NOTE: This article is more than 5 years old.
03 september 2003
/

Norræn barnaverndarráðstefna 2003

Fundarstjóri og ágætu fundargestir.

Það er mér bæði heiður og ánægja að fá tækifæri til að ávarpa ykkur við lok þessarar norrænu barnaverndarráðstefnu sem nú var haldin hér á landi í annað sinn undir yfirskriftinni innihaldsríkt líf auðgar alla (Et verdigt liv beriker alle). Norrænt barnaverndarsamstarf hófst með formlegum hætti í byrjun síðustu aldar og stendur því á styrkum stoðum. Fyrstu sérhæfðu íslensku barnaverndarstarfsmennirnir sóttu til dæmis menntun sína til hinna Norðurlandanna á sínum tíma.

Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, ávarpar gesti ráðstefnunnar.Viðfangsefni félagsmálaráðuneytis eru fjölmörg og margþætt, en líklega er enginn málaflokkur jafn viðkvæmur og vandmeðfarinn og barnaverndarmálin. Viðkvæmur vegna þess að í barnaverndarstarfi er fengist við verkefni sem foreldrar sjálfir takast á við undir venjulegum kringumstæðum og þeir telja óumdeilt sitt verksvið. Vandmeðfarinn af því að farið er inn á helgustu svið mannlegra samskipta.


Á barnaverndina reynir þegar foreldrar eru ekki í stakk búnir til að veita börnum sínum nauðsynlega umönnun vegna tiltekinna ástæðna. Í langflestum samfélögum manna er litið á það sem alvarlegt skipbrot að geta ekki tekist á við uppeldishlutverkið - það sárasta sem hent getur nokkurn mann. Þess vegna ber okkur að hlúa svo vel sem kostur er að barnaverndarstarfinu og leitast við að styðja foreldra til að axla þessa ábyrgð þrátt fyrir að á móti blási. Það krefst mikillar leikni í mannlegum samskiptum og skilnings á aðstæðum fólks við átakanlegar aðstæður að bjóða og veita aðstoð á þann hátt að hún komist vel til skila. Það er eitt af hinum vandasömu verkefnum barnaverndarstarfsmannanna.

Þá er ekki síður mikilvægt að barnaverndarstarfsmenn búi yfir kunnáttu og þekkingu til að geta kannað mál, sem barnaverndaryfirvöldum berast, hiklaust og með lögformlega réttum hætti þegar um er að ræða grun um misbrest í uppeldi barns eða grun um að barn sé beitt ofbeldi.

Markmið íslensku barnaverndarlaganna er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Er það fyrst og fremst gert með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við. Það geta verið kringumstæður í umhverfi barns sem leiða til þess að engin önnur leið finnist en fósturheimili og vönduð vinnubrögð við framkvæmd vistana barna utan heimilis eru mikilvæg. Áfram mun því verða þörf fyrir slík úrræði, þrátt fyrir að ævinlega sé fyrst leitað allra leiða til að aðstoða foreldra við að búa börnum sínum öruggt og umhyggjusamt heimili.

Forsenda þess að barnavernd standi undir nafni er að starfsmenn búi yfir sérþekkingu og hæfni á þessu sviði. Í íslenskum barnaverndarlögum er kveðið á um að íbúafjöldi að baki hverri barnaverndarnefnd sé að lágmarki 1.500 manns. Það skiptir miklu máli að samfélagseiningin sé nægjanlega fjölmenn; annars vegar svo hún geti ráðið sérhæft starfsfólk og hins vegar til að koma í veg fyrir að barnaverndarstarfsmenn séu of tengdir viðkomandi fjölskyldum. Ég tel mikinn vafa leika á að svo sé nú og er enn fremur þeirrar skoðunar að sú aðferð eigi að heyra sögunni til að valið sé í barnaverndarnefndir eftir pólitískum línum. Ég tel mikilvægt að barnaverndarnefndum hér á landi verði fækkað umtalsvert, þær gerðar öflugri og hafi yfir að ráða starfsfólki með fagþekkingu. Þannig yrðu þær enn betur í stakk búnar til að gegna skyldum sínum gagnvart börnunum.

Ísland hefur sett inn í áætlun sína, vegna formennsku í Norðurlandaráði árið 2004, tillögu um að gera úttekt á úrræðum inni á heimili barna sem þurfa á sérstakri aðstoð og stuðningi að halda. Ætlunin er að taka saman yfirlit frá öllum Norðurlöndunum um aðstoð og þjónustu til handa börnum og/eða fjölskyldum þeirra, sem reynst hefur vel, einkum með það að markmiði að koma í veg fyrir að barn þurfi að fara af heimili foreldra. Mér er kunnugt um að gott starf er víða unnið á þessu sviði. Yfirlit yfir þessa margþættu aðstoð myndi ekki einungis nýtast fjölskyldum sem skilgreindar eru "barnaverndarmál", heldur einnig fjölskyldum barna sem búa við fötlun og seinfærum foreldrum.

Það er ákaflega uppörvandi að sjá hve vel þessi ráðstefna er sótt og margir langt að komnir. Á undanförnum dögum hefur starfsfólki við barnavernd gefist einstakt tækifæri til að kynnast vinnubrögðum hvers annars og stefnum og straumum á sviði velferðar barna. Ég er þess fullviss að fróðleikurinn sem menn hafa tileinkað sér hér og ekki síður tækifærið til að hittast og bera saman bækur sínar verður barnaverndarstarfinu til hagsbóta.

Margir hafa lagt hönd á plóg við undirbúning ráðstefnunnar og undirbúningsnefndir starfað á öllum Norðurlöndunum. Þakka ég þeim öllum hjartanlega fyrir framlag þeirra. Undirbúningur hér heima var í höndum Barnaverndarstofu og Barnaheilla í samstarfi við ýmsa aðra. Íslenska undirbúningsnefndin hefur unnið gott starf og vil ég nota hér tækifærið og þakka sérstaklega Anni Haugen, félagsráðgjafa á Barnaverndarstofu, fyrir að hafa haldið vel utan um það starf.

Að lokum þakka ég erlendu gestunum sérstaklega fyrir komuna og óska þeim góðrar ferðar til heimalands.