hlutlaus um lífsgildi og önnur verðmæti.

Við væntum þess líka að með vísindarannsóknum og tækniþróun finnum við nýjar leiðir til að skapa verðmæti, skemmtilega upplifun, leysa samfélagsmál eða skilja náttúru og umhverfi betur, svo ekki sé talað um aukin lífsgæði.

Viðhorf og kröfur eru sífellt að breytast. Við þurfum að leysa ný verkefni, fyrir atvinnulífið og samfélagið. Óskir kom fram um nýtt útlit, lægri kostnað, nýja eiginleika, umhverfisvernd og öryggi svo eitthvað sé nefnt. Við erum alltaf að reyna auka og tryggja lífgæðin  með sem minnstum tilkostnaði.

Tilgangur vísindvökunnar er að vekja athygli og áhuga á þeim tækifærum sem felast í vísindum  bæði hvað varðar verðmætasköpun, lífsgæði og lífsfyllingu.

Hvað getum við gert til að auka og tryggja lífsgæðin , aukið verðmætasköpun, tekjur og störf?

Finna ný tækifæri á markaði og leysa þau með snilld.? Hvernig nýtum við umhverfið án þess að ofnýta? 

Flestir telja að við sem búum á Íslandi eigum ógrynni tækifæra. Hér eru auðlindir sem felast í fiskimiðum, umhverfisvænni orku, hreinu vatn, landrými og sérstakri náttúru, þekkingu fólks, alveg ágæta inniviði og ekki síst áhuga fólks sem er tilbúið til að takast á við ný og krefjandi verkefni.

Við getum orðað þetta svo að við höfum það sem þarf til að bjarga okkur sjálf.

Viðfangsefnið er því ekki síst að fara vel með það sem við höfum.

Þar þurfum við að hugsa um allar þrjár stoðirnar sem saman mynda sjálfbærni.

Þær eru hagræna stoðin, samfélagslega stoðin og umhverfisstoðin. Ef við hugsum um þetta sem þrífættan koll er augljóst að enga eina má vanta né einhver þeirra vera miklu lengri og meiri að vöxtum en hinar ef jafnvægi á að nást og kollurinn að virka sem undirstaða.

Mörkin milli þessara stoða eru einnig viðfangsefni margra ólíkra vísindagreina.  Hver eru mörkin? ef einhver.

Vísindastarf hér á landi stenst vel alþjóðlegan samanburð.

Einn mælikvarði er birtingar og tilvísanir í fræðigreinar vísindamanna. Íslenskir vísindamenn á heilbrigðissviði eru víða í fremstu röð samkvæmt þessum mælikvarða.

Við eigum auð í menntuðu og framsæknu fólki og hann mun treysta stoðir íslensks samfélags.

Enn skortir nokkuð upp á að okkur hafi  tekist að nýta þessa þekkingu sem skyldi til nýsköpunar ef marka má alþjóðlegan samanburð. Við þurfum því að vinna að því að koma okkar þekkingu í verð á markaði með markvissari hætti og búa til úr henni aukin verðmæti.

Helsta áskorun stjórnvalda á tímum óhjákvæmlegs samdráttar í ríkisútgjöldum er að forgangsraða með langtíma uppbyggingu í huga.

Í stefnu vísinda og tækniráðs fyrir árin 2010 til 2012 er lögð áhersla á að með samstilltu átaki einstaklinga, opinberra stofnana, háskóla og fyrirtækja verði til ný verðmæti og jafnvel nýjar greinar atvinnulífs í kröftugu samspili vísinda og nýsköpunar.

Til þess að það gangi eftir þarf að vera til staðar stuðningskerfi og samvinna sem nái til allra sem vinna að vísindum og nýsköpun.

Þess vegna hefur áhersla verið lögð á að verja stoðkerfi atvinnulífsins og samkeppnissjóði í öllum niðurskurðinum.

Framundan er auk þess róttæk endurnýjun stoðkerfisins með það að markmiði að einfalda það og gera bæði markvissara og skilvirkara í þágu atvinnulífsins.

Í mínum huga felst því sérstakt sóknarfæri í því þegar allar atvinnugreinar utan fjármálaþjónustu verða komnar saman í eitt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Við getum ef til vill líkt bestu aðferðum við nýsköpun og þróun í atvinnulífinu og stuðning við frumkvöðlastarf við hina vísindalegu aðferð. Grundvallaratriðin eru þau sömu hvort sem viðfangsefnið er aukið verðmæti sjávarafurða, lyf, tölvuleikir, markaðssetning landbúnaðarafurða eða nýtt þjónustuframboð.

Samhliða skilvirkara almennu stoðkerfi alls atvinnulífs þurfum við að dýpka fagþekkinguna í einstökum greinum til að skilgreina og nýta sóknarfæri í samvinnu við fulltrúa þeirra úr grasrót atvinnulífsins. Ekkert af þessu verður þó burðugt nema að baki sé öflugt vísindastarf.

Háskólar, rannsóknarstofnanir og þekkingarsetur munu gegna sífellt mikilvægara hlutverki eftir því sem við skilgreinum okkur frekar sem þekkingarsamfélag.

Eðlilega lítum við til sóknarfæra eða samkeppnisforskots á sviðum þar sem saman fara sérstakar náttúrulegar aðstæður eða löng reynsla og sérþekking sem byggð hefur verið upp.

Hér getum við nefnt orkumálin og matvælavinnslu hvort sem er úr landbúnaðar- eða sjávarafurðum. Ég get bætt við ferðaþjónustunni okkar auk þess sem er heilbrigðisgeirinn hér afar öflugur. Á síðustu árum hafa skapandi greinar eða hugverkaiðnaðurinn sótt mjög í sig veðrið.

Til að nýta sóknarfærin þurfum að tryggja: Umhverfis og orkutækni og tölvuleikjaiðn

Aukinn stöðugleika í efnahagsmálum,

Gott stuðningsumhverfi og bættar aðstæður til nýsköpunar og markaðssetningar,

Samstarf við aðrar þjóðir,

Öflugt menntakerfi frá leik- og grunnskóla til vísindastofnana.

Góðir gestir

Ég er lánsöm að fá að hitta hér fulltrúa framtíðarinnar og von okkar um aukin verðmæti, lífsgæði, bætt lífskjör og lífsfyllingu.

Til hamingju með Vísindavökuna og framtíð Íslands sem birtist í þessum hópi verðlaunahafa hér.