Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi
Fundarstjóri, ágætu fundarmenn.
Það er mér mikil ánægja að ávarpa þennan aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Nú eru hafnir miklir uppgangstímar á Austurlandi og má ótvírætt halda því fram að það sé ekki síst mikilli þrautseigju og framsýni sveitarstjórnarmanna og annarra heimamanna að þakka að sú er raunin.
Þessum uppgangi munu óhjákvæmilega fylgja breytingar. Nú þegar hafa nokkur sveitarfélög á Austfjörðum sameinast með það fyrir augum að vera betur í stakk búin til að takast á við fólksfjölgun og aukna framkvæmdaþörf og jafnframt stefnir í að fleiri sameiningar fylgi í kjölfarið. Ég er viss um að þetta er góð þróun fyrir landsfjórðunginn allan og vona svo sannarlega að þær framkvæmdir sem nú standa yfir muni skila varanlegum árangri í byggðaþróun á Austurlandi.
Raunar má segja að svo víðtækar þjóðfélagsbreytingar hafi sjaldan átt sér stað á landsbyggðinni. Enginn vafi leikur á því í mínum huga að horft verður til þeirrar reynslu sem nú fæst þegar kemur að því að ákveða hvort haldið verður áfram með uppbyggingu stóriðju hér á landi. Það er því afar mikilvægt að sveitarstjórnir á Austurlandi standi saman í þessu máli og sýni ábyrgð, og að það verði hagsmunir heildarinnar sem hafðir verði að leiðarljósi við ákvarðanatöku.
Ríkisstjórnin gerir sér vitaskuld vel grein fyrir þýðingu málsins og hefur hún beitt sér af alefli fyrir því að leysa ýmis mál sem upp hafa komið í tengslum við framkvæmdirnar. Má þar nefna sem dæmi að fengist hefur leyfi til að skrá lögheimili starfsmanna við gerð Kárahnjúkavirkjun í þeim sveitarfélögum sem þar liggja að, en slíkt hefur ekki áður verið gert hér á landi. Með þessu er tryggt að sveitarfélögin njóti tekna af framkvæmdunum á meðan þær standa yfir, eins og sanngjarnt er.
Eins og þið eflaust þekkið samþykkti fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga ályktun á sl. vori um átak í sameiningu sveitarfélaga. Þar sem ég kem sjálfur úr röðum sveitarstjórnarmanna er ég að sjálfsögðu hlynntur þessum tillögum, þótt hugsanlega þurfi að útfæra ýmis atriði þeirra nánar.
Að tillögu minni samþykkti ríkisstjórnin í fyrradag að skipuð verði nefnd sem fær það hlutverk að undirbúa og leggja fram tillögur um breytta sveitarfélagaskipan. Nefndin mun móta tillögur sínar með hliðsjón af sjónarmiðum hlutaðeigandi sveitarstjórna, landshlutasamtaka og landfræðilegra og félagslegra aðstæðna, með það að markmiði að hvert sveitarfélag myndi heildstætt atvinnu- og þjónustusvæði.
Jafnframt hefur ríkisstjórnin samþykkt tillögu mína um að skipuð verði nefnd til að aðlaga tekjustofna sveitarfélaga að nýrri sveitarfélagaskipan. Nefndin mun m.a. kanna hvort tekjustofnar sveitarfélaga séu í samræmi við lögskyld og venjubundin verkefni sveitarfélaga.
Til að samræma vinnu þessara tveggja nefnda verður svo skipuð þriggja manna verkefnisstjórn, sem mun hafa yfirumsjón með sameiningarátakinu og tryggja nauðsynlegt upplýsingastreymi milli þessara vekefna. Þá verður verkefnisstjórninni falið að gera tillögur um hvaða verkefni sé unnt að færa frá ríki til sveitarfélaga í því augnamiði að treysta sveitarstjórnarstigið og efla sjálfsforræði byggðarlaga. Í þessari vinnu verður haft að leiðarljósi að verkaskipting ríkis og sveitarfélaga skuli vera skýr og því ekki útilokað að fram komi tillögur um flutning verkefna í hina áttina einnig, þ.e. frá sveitarfélögum til ríkisins.
Gert er ráð fyrir því að verkefnisstjórnin og nefndirnar tvær taki til starfa í október nk. og að störfum þeirra verði þannig hagað að hægt verði að kjósa um tillögur sameiningarnefndarinnar eigi síðar en vorið 2005.
Ég tel engan vafa leika á því að sameiningarátakið verður eitt mikilvægasta málið í mínu ráðuneyti á því kjörtímabili sem nú er nýhafið. Það er þó fjarri því eina málið sem haft getur þýðingu fyrir sveitarfélögin og gæti ég nefnt fjölmörg mál í því sambandi.
Það mál sem mesta umfjöllun hefur fengið frá því ég tók við embætti eru vitaskuld húsnæðismálin. Þar er að störfum starfshópur sem gera á tillögur um hækkun hlutfalls húsnæðislána og mun hann væntanlega skila tillögum fyrir lok þessa árs. Ég bind miklar vonir við að ná árangri í þessu máli og tel að um sé að ræða mál sem skipti miklu máli fyrir alla landsmenn, en þó sérstaklega fyrir ungt fólk.
Ennfremur fer fram vinna við endurskoðun félagslega húsnæðiskerfisins, m.a. varðandi leiguíbúðir og viðbótarlán, og vonast ég til þess að niðurstaðan úr allri þessari vinnu verði heildstæð og framsækin húsnæðisstefna, sem tekur á öllum þeim úrræðum sem nauðsynleg eru í nútíma samfélagi.
