- september 2026 /
Úrskurður nr. 375/2026
Hinn 27. ágúst 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 375/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25090126
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 17. september 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Mexíkó (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. september 2025, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Mexíkó og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 3. apríl 2025. Kvaðst kærandi hafa þurft að flýja Mexíkó því glæpasamtök hafi byrjað að ofsækja hann eftir að hann gagnrýndi samtökin.
Kærandi kom til forviðtals hjá Útlendingastofnun 8. apríl 2025 og efnismeðferðarviðtals 13. maí 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur í borginni [...] í [...] fylki og hafa búið í borginni [...] í Guanajuato fylki. Hann kvaðst hafa dvalið í Mexíkóborg í átta mánuði fram að flótta sínum. Kærandi kvaðst vera einhleypur og eiga tvær uppkomnar dætur, búsettar í [...] í Mexíkó ásamt tveimur barnabörnum hans. Kærandi kvaðst eiga föðursystkini og systkinabörn í móðurætt í Bandaríkjunum. Kærandi kvað heilsu sína vera mjög góða en hann hafi fundið fyrir [...] eftir að þau atvik áttu sér stað sem hafi leitt til flótta hans frá heimaríki. Kærandi kvaðst hafa átt tíma hjá sálfræðingi í heimaríki en hafa flúið áður en að honum kom. Kærandi hafi átt bíl, mótorhjól og fyrirtæki og unnið næturvaktir í verksmiðju.
Aðspurður um ástæður flótta greindi kærandi frá því að hafa reglulega hitt vini sína þegar hann hafi verið á leið á næturvakt. Þeir hafi hist í fótbolta í íþróttahúsi og eftir fótbolta hafi þeir stundum farið í áfengisverslun, keypt sér bjór og spjallað. Í apríl eða maí 2024 hafi hann byrjað að verða var við hóp ókunnugra manna, þar sem þeir vinirnir hafi hist, og haft á orði við einn vina sinna að honum fyndist þeir grunsamlegir. Kærandi kvað vin sinn eitt kvöldið hafa vakið athygli á þessum orðum kæranda og það hafi vakið athygli mannanna. Eftir þetta hafi verið setið um kæranda. Fólk á mismunandi bílum hafi birst fyrir framan hús hans eða nágrenni og það ástand hafi varað í langan tíma. Í tvö skipti hafi kærandi séð dróna sveima fyrir ofan heimili sitt og í eitt skipti þegar kærandi hafi verið staddur í um fimm til sex klukkustunda fjarlægð frá heimili sínu hafi aðili, sem kærandi hafi ekki kannast við, tekið myndir af honum og mótorhjólinu hans. Kærandi kvaðst hafa reynt að lifa lífi sínu áfram en ótti hans hafi aukist. Í ágúst 2024 hafi maður sem hann hafi kannast við hringt í hann og látið hann vita að tveir aðilar á mótorhjólum hafi komið að vinnustað kæranda með byssur. Maðurinn hafi heyrt samtal þeirra og varað kæranda við því að þeir væru morðingjar. Kærandi kvaðst sjálfur hafa séð umrædda aðila fyrir utan vinnustað sinn í öryggismyndavélum. Hann hafi orðið hræddur og ekki þorað að yfirgefa vinnustað sinn fyrr en morguninn eftir. Hann hafi sótt bakpoka heim til sín, skilið allar eigur sínar og hunda eftir, og flúið til Mexíkóborgar samkvæmt ráðum systur sinnar. Þar hafi hann tekið upp nýtt nafn. Andleg heilsa hans hafi verið slæm, hann hafi lést mikið og glímt við sjálfsvígshugsanir. Kærandi kvaðst hafa óttast það að glæpamennirnir myndu finna hann eða gera dætrum hans mein. Hann hafi fundið sér vinnu í Mexíkóborg en hafi óttast það að maður sem hann starfaði með, sem hafi verið fyrrverandi lögreglumaður, hafi byrjað að rannsaka hann. Kærandi kvaðst hafa einangrað sig og lagt á ráðin um að flýja til Chile og keypt sér flugmiða þangað. Eftir að hafa áttað sig á því að glæpagengið sem hann óttaðist væri einnig starfandi í Chile hafi hann leitað að öðrum öruggum stöðum og ákveðið að koma til Íslands. Kærandi greindi frá áföllum sem hann hafi upplifað fyrir þessi atvik. Kærandi kvaðst hafa verið misnotaður af föður sínum og prestum í klaustri og barnsmóðir hans hafi haldið framhjá honum. Þá kvaðst hann vera [...]. Kærandi kvaðst vera í sambandi við bróðir sinn sem væri búsettur í [...], frænku sína sem byggi í [...], og dætur sínar í Mexíkó. Kærandi kvaðst hvorki vita deili á mönnunum sem hann telji vera á eftir honum né hvers vegna þeir vilji honum illt. Hann kvaðst ekki hafa leitað til lögreglu þar sem það væri hættulegt vegna spillingar innan lögreglunnar. Kærandi hafi velt fyrir sér hvort umræddir aðilar héldu að hann tilheyrði gengi úr [...], uppeldisþorpi kæranda, sem væri í samkeppni við umrætt gengi. Kærandi hafi einnig getið sér til um að þeir væru á eftir honum því hann væri vel stæður. Kærandi kvaðst hafa flúið innan heimaríkis og að þeir aðilar sem hann hafi óttast hafi ekki fundið hann.