Hagvaxtarstefna Asíulanda - Lærdómar fyrir Ísland
Góðir gestir
Ég vil byrja á því að þakka fundarboðendum fyrir að standa fyrir þessari umræðu og fá hingað virtan fræðimann til að ræða hvaða lærdóma við getum dregið af öðrum þjóðum til að viðhalda hagvexti.
Nú er einmitt rétti tíminn til að reyna að skyggnast aðeins lengra fram í tímann til að byrja að byggja undir þau skilyrði sem verða að vera til staðar svo atvinnulífið geti vaxið og dafnað jafnt og þétt.
Viðbrögð stjórnvalda við hruni fjármálakerfisins og þess snarpa efnahagssamdráttar sem fylgdi í kjölfarið hafa ekki síst miðað að því að halda hjólum efnahagslífsins gangandi og lágmarka atvinnuleysi.
Samhliða höfum við lagt áherslu á að horfa til framtíðar og skapa forsendur fyrir þeirri verðmætasköpun sem er eina raunverulega leiðin út úr efnahagssamdrætti.
Aðstæður hér á landi hafa um margt verið sérstakar og gert okkur erfiðara fyrir að beita hefðbundnum tímabundnum örvunaraðgerðum til að yfirvinna fjármálakreppuna.
Þar ber hæst að við lentum í alvarlegri gjaldeyriskreppu sem krefst peningalegs aðhalds eigi að takast að losa um hin skaðlegu gjaldeyrishöft sem fyrst.
Forgangsverkefnin hafa því verið að ná tökum á skuldasöfnun ríkissjóðs og endurheimta stöðugleika í gengismálum til að skapa forsendur fyrir lækkandi vöxtum og aðgangi íslensks atvinnulífs að fjármögnun með auknu trausti á íslensku atvinnu- og efnahagslífi.
Það er ekki sársaukalaust að takast á við ríkissjóðshalla upp á 215 milljarða eða 15% af landsframleiðslu og snúa þróuninni við. Til að verja tækifæri til hagvaxtar var farin blönduð leið niðurskurðar og tekjuöflunar. Verkefninu má í raun líkja við línudans þar sem ná verður árangri án þess að draga um of úr eftirspurn eða veikja stöðu atvinnulífsins. Fáir kostir eru góðir, hvað þá óumdeildir.
En árangurinn er að koma í ljós. Hallinn var kominn niður í 140 milljarða í lok síðasta árs sem er 6 prósentustiga viðsnúningur. Til að varpa ljósi á raunverulegan niðurskurð í sjálfum rekstri ríkisins má benda á að útgjöld ríkissjóðs án vaxtagjalda hafa lækkað úr nærri 44% af vergri landsframleiðslu á árinu 2008 í um 33% af í fyrra og áætlað er að þau verði um 29% á þessu ári.
Vaxtagjöldin hafa því miður hækkað verulega en forsenda þess að verja velferðarkerfið og draga úr samkeppni ríkissjóðs við atvinnulífið í landinu um fjármagn er að taka áfram á ríkisfjármálunum af sömu festu og gert hefur verið.
Sé litið til áhrifa aðgerðanna á efnahagslífið er ekki hægt að segja annað en okkur hafi tekist að feta einstigið. Þrátt fyrir harkalegar aðgerðir stjórnvalda í ríkisfjármálum mældist hagvöxtur síðustu tvo ársfjórðunga sem er mun fyrr en flestir spáðu. Þá hefur störfum líka fjölgað hraðar og atvinnuleysi er minna en reiknað var með. Þótt það sé óásættanlega mikið er það með því lægsta sem gerist meðal ríkja OECD og lægra en meðaltal bæði ESB ríkja og Bandaríkjanna.
Enda höfum við gripið til margvíslegra örvunaraðgerða. Arðbærar stórframkvæmdir á vegum opinberra aðila hafa haldið áfram auk þess sem hvatt hefur verið til viðhalds- og endurbótaverkefna með skattaívilnunum.