Af öðrum málum má nefna að á næstunni mun hefjast vinna við heildarendurskoðun sveitarstjórnarlaga. Þótt gildandi lög séu ekki orðin gömul er margt í þeim sem þarfnast endurskoðunar en að auki kann fyrirhuguð fækkun sveitarfélaga að kalla á breytingar, t.d. að því er varðar eflingu íbúalýðræðis.
Jafnframt hef ég ákveðið að skipa nefnd til þess að endurskoða lög um kosningar til sveitarstjórna. Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar var mikil umræða um hvort breyta ætti lögunum til að heimila rafrænar kosningar. Þetta er mál sem ég tel sjálfsagt að skoða betur.
Enn má nefna að á komandi þingi hyggst ég leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um vatnsveitur sveitarfélaga. Gildandi lög eru komin nokkuð til ára sinna og er þörf á að gera ýmis ákvæði þeirra skýrari, svo sem varðandi gjaldtöku og rekstrarform vatnsveitna.
Loks tel ég rétt að geta þess að innan skamms er væntanleg skýrsla starfshóps sem á að skila tillögum um framtíðartilhögun á samstarfi sveitarfélaganna og stjórnvalda um EES-mál. Fremur stutt er síðan sveitarfélögin vöktu fyrst máls á því að þau kæmu með nánari hætti að því starfi sem unnið er á vettvangi EES-samningsins. Þegar samningurinn var gerður áttuðu menn sig engan veginn á því hve víðtæk áhrif hann hefði á sveitarfélögin. Ef til vill var það ekki nema von, því hvergi í texta samningsins er minnst svo mikið sem einu orði á sveitarstjórnarstigið. Dæmin hafa hins vegar sannað að virk hagsmunagæsla Sambands íslenskra sveitarfélaga er nauðsynleg á þessu sviði, ekki síður en öðrum.
Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á það undanfarin misseri að byggja upp gott samstarf við Samband Íslenskra Sveitarfélaga og að mínu mati sýnt mikinn vilja til þess að sveitarfélögin komi meira að mótun löggjafar, jafnframt því að fulltrúar þeirra séu upplýstir um þróun mála á vettvangi Evrópusamstarfsins.
Utanríkisráðuneytið hefur sl. tvö ár falið sérstökum starfsmanni ráðuneytisins að annast tengsl við sveitarfélögin varðandi málefni EES-samningsins. Sérstakri ráðgjafanefnd hefur einnig verið komið á fót til að stuðla að þátttöku sveitarfélaga í nauðsynlegu samstarfi um þróun EES-reglna á þeim sviðum er þau varðar.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur líka gert breytingar á sínu innra starfi til að takast á við Evrópumálin. Nefnd sem heyrir beint undir stjórn sambandsins fjallar nú um þau mál og með henni starfa sérfræðingar á þeim málefnasviðum sem til umfjöllunar eru hverju sinni. Sambandið er líka að auka þátttöku sína í erlendu samstarfi, með sérstaka áherslu á Evrópumálin.
Fyrstu skrefin í þessum efnum hafa tekist vel en það er líka mikilvægt að sveitarfélögin horfi til þess af fullri alvöru að skipa sér á bekk með ríkisvaldinu og ýmsum sveitarfélaga á Norðurlöndum, sem hafa eigin fulltrúa til að sinna hagsmunagæslu í Brussel. Þetta gæti sambandið hugsanlega gert í samstarfi við önnur samtök norrænna sveitarfélaga, nú eða e.t.v. okkur í félagsmálaráðuneytinu.
Á vettvangi ESB ræða menn nú framtíð Evrópu. Í sama skyni er mikilvægt að við Íslendingar ræðum framtíð okkar í Evrópu. Vissir þættir í stefnu sambandsins eru með þeim hætti að innganga í ESB hefur fram til þessa vart þótt koma til greina af okkar hálfu. Undanfarin tíu ár hefur EES-samningurinn líka þjónað okkur vel en því má ekki gleyma að hann byggist á samheldni EFTA-þjóðanna sem að honum standa. Ef til dæmis Noregur ákveður að ganga í ESB er ljóst að forsendur samningsins yrðu tæpast lengur fyrir hendi og þá verðum við að leita nýrra leiða í Evrópusamstarfinu.
Við skulum heldur ekki gleyma því að framtíð Íslands er og verður samofin framtíð Evrópu og á þessa framtíð viljum við hafa áhrif sem einstaklingar, sem íbúar sveitarfélaga, og sem þjóð sem ávallt hefur haft metnað til að ráða örlögum sín. Ég tel því afar mikilvægt að við höldum áfram að skoða möguleikann á aðild að Evrópusambandinu og höldum málinu á lofti í pólitískri umræðu.
Þar sem ég hef ekki verið lengi í embætti eru að sjálfsögðu ýmis stefnumál mín enn í mótun og verður kynning þeirra að bíða betri tíma. Ég vænti góðs samstarfs við sveitarstjórnir og samtök þeirra á kjörtímabilinu og verð ávallt tilbúinn að hlusta á og íhuga allar góðar tillögur sem þau kunna að hafa fram að færa.
Að lokum vil ég aftur þakka Stjórn SSA fyrir að fá boð um að ávarpa þennan aðalfund sambandsins.
Takk fyrir.