09. des. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Vegna umræðu um fjárveitingar til Samtakanna '78
Vegna ummæla framkvæmdastjóra Samtakanna ‘78 um að framlagi sé ekki úthlutað til verkefna samtakanna í fjárlögum fyrir árið 2024 vill forsætisráðuneytið árétta að gert er ráð fyrir að 40 milljónir sem runnið hafa til samtakanna á undanförnum árum muni áfram renna til þeirra til að sinna mikilvægum verkefnum í réttindabaráttu hinsegin fólks.