18. des. 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 16/2012
<p><strong> </strong></p>
<p>Í eftirlitsferð fulltrúa aðila vinnumarkaðarins var komið að kæranda við störf hjá fyrirtæki á meðan hann þáði atvinnuleysisbætur. Ákvörðun Vinnumálastofnunar skv. 1. mgr. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 23. gr. laga nr. 134/2009 sbr. og 4. gr. laga nr. 103/2011, og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar var staðfest. Þá var einnig staðfest að kæranda bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.</p>