NOTE: This article is more than 5 years old.
23 september 2010
/

Málþing um afgjald af auðlindum í eigu ríkisins

 

Góðir gestir

Eins og viðeigandi er hefur umræðan um fyrirkomulag orkumála á köflum einkennst af miklum hita.

Umræðuefnið er eignarhald auðlinda og virkjanaréttinda, umgengni um auðlindir, útdeiling nýtingarréttar, nauðsynleg uppbygging í þágu verðmætasköpunar og hvernig samfélagið eigi að njóta afrakstursins.

Við erum því að ræða einhverja mikilvægustu almannahagsmuni samtímans.

Þess vegna verðum við líka að gæta þess að umræðan grundvallist á staðreyndum um fyrirkomulag orkumála.

Þær breytingar sem orðið hafa í orkumálum á undanförnum árum eru miklar en virðast ekki fá mikla athygli í opinberri umræðu.

Ég vil fyrst nefna það sem í mínum huga er mikilvægast: Tryggt er með lögum að auðlindir í opinberri eigu eða opinberra fyrirtækja verða það áfram enda beinlínis bannað að framselja þær varanlega.

Þá er búið að skipta starfsemi orkufyrirtækja upp og ganga þannig frá því að dreifingin, sem byggir á sérleyfum vegna náttúrulegrar einokunar, skal vera að meirihluta í opinberri eigu og lýtur ströngu eftirliti hvað varðar verðskrár.

Eftir stendur þá þriðji þátturinn sem er orkuvinnslan og salan sem við höfum skilgreint sem samkeppnisrekstur enda uppbygging orkuframleiðslu afar fjárfrek og í flestum tilfellum áhættusöm ekki síst jarðvarminn. 

Mín skoðun er sú að við verðum að hafa tvennt í huga þegar við ræðum fyrirkomulag til frambúðar:

Í fyrsta lagi eigum við að nálgast auðlindamálin mun heildstæðar en hingað til hefur verið gert.

Í raun eru það öll sömu grundvallarmarkmiðin sem við eigum að hafa í huga hvort sem um er að ræða jarðvarma, fallvötn, fiskistofna, vinnslu kolefna úr jörðu, vatn eða jarðefnanám.

Í öðru lagi verðum við að setja skýran lagaramma utan um það hvernig við verjum varanlegt eignarhald þjóðarinnar á sameiginlegum auðlindum sínum, úthlutum tímabundnum nýtingarrétti gegn sanngjörnu afgjaldi til eigenda, tryggjum sjálfbæra nýtingu og uppbyggingu í þágu verðmætasköpunar án þess að almenningur þurfi nauðsynlega að bera áhættuna af fjárfestingum í þágu uppbyggingar einkaaðila.

Ég er með öðrum orðum að halda því fram að þegar búið er að tryggja varanlegt eignarhald á sjálfum auðlindunum og setja skýran ramma um nýtingu, eftirlit, afgjald og aðra almannahagsmuni þá snúist málið ekki lengur um eignarhald á þeim fyrirtækjum sem fá tímabundin nýtingarleyfi, hvort sem er til fiskveiða, orkuframleiðslu eða olíuvinnslu.

Við eigum einmitt að setja allt regluverkið þannig upp að opinber fyrirtæki sæti sömu kröfum og sama eftirliti og einkaaðilar. Allt annað gengi gegn hugmyndum um sjálfbæra nýtingu. 

Flestir sem á annað borð tjá sig um atvinnulífið og orkugeirann hér á landi benda á mikilvægi þess að auka fjölbreytnina.

Margir leggja mikla áherslu á að við nýtum okkar endurnýjanlegu orkuauðlindir sem segul fyrir umhverfisvænan iðnað og uppbyggingu.

En hvort tveggja krefst þess að við munum geta haldið áfram að skapa verðmæti úr auðlindum okkar á næstu árum.

Aðstæður til fjármögnunar og staða stærstu orkufyrirtækja okkar býður ekki upp á við einblínum á opinbera lánsfjármögnun með skatt- og útsvarsgreiðendur sem bakhjarla.

Ég hef talað fyrir því að við fáum einkafjármagn inn í sjálfa orkuvinnsluna og þá til dæmis með verkefnafjármögnun þar sem innlendir eða erlendir einkaaðilar geti komið með eigið fé og ávaxtað það í tiltekinn tíma í samstarfi við það orkufyrirtæki sem fær nýtingarréttinn.

Þetta er ekki það sama og telja að opinberir aðilar eigi að fara að selja orkufyrirtækin. Erfitt við aðkomu Magma að kaupa upp í stað þess að koma inn í verkefni tímabundið.

Með einni undantekningu hefur þróun síðustu ára verið sú að ríkið hefur verið að kaupa orkufyrirtæki eða auka eignarhlut sinn í þeim.

Þegar horft er til verkefna dagsins tel ég rétt að ríkið marki sér eigendastefnu fyrir eigin orkufyrirtæki en þau eru Landsvirkjun, Rarik og Orkubú Vestfjarða.

Þar tel ég að fyrsta atriðið eigi að vera að ríkið setji fram þau stefnu að eignahlutir í þessum fyrirtækjum verði ekki seldir..

Hins vegar á að setja eignarhaldinu samfélagsleg markmið um sjálfbæra uppbyggingu í þágu verðmætasköpunar og benda á leiðir til að ná slíkum markmiðum án þess að velta áhættunni á almenning.