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 17. september 2025. Greinargerð barst kærunefnd 1. október 2025. Frekari gögn bárust 19. ágúst 2026.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er greint frá því að kærandi hafi ákveðið að upplýsa um nafn þess glæpagengis sem hafi ofsótt hann. Glæpagengið heiti Cártel de Jalisco Nueva Generación (CJNG) og sé umfangsmikill glæpahópur og á lista bandaríska yfirvalda um erlend hryðjuverkasamtök.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé venjulegur maður frá Mexíkó en hann hafi fyrir tilviljun orðið fyrir ofsóknum glæpagengisins.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Mexíkó mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að hann hafi orðið fyrir ofsóknum glæpagengisins CJNG. Að mati kæranda nái þær ofsóknir því alvarleikastigi sem mælt er fyrir um í 38. gr. laga um útlendinga, sbr. a. lið 4. mgr. sama ákvæðis, þar sem ljóst sé að lögregla vilji eða geti ekki veitt vernd gegn ofsóknum þeim sem kærandi sæti.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísað er til almenns öryggisástands í heimaríki kæranda. Kærandi hafi einangrað sig mikið vegna ótta við glæpagengi sem fremji glæpi í landinu refsilaust vegna mikillar spillingar lögregluyfirvalda sem vilji lítið sem ekkert gera til að hjálpa hinum almenna borgara.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur sig hafa ríka þörf á vernd vegna persónulegra, almennra og félagslegra aðstæðna í heimaríki. Í kjölfar ofsókna glæpagengisins hafi andleg líðan hans versnað verulega. Hann hafi einangrast félagslega að verulegu leyti, þar sem hann hafi m.a. ekki viljað umgangast dætur sínar þar sem hann óttaðist að það myndi leggja líf þeirra einnig í hættu.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
ríkið,
hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað mexíkósku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé mexíkóskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Mexíkó, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Mexico (United States Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Mexico (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Mexico (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2023 Trafficking in Persons Report: Mexico (US Department of State, 15. júní 2023)2022 Country Report: Mexico (Bertelsmann Stiftung, 25. apríl 2022);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices – Mexico (US Department of State, 12. ágúst 2025);
- 2024 Country Report: Mexico (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
- 2026 Country Report: Mexico (Bertelsmann Stiftung, 2026);
- Actor Profile: The Jalisco New Generation Cartel (CJNG) (ACLED, 14. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Mexico (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Mexico (Amnesty International, 28. mars 2023);
- Código Penal Federal (Justia Méxicó, síðast uppfært 13. mars 2026;
- Conflict Index dashboard (ACLED, sótt 20. ágúst 2026);
- Criminal violence in Mexico (Global Conflict Tracker, síðast uppfært 9. ágúst 2023);
- Health systems in action (HSiA) insighs 2024: Mexico (European Observatory on Health Systems and Policies, 11. júlí 2025);
- Huejutla de Reyes: Economy, employment, equity, quality of life, education, health and public safety (vefsíða Data México, economia.gob.mx, sótt 19. september 2023);
- Education in Mexico (vefsíða World Education News+Reviews (WENR), 23. maí 2019);
- Foreign Terrorist Organizations (US Department of State, Bureau of Counterterrorism)
- Foreign travel advice: Mexico (gov.uk, síðast uppfært 16. júlí 2026);
- Freedom in the World 2023 - Mexico (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2023 - Mexico (Freedom House, 2025);
- Government at a Glance 2023: Country Notes: Mexico (OECD, 30. júní 2023);
- Indigenous Women: The Invisible Victims of Femicide in Mexico (Harvard International Review, 30. nóvember 2020);
- The Indigenous World 2022: Mexico (International Work Group for Indigenous Affairs, 1. apríl 2022);
- Jalisco Cartel New Generation (CJNG) (InSight Crime, 6. ágúst 2026, síðast uppfært 18. ágúst 2026);
- Mental Health Atlas 2020 Country Profile: Mexico (World Health Organization, 15. apríl 2022);