Þegar eldgos í Eyjafjallajökli ógnaði hagsmunum ferðaþjónustunnar, einnar mikilvægustu útflutningsgreinar okkar, var ákveðið að leggja 700 milljónir kr. af opinberu fé í markaðsátakið Inspired by Iceland. Þar tóku opinberir aðilar og fyrirtæki í ferðaþjónustunni höndum saman með eftirminnilegum hætti. Tölur um fjölda ferðamanna til landsins og bókanir hjá ferðaþjónustuaðilum benda til þess að markverður árangur hafi náðst.
Við höfum líka verið að horfa lengra fram á veginn. Fyrir utan það almenna verkefni að skapa almennan stöðugleika og hagstætt rekstrarumhverfi fyrir atvinnulíf, m.a. með umsókn um aðild að Evrópusambandinu og stefnu á upptöku evru, höfum við beint sjónum að þáttum á borð við nýtingu orkulinda okkar og erlenda fjárfestinga.
Alþingi hefur afgreitt tvo sértæka fjárfestingarsamninga, annars vegar vegna álvers í Helguvík og hins vegar gagnavers í Reykjanesbæ. En mikilvægast er samt að búið er að setja almennan lagaramma utan um ívilnanir vegna erlendra fjárfestinga. Næsta skref er svo að rýna hvernig við höfum staðið að því að laða hingað erlendar nýfjárfestingar og móta stefnu í því hvernig stjórnvöld, opinberar stofnanir og sveitarfélög geta staðið sig enn betur.
Stýrihópur um mótun heildstæðrar orkustefnu er að ljúka störfum með opnu samráði um tillögur sínar. Þar er leitað svara við mikilvægum spurningum á borð við þá hvernig við getum nýtt endurnýjanlegar orkuauðlindir okkar markvissar sem drifkraft til verðmætasköpunar í atvinnulífinu.
Þá er vinna við Sóknaráætlun fyrir Ísland á lokastigi en þar verður sérstök áhersla lögð á að tryggja samkeppnishæfni landsins alls.
En það er ekki markmið stjórnvalda að velja atvinnugreinar eða fyrirtæki heldur skapa frjósaman jarðveg. Ég vil heldur horfa til þess að við reynum að tryggja að hér vaxi upp fyrirtæki sem skapa mikil verðmæti með framleiðni, byggja á þekkingu, tækni og verðmætum mannauði.
Stefna okkar í menntamálum og stuðningur við nýsköpun og þróun skiptir því sköpum til lengri tíma litið.
Nú síðast hefur verið tekið til við að móta betra skattaumhverfi fyrir sprotafyrirtæki hvað varðar m.a. fjárfestingu og rannsóknir og þróun.
Í niðurskurði ríkisútgjalda hefur samkeppnissjóðum atvinnulífsins og öllum stuðningi við frumkvöðla og sprotafyrirtæki verið hlíft enda sjáum við mikla grósku í þeim geira.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands brást við efnahagssamdrættinum svo eftir hefur verið tekið utan landsteinanna. Frumkvöðlasetrin eru nú orðin átta talsins og þar hafa orðið til yfir 200 ársverk.
Nýjar greinar á borð við tölvuleikjaiðnaðinn og aðrar þekkingargreinar hafa sótt í sig veðrið og við sjáum íslensk hugvitsfyrirtæki auglýsa eftir starfsfólki til nýrra verkefna.
Fyrir fámennt land er augljóst að við munum ekki keppa við stórþjóðir í vinnuaflsfrekum greinum. Mannauður og sérstaða sem byggist m.a. á náttúruauðlindum okkar og þekkingu á nýtingu þeirra, hlýtur að verða okkar leið til hagvaxtar. Ef okkur auðnast að skapa hér stöðugt og hagstætt rekstrarumhverfi kvíði ég engu.
En umræðan um hvert við stefnum og hvernig við náum markmiðum okkar er þörf og góð og því fagna ég þessum fundi.