10. mar. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Tímamótasamningur um starfsendurhæfingu ungs fólks
Undirritaður hefur verið þríhliða samningur milli Sjúkratrygginga Íslands, VIRK starfsendurhæfingarsjóðs og Janusar endurhæfingar ehf. um samþætta og þverfaglega heilbrigðis- og starfsendurhæfingarþjónustu við ungt fólk á aldrinum 18 til 30 ára með flókinn og fjölþættan vanda. Samningurinn tryggir þjónustu fyrir 80 einstaklinga sem falla undir skilgreiningu NEET, þ.e. sem eru ekki í vinnu, virkni eða námi og þurfa sérhæfða einstaklingsmiðaða þjónustu til að efla virkni og starfsgetu. Gert er ráð fyrir að árlegt fjármagn til þjónustunnar nemi um 330 milljónum króna.