- Mexico: Annual report on religious freedom (covering 2022) (US Department of State, 15. maí 2023);
- Mexico: Background and U.S. Relations (Congressional Research Service, uppfært 12. maí 2020);
- Mexico Country Security Report (US Department of State, OSAC Bureau of Diplomatic Security, 15. apríl 2025);
- Mexico´s Forgotten Mayors: The Role of Local Government in Fighting Crime (International Crisis Group, 23. júní 2023);
- Mexico: health system review 2020 (North American Observatory on Health Systems and Policies, 18. september 2020);
- Mexico Peace Index 2022: Identifying and measuring the factors that drive peace (Institute for Economics and Peace, 17. maí 2022);
- Mexico Profile (InSight Crime, 19. janúar 2024, síðast uppfært 15. júlí 2026);
- Mexico: Report on crime and violence (Institute for Economics and Peace, 24. maí 2023);
- Mexico: Report on the human rights situation covering 2022 (Amnesty International, 28. mars 2023);
- Mexico (ACLED, sótt 20. ágúst 2026);
- Mexico Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 29. maí 2026);
- Perfil de país – Mexico (Organizacion Panamericana de la Salud, 24. september 2024);
- Report on violence exerted by elements of organized crime in Mexico and Central America (state measures against organized crime; migrant flows; humanitarian response and access) (IDMC, 22. október 2015);
- Schools in Mexico (vefsíða Allianz care, https://www.allianzcare.com/en/support/health-and-wellness/my-expat-life/school-guides/schools-in-mexico.html, sótt 19. september 2023);
- Situation Stabilizes in Mexico Following Retaliatory Cartel Violence (Global Guardian, 26. febrúar 2026);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Mexico (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The State of the World´s Human Rights; Mexico 2023(Amnesty International, 24. apríl 2024);
- The State of the World’s Human Rights; Mexico 2024(Amnesty International, 29. apríl 2025);
- The World Factbook: Mexico (CIA, síðast uppfært 29. ágúst 2023);
- World Report 2023 – Mexico Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Mexico Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- World Report 2025 – Mexico Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
- World Report 2026 – Mexico Events of 2025 (Human Rights Watch, 4. febrúar 2026).
Mexíkó er fjölflokka sambandslýðveldi með tæplega 130 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast yfir 90% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn kaþólska trú. Árið 1945 gerðist Mexíkó aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi árið 1981. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1981 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1986. Mexíkó fullgilti mannréttindasáttmála Ameríku 2. mars 1981.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að árið 2018 hafi Andrés Manuel López Obrador verið kjörinn forseti Mexíkó. Forsetakosningarnar hafi verið taldar frjálsar samkvæmt alþjóðlegum eftirlitsaðilum. Forseti Mexíkó er kosinn til sex ára í senn og hefur aðeins heimild til að sitja eitt kjörtímabil. Samkvæmt heimildum, m.a. á vef Freedom House kemur fram að hinn 2. júní 2024 hafi Claudia Sheinbaum verið kjörin forseti landsins með tæplega 60% atkvæða, hafi hún þar með verið fyrsta konan í sögu landsins til að gegna embætti forseta. Kosningaferlið hafi almennt verið talið sanngjarnt þrátt fyrir að skráð hafi verið hundruð tilvika um pólitískt ofbeldi. Samkvæmt skýrslu ACLED hafi verið skráð yfir 330 ofbeldisatvik sem hafi beinst að stjórnmálamönnum í kosningabaráttunni, frá upphafi kosningabaráttu á landsvísu þann 1. mars til kjördags þann 2. júní 2024.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, þvinguð mannshvörf, ómannúðleg meðferð og refsing af hálfu lögreglu, hers og öryggissveita, lífshættulegur aðbúnaður í fangelsum, víðtæk spilling, takmarkanir á tjáningar- og fjölmiðlafrelsi, ofbeldi gegn fjölmiðlafólki, skortur á rannsóknum og réttlátri málsmeðferð vegna kynbundins ofbeldis, refsileysi fyrir ofbeldi og hótanir gegn fötluðum og gegn meðlimum LGBTI+ samfélagsins. Spilling og refsileysi sé umtalsvert í stjórnsýslunni. Glæpahópar, þ.m.t. staðbundin og fjölþjóðleg glæpagengi og eiturlyfjasalar fremji morð, stundi fjárkúganir, mannrán, mansal, hótanir og aðrar ógnir og ofbeldi. Yfirvöld rannsaki og ákæri í sumum málum en refsileysi sé vandamál.
