09. nóv. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf
Sameiginlegar norrænar áskoranir ræddar á fundi félags- og heilbrigðisráðherra Norðurlanda
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, stýrði í dag fundi félags- og heilbrigðisráðherra Norðurlandanna sem haldinn var að frumkvæði Íslands. Ísland fer nú með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og Guðmundur Ingi er samstarfsráðherra Norðurlanda. Um aukafund var að ræða sem fram fór á netinu og sat Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, fundinn sömuleiðis fyrir hönd Íslands.