04. júl. 2011Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 109/2010
Mál þetta lýtur meðal annars að 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi var erlendis í 20 daga. Hún lét Vinnumálastofnun ekki vita af þeirri dvöl fyrir fram. Hegðun kæranda var ekki talin falla undir síðari málslið 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því var ekki hægt að beita því ákvæði við úrlausn málsins. Hinni kærðu ákvörðun var breytt í þá veru að kærandi glati rétti til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 1. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.