Í framangreindri skýrslu kemur fram að þjóðvarðliðið og lögregla ríkis og sveitarfélaga beri ábyrgð á að framfylgja lögum og viðhalda reglu. Þjóðvarðliðið, sem hafi hafið starfsemi árið 2019, sé að mestu hernaðarstofnun sem heyri undir skrifstofu varnarmála. Árið 2019 hafi ríkisstjórnin leyst upp alríkislögregluna og árið 2020 hafi allar eignir og starfsfólk verið fært til þjóðvarðliðsins. Með stjórnarskrárbreytingum árið 2022 hafi forsetanum verið veitt heimild til að halda áfram að nota herafla til að efla innra öryggi ríkisins til ársins 2028. Í Mexíkó séu um 370 þúsund lögreglumenn sem starfi í alríkis-, landamæra-, ríkis- og bæjarlögreglu. Heimildir hermi að spilling sé mikil innan lögreglunnar og að glæpir sem séu ekki tilkynntir sé verulegt vandamál. Þá taki um 80 þúsund hermenn þátt í öryggisaðgerðum innan landsins. Samkvæmt heimildum hafi aukin þátttaka hersins ekki leitt til lækkunar á glæpastarfsemi eða ofbeldis til langtíma. Samkvæmt heimildum hafi yfirvöld í Mexíkó almennt haldið virku eftirliti yfir öryggissveitum landsins, þó upp komi tilfelli þar sem öryggissveitir starfi óháð borgaralegu eftirliti. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þó svo að ekki sé starfandi sjálfstæð eftirlitsstofnun vegna aðgerða lögreglunnar, séu alríkis- og ríkisstofnanir á sviði dóms- og öryggismála með deildir sem sinni innra eftirliti og stuðli að góðum starfsvenjum, gagnsæi og ábyrgð. Þessar deildir séu ekki nægilega fjármagnaðar og séu undirmannaðar. Þá kemur fram að herinn starfræki herréttarkerfi til að draga aðila til ábyrgðar sem gerist sekir um mannréttindabrot. Lög kveði á um refsiviðurlög við spillingu embættismanna og ríkisstjórnin geri ráðstafanir til að auka lagaheimildir sína til að sækja aðila til saka.
Í skýrslu Freedom House frá 2025 kemur fram að spilling sé enn alvarlegt vandamál í Mexíkó. Þrátt fyrir yfirgripsmikinn lagaramma gegn spillingu í landinu skorti á framkvæmdina og enn sé mikið um refsileysi. Ágóði frá fíkniefnaviðskiptum sem flæði inn í landið á hverju ári frá Bandaríkjunum hafi mikil áhrif á stjórnmál. Þá sé mikið um stórfelld svik í opinberum samningum og annars konar fjárdrátt úr ríkissjóðum sem móti landslag stjórnmála í landinu. Veik staða lögreglu og dómskerfis takmarki tilraunir til að sækja brotlega embættismenn til ábyrgðar. Í nóvember 2024 hafi verið samþykkt stjórnarskrárbreyting þar sem lagðar hafi verið niður nokkrar sjálfstæðar stofnanir sem hafi verið ætlað að tryggja gagnsæi stjórnvalda, þar á meðal Gagnsæis-, upplýsinga- og persónuverndarstofnun (INAI). Þá hafi ábyrgð á aðgangi að upplýsingum frá stjórnvöldum verið færð yfir til nýs ráðuneytis. Núverandi ríkisstjórn hafi lagt mikla áherslu á baráttu gegn spillingu og hafi sótt nafntogaða einstaklinga úr fyrri ríkisstjórn til ábyrgðar en gangrýnendur segi aðgerðirnar pólitískar og ófullnægjandi.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að í Mexíkó sé starfandi mannréttindastofnun, CNDH, sem fylgist með og bregðist við mannréttindabrotum. Stofnunin hafi ekki heimild til að beita viðurlögum en geti hvatt stjórnvöld til að beita stjórnsýsluviðurlögum og fylgja eftir kvörtunum.
Í ferðaleiðbeiningum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 29. maí 2026 er ferðamönnum ráðlagt að forðast ferðalög til ýmissa svæða innan Mexíkó. Í mörgum fylkjum séu ofbeldisfullir glæpir vandamál svo sem morð, mannrán og bílaþjófnaður. Meðal annars sé varað við ferðalögum til Purísima del Rincón í Guanajuato fylki. Fram kemur að hætta sé á ofbeldi í fylkinu frá hryðjuverka- og glæpasamtökum. Ofbeldi gengja í Guanajuato eigi sér aðallega stað í suður- og miðhéruðum. Það tengist oft þjófnaði á olíu og jarðgasi frá ríkisolíufélögum og öðrum birgjum. Fjöldi morða sé mikill í suðurhlutanum vegna ofbeldis sem tengist glæpasamtökum.
