23. feb. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál
Stjórnandi nýrrar gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu skipaður
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing í velferðarráðuneytinu, til að fara með stjórn nýrrar gæða- og eftirlitstofnunar á sviði félagsþjónustu. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við niðurstöðu ráðgefandi nefndar sem mat Sigríði hæfasta úr hópi 22 umsækjenda um embættið.