NOTE: This article is more than 5 years old.
19 júní 2003
/

Þjónustumiðstöðin Sjónarhóll

Ágætu tilheyrendur.

Ég óska fjölskyldum barna með sérþarfir til hamingju með stofnun þessarar þjónustumiðstöðvar.

Hér er verið að hleypa af stokkunum verkefni sem hefur það að markmiði að veita þeim foreldrum barna sem eiga við langvinna eða ólæknandi sjúkdóma, varanlega fötlun eða eru með þroskafrávik, stuðning til að fóta sig í nýju og erfiðu hlutverki. Það er í mínum huga afar brýnt að foreldrar sem standa í þessum sporum fái þann stuðning sem er nauðsynlegur til þess að þeir geti veitt börnum sínum umhyggju og aðstoð sem þau þurfa á að halda. Þessi stuðningur þarf að vera þess eðlis að hann sé samræmdur og að allir aðilar sem að koma geri sér grein fyrir hlutverkum sínum og ábyrgð.

Ríki, sveitarfélög og hagsmunasamtök hafa því hér hver með sínum hætti veigamiklu hlutverki að gegna. Hlutverk hagsmunasamtaka skiptir ekki síst miklu máli. Þau eiga að hafa það hlutverk að þrýsta á og veita stjórnvöldum aðhald, skapa umræðu, og leita nýrra leiða. Frumkvæðið sem sýnt er hér í dag er afar virðingarvert og til fyrirmyndar, en með því er skapaður grundvöllur fyrir frekara samstarfi þessara aðila um framkvæmd þjónustu á þessum vettvangi og um mótun almennra velferðarsjónarmiða í landinu.

Þess vegna hefur ríkisstjórnin ákveðið skoða sérstaklega á hvern hátt hún geti stutt við bakið á áformum þeim, sem hér eru kynnt, um samræmda þjónustu og liðveislu við foreldra fatlaðra og langveikra barna. Jafnframt þarf að athuga hvernig tryggja má að þau stoðkerfi fyrir foreldra barna með sérþarfir, sem hið opinbera hefur byggt upp, vinni markvisst og í samræmi við þau markmið sem við höfum sett okkur. Öll getum við verið sammála um að markmiðið er ekki að bæta við nýjum kerfum og fjölga þeim aðilum sem starfa á þessum vettnvagi, heldur er markmiðið miklu fremur það að tryggja að hinn samfélagslegi stuðningur sé ávallt í samræmi við þarfir og að samræmdar aðgerðir tryggi bestu lausnir í velferðarþjónustunni. Þremur ráðuneytum hefur því verið falið að skoða málefni þjónustumiðstöðvarinnar og meta á hvern hátt ráðuneytin geti, við framkvæmd lögbundinna verkefna sinna, nýtt sér starfsemi hennar og hugmyndafræði.

Félagsmálaráðuneytið hefur í tilefni af ári fatlaðra 2003 átt frumkvæði að því að ráðuneyti og stofnanir skilgreini verkefni sem þau geta unnið að til þess að leggja sitt af mörkum til betra samfélags fyrir alla. Lögð er áhersla á að vinna með viðhorf þeirra sem starfa innan hinnar opinberu þjónustu ásamt því sem almenningur verður kallaður til ábyrgðar.

Ég mun sem félagsmálaráðherra leggja áherslu á skoða möguleika á að styrkja fyrstu aðstoð við fjölskyldur barna með sérþarfir. Rétt er í því sambandi að greina frá því að í haust mun Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins standa fyrir ráðstefnu um hagi þeirra fjölskyldna sem til hennar leita. Vænst er þess að umræðan gefi okkur veigamiklar vísbendingar um það á hvern hátt við getum bætt þá þjónustu sem veitt er, en að því stefnum við heilshugar.

Ágætu tilheyrendur,
Sjónarhóll, nafn hinnar nýju þjónustumiðstöðvar gefur vísbendingu um að horfa eigi vítt. Ég vona því að víðsýnin og frumkvæðið verði starfsemi þessarar þjónustumiðstöðvar gott veganesti inn í framtíðina.

Megi þessari starfsemi vel farnast í framtíðinni.