NOTE: This article is more than 5 years old.
10 júní 2003
/

Nýjar íbúðir Blindrafélagsins

Ágætu tilheyrendur.

Í dag fögnum við áfanga í búsetumálum fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu þegar sex nýjar íbúðir fyrir blinda og sjónskerta eru teknar í notkun hér að Hamrahlíð 17. Blindrafélagið sem á sér langa sögu sýnir hér mikla framsýni með því að takast á við breyttar kröfur á breyttum tímum með því að breyta íbúðarherbergjum, sem áður þóttu hentug fyrir blinda og sjónskerta, í takt við nútímakröfur. Sjálfsagt hefur hugmyndin um breytingarnar á sínum tíma þótt fjarri lagi þar sem þær kölluðu á aukinn kostnað og breytingar á aðstæðum fólks hér í húsinu. Blindrafélagið tókst þó á við þessar breytingar og hefur félagið þurft að leggja á sig heilmikla vinnu til þess að þær gætu orðið að veruleika.

Oft er það þannig að við óttumst breytingar og trúum því að þær færi okkur ekkert annað en erfiðleika. Það er ljóst að breytingar kalla á áskoranir og stundum finnst mönnum erfitt að takast á við þær. Þær gera kröfur til þess að fólk breyti um afstöðu, endurskoði hluti og jafnvel hugsi þá upp á nýtt. Það liggur í eðli hagsmunasamtaka eins og Blindrafélagsins að berjast fyrir breyttum hag þeirra sem þau eru fulltrúar fyrir.

Blindrafélagið hefur í lögum sínum skilgreint tilgang félagsins sem er að vinna að hagsmunamálum blindra og sjónskertra, þannig að þeir njóti jafnréttis á við aðra og geti tekið þátt í samfélaginu eins og hugur hvers og eins stendur til. Út frá þessum tilgangi hefur félagið skilgreint leiðarljós sem eru metnaðarfull og til þess fallin að grípa heildstætt á málefnum blindra og sjónskertra.

Það er því ánægjuefni að mörg þeirra brýnu hagsmunamála sem Blindrafélagið hefur beitt sér fyrir á undanförnum árum og áratugum hafa náð brautargengi. Blindrafélagið hefur staðið öflugan vörð um atvinnumál blindra og sjónskertra og staðið að uppbyggingu og rekstri Blindravinnustofunnar. Önnur brýn hagsmunamál eins og starfræksla Blindrabókasafnsins og Sjónstöðvar Íslands hafa einnig komið til, meðal annars vegna baráttu Blindrafélagsins.

Með opnun þessara íbúða hér í dag sannfærumst við enn frekar um að Blindrafélagið hefur áfram metnað til þess að láta draumana rætast. Þær breytingar sem hér um ræðir eru miklar. Einstaklingsherbergjum, sem ekki fullnægðu nútímabúsetukröfum, var breytt í fullgildar tveggja herbergja íbúðir sem eru um 60-64 m2.

Að fjármögnun þessara framkvæmda hafa staðið Íbúðalánasjóður og Framkvæmdasjóður fatlaðra. Ég hef upplýsingar um það að kostnaðaráætlun verksins hafi staðist í öllum aðalatriðum.

Þjónustan við íbúana verður veitt í samstarfi Félagsþjónustunnar í Reykjavík og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og hefur það samstarf verið til fyrirmyndar.

Ég vil óska öllum hlutaðeigandi til hamingju með þennan áfanga í búsetumálum blindra og sjónskertra á Íslandi.