Rannsóknarsetur í húsnæðismálum á Bifröst
Rektor, nemendur, góðir gestir.
Það er mér sérstök ánægja að vera viðstaddur skólasetningu hér að Bifröst að þessu sinni. Enn og aftur er tilfinningin fyrir mig eins og að vera kominn heim. Ég sagði frá því hér í vor, við skólaslit, hve ríka taug þessi staður á í mér sem gömlum Bifrestingi. Það er gaman að tilheyra þeim hópi, ekki síst nú á dögum, þar sem skólinn er enn og aftur að sanna getu sína og burði í íslensku menntalífi.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst stendur á gömlum merg, um hann hafa alltaf leikið ferskir vindar, uppbygging hans hefur jafnan byggt á framsýni og hugsjónum. Þannig er það enn.

Frá undirritun samkomulagsins, f.v. Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs,
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra og Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst.
Tilefni þess að við erum hér nú, fulltrúar félagsmálaráðuneytis, er undirritun samninga við skólann og Íbúðalánasjóð, um stofnun sérstaks rannsóknaseturs í húsnæðismálum. Seturs sem við teljum að muni í náinni framtíð gegna veigamiklu hlutverki því húsnæðismál hafa víðtæk áhrif á samfélagið allt. Má þar jafnt líta til félagslegs þáttar þeirra, efnahagslegs og hagfræðilegs. Þrátt fyrir mikilvægi málaflokksins hafa húsnæðismál til þessa ekki mikið verið skoðuð út frá hagrænu og efnahagslegu sjónarmiði.
Ég tel afar mikilvægt að rannsaka þróun í húsnæðismálum landsmanna á undanförnum árum og þá ekki síst efnahagsleg áhrif þeirrar þróunar. Enn fremur er brýnt að fylgjast náið með áhrifum þeirra breytinga sem framundan eru húsnæðiskerfinu, með tilkomu 90% lána fyrir allan almenning. Þær breytingar þarf að verða hægt að meta á fræðilegan hátt. Með nákvæmu utanumhaldi og rannsóknarvinnu öðlumst við þekkingu sem gerir okkur kleift að halda áfram að þróa húsnæðiskerfið þannig að það geti sem best þjónað viðskiptavinum sínum, íbúðakaupendum, en um leið tekið ríkt mið af efnahagslegum aðstæðum í landinu.
Eitt fyrsta verkefnið sem rannsóknasetrinu verður falið er gert með sérstöku samkomulagi við félagsmálaráðuneyti og Íbúðalánasjóð en það lýtur að gagnaöflun og úrvinnslu upplýsinga. Sérstaklega verður greitt fyrir þá vinnu og þannig lagður grunnur að því frjóa rannsókna- og þróunarstarfi sem mikilvægt er að hefjist sem fyrst á þessu sviði, hér að Bifröst.
Ég tel raunar rannsóknarefnin á þessu sviði óþrjótandi. Það má benda á að húsbréfakerfið var lykilatriði í uppbyggingu á heilbrigðum verðbréfamarkaði hér á landi. Meirihluti viðskipta í Kauphöll Íslands er með húsbréf og húsnæðisbréf en án þeirra væri íslenskur fjármálamarkaður vafalítið ekki eins virkur og hann er.
Þá er innkoma erlendra fjárfesta á íslenskan skuldabréfamarkað mikilvæg. Þeir aðilar fjárfesta fyrst og fremst í skuldabréfum sem tengjast húsnæðislánakerfinu og það er að mínu viti mikilvægt að fylgjast á fræðilega hátt, með því hver áhrif þessa sérstaklega munu verða á húsnæðismarkað hér á landi. Við höfum þegar sé þessa þróun leiða til yfirverðs á húsbréfum með lækkandi ávöxtunarkröfu, en hver verða áhrifin til lengri tíma litið, á íslenskan fjármálamarkað og íslensk efnahagsmál yfirhöfuð? Þar er spennandi viðfangsefni fyrir höndum, ekki síst fyrir framsækna og metnaðarfulla menntastofnun eins og Viðskiptaháskólinn á Bifröst er.
Ágætu tilheyrendur.
Ég sagði í upphafi að það væri mér sérstök ánægja að vera hingað kominn af þessu tilefni. Sú ánægja markast vissulega ekki einvörðungu af því hvaða taugar ég ber til staðarins og þeirrar starfsemi sem hér fer fram. Hún markast ekki síður af því að hér er starfræktur háskóli sem byggir á 85 ára gömlum traustum grunni. Háskóli sem alla tíð hefur borið gæfu til að bindast atvinnulífinu í landinu sterkum böndum. Háskóli þar sem hefð er fyrir fræðilegum rannsóknum en nú er lögð stóraukin áhersla á þær. Háskóli sem nýtur trausts og virðingar í samfélaginu og raunar víða um heim, sem sést m.a. af þeim stuðningi sem Evrópusambandið kaus nýlega að veita skólanum til uppbyggingar rannsókna sinna.
Ég veit að þetta mikilvæga verkefni er komið í góðar hendur og hlakka til að eiga við ykkur samstarf um það. Nemendum og kennurum óska ég allra heilla, nú tekur við enn einn viðburðaríkur vetur á Bifröst – gangi ykkur vel í náminu og það sem ekki skiptir síður máli hér á þessum reit – góða skemmtun!