Rökin fyrir þessari nálgun er að við viljum þrátt allt hafa einhver samfélagsleg áhrif á þá orkunýtingarstefnu sem rekin er.

Til hvaða verkefna verður orkan okkar seld? Hvernig á að velja? 

Ekki er víst að eignarhaldið verði alltaf leiðin til þess að tryggja slík áhrif.

Kannski eigum við eftir að sjá sáttmála eigenda auðlindarinnar við orkufyrirtækin sem fá tímabundin leyfi til nýtingar? 

Þetta eru sumsé stórar spurningar og því engin tilviljun að fyrir rúmu ári síðan skipaði ég stýrihóp sem var falið það hlutverk að móta heildstæða orkustefnu fyrir Ísland. Einn hvatinn er tankskipið.

Stýrihópurinn hefur komist nokkuð langt í sinni vinnu og snemma í sumar voru frumdrög að orkustefnu send út til umsagnar.

Stýrihópurinn hefur nú farið yfir þær umsagnir og tekið tillit til margra þeirra og á næstu vikum er stefnt að því að birta endurbætt drög á heimsíðu verkefnisins, drög sem allir sem á því hafa áhuga geta gert athugasemdir við.

Stýrihópurinn er þar staddur í starfi sínu að eðlilegt er að hann hafi forgöngu um opinbera umræðu um ýmis lykilatriði.

Þeirra á meðal er spurningin um það hvernig ríkið eigi að haga gjaldtöku fyrir nýtingarrétt á auðlindum sínum.

Með lögum sem sett voru á Alþingi á vormánuðum 2008, um breytingar á ýmsum lögum á orkusviði, var tryggt að ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum, sem alfarið eru í eigu þeirra,væri óheimilt að framselja beint eða óbeint og með varanlegum hætti eignarrétt að jarðhita og grunnvatni umfram heimilis- og búsþarfir.

Með fyrrgreindum lögum frá 2008 var í bráðabirgðaákvæði þrjú, kveðið á um að forsætisráðherra skyldi skipa nefnd til að fjalla um fyrirkomulag varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttinum í eigu ríkisins.

Jafnframt segir í lögunum:

„Nefndin skal í störfum sínum fjalla um leigugjald, leigutíma, endurnýjun leigusamninga og önnur atriði er lúta að réttindum og skyldum aðila. Þá skal nefndin meta hvaða aðgerða sé þörf til að tryggja í senn sjálfbæra og hagkvæma nýtingu auðlindanna. Í störfum sínum skal nefndin m.a. hafa til hliðsjónar reynslu annarra þjóða. Þá skal nefndin huga að því með hvaða hætti verði valið á milli þeirra sem áhuga hafa á að nýta auðlindirnar. “ 

Nefndin, sem starfaði undir formennsku Karls Axelssonar,  skilaði af niðurstöðum sínum í ítarlegri skýrslu í mars á þessu ári. 

Á grundvelli niðurstaðna nefndarinnar, er nú hafin vinna fulltrúa forsætisráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um að færa niðurstöður nefndarinnar í lögformlegan búning.

Vinnunni á að ljúka með framlagningu frumvarps í haust, varðandi gjaldtöku fyrir nýtingu vatnsréttinda í eigu ríkisins, tímalengd samninga o.fl.

Þá er í gangi vinna starfshóps um endurskoðun lagaramma orkuvinnslu sem hefur það markmið að tryggja samfélagslegt forræði á mikilvægustu orkufyrirtækjum.

Eins og ég tók fram í upphafi máls míns og hef áður sagt í þessum sal þegar verkefni orkustefnunefndar var fyrst kynnt, þá  tengist skipan orkumála óhjákvæmilega auðlindastefnu þjóðarinnar að öðru leyti.

Verkefnið er það sama: Að sameina hámarksarð eigenda auðlindarinnar, arðsemi sjálfrar uppbyggingarinnar eða fjárfestingar í orkuvinnslu um leið og skapaður er nægilegur stöðugleiki til að langtímafjárfesting sé yfirleitt fýsilegur kostur.

Við þurfum að skoða hvernig beri að haga rannsóknum að auðlindum í eigu ríkisins, aðgangi að þeim , þ.e. fyrirkomulagi varðandi úthlutun á nýtingarrétti og leyfi til rannsókna og nýtingar og hvernig beri að haga vali á milli umsækjenda og eftir hvaða aðferðarfærði valið eigi að fara fram.

Í heildstæðri orkustefnu fyrir Ísland hlýtur einn mikilvægasti kaflinn að fjalla um það hvernig haga beri afgjaldi af orkuauðlinum í ríkiseigu því á fáum stöðum er orkuvinnsla og nýting náttúruauðlinda jafn samtvinnuð og hér á landi.

Í vinnu sinni mun stýrihópurinn að sjálfsögðu nýta niðurstöður nefndar forsætisráðuneytis , og leitast við að svara fleiri spurningum og álitaefnum. Því var ákveðið að kalla til þessa fundar í dag til að ræða þessi mál.

Ég vænti þess að framsögur og umræður hér í dag varpi enn frekari ljósi á þennan mikilvæga þátt og að stýrihópur um heildstæða orkustefnu fá innlegg og efni til að nýta í sinni vinnu.

Gaman að hitta ykkur hér í dag og takk fyrir ykkar framlag til þessarar vinnu.