17. nóv. 2021Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mál nr. 399/2021 - Úrskurður
Meðlag. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að senda Innheimtustofnun sveitarfélaga beiðni um innheimtu á greiddu meðlagi til barnsmóður kæranda, vegna tímabilsins 1. apríl 2018 til 28. febrúar 2021. Þar sem fyrir liggur lögformleg meðlagsákvörðun um að kærandi skuli greiða barnsmóður sinni meðlag frá 1. apríl 2018 telur úrskurðarnefnd velferðarmála að innheimta beri meðlagið hjá honum í samræmi við þá ákvörðun, enda var barnsmóður hans greitt bráðabirgðameðlag frá þeim tíma.