03. ágú. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið
Tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals lokið og viðurkenningar veittar
Í dag lauk á jafnréttisþingi tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals sem staðið hefur frá árinu 2013. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra veitti þátttakendum viðurkenningar en markmið verkefnisins var að prófa jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012 og átta sig á umfangi innleiðingar hans, ávinningi og áskorunum.