Á vefsíðunni InSight Crime kemur fram að í Mexíkó séu nokkrir af stærstu og ofbeldisfyllstu glæpahópum jarðar. Umfangsmikil glæpastarfsemi og smygl hafi náð fótfestu í Mexíkó meðal annars vegna nálægðar við Bandaríkin. Margir hinna stóru og valdamiklu eiturlyfjahópa sem hafi ráðið ríkjum í undirheimum Mexíkó hafi á síðustu árum misst ítök sín þar sem æðstu leiðtogar þeirra hafi á undanförnum árum verið drepnir eða handteknir og það hafi veikt samtökin. Undantekningin sé Sinaloa glæpasamtökin sem séu enn umsvifamestu eiturlyfjasamtök á vesturhveli jarðar. Heimildir herma að smærri glæpahópar, sem margir hverjir hafi orðið til út frá glæpagenginu the Zetas, hafi virka starfsemi í Mexíkó en þeir séu þó að mestu staðbundnir við ákveðin svæði. Samkvæmt heimildum stundi þessir glæpahópar fjárkúganir, mannrán og smygl á ýmis konar smyglvarningi, til að mynda á vopnum, mönnum og öðrum ólöglegum hlutum um og yfir landamæri landsins. Heimildir bera með sér að tíðni morða í Mexíkó hafi lækkað um 19,8% árið 2025 frá árinu áður, og hafi lækkunin aldrei verið meiri á ársgrundvelli í landinu.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2024 kemur fram að mannshvörf og mannrán hafi verið alvarlegustu mannréttindamál í Mexíkó á síðustu tveimur áratugum. Yfir hundrað þúsund manns séu opinberlega skráðir týndir í landinu en tilvikin hafi flest átt sér stað eftir að ofbeldi tengt eiturlyfjasamtökum hafi aukist eftir 2006. Þolendur séu oftast ungir karlmenn, en einnig hafi spjótum verið beint að konum, farandfólki, aðgerðarsinnum og blaðamönnum. Mannshvörf í Mexíkó tengist oft skipulögðu glæpahópunum Sinaloa og Jalisco New Generation sem ræni fólki til að neyða til liðs við sig, í hefndarskyni eða til að útrýma þeim sem taldir séu óvinir. Þá hafi stjórnvöld og lögreglan í sumum tilfellum verið bendluð við mannshvörf í landinu, annaðhvort með beinni þátttöku eða í samvinnu við glæpahópa. Til að bregðast við þessum vanda hafi mexíkósk stjórnvöld gripið til ýmissa aðgerða. Árið 2018 hafi verið stofnuð Landsleitarnefnd, CNB (e. The National Search Commission) sem fari með samhæfingu aðgerða til að finna horfna einstaklinga og bera kennsl á líkamsleifar sem finnist í leynilegum gröfum. Nefndin hafi það hlutverk að halda skrá yfir þá sem sé saknað og vinna með teymum til að finna þá. Stjórnvöld hafi einnig sett lög sem geri mannrán refsiverð og hafi aukið réttarrannsóknir og leitarstarf um allt land. Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir stjórnvalda séu mannshvörf enn útbreitt vandamál í Mexíkó og ábyrgð takmörkuð. Rannsóknir séu oft á tíðum hægar eða ófullnægjandi og fá mál leiði til sakfellingar.
Á vef ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project) kemur fram að Cártel de Jalisco Nueva Generación (CJNG) og Sinaloa Cartel séu tvö öflugustu glæpasamtök Mexíkó og bæði samtök hafi starfsemi og tengsl í mörgum löndum í mörgum heimsálfum. CJNG hafi frá stofnun haft fótfestu í miðvesturfylkjunum Colima, Jalisco og Nayarit, og í Veracruz fylki frá árinu 2011. Samtökin leitist við að auka starfsemi sína um allt land til að stjórna fíkniefnasmyglsleiðum, svo sem leiðum sem tengja Kyrrahafið og Atlantshafið og landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna. Þetta hafi leitt til mikillar virkni og ofbeldis samtakanna og tengdra aðila í öðrum miðvesturfylkjum landsins, svo sem Guanajuato, Michoacán og Zacatecas, en samtökin hafi starfað á þeim svæðum frá árinu 2012. Á vef bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að samtökin hafi verið sett á lista bandaríska yfirvalda yfir erlend hryðjuverkasamtök 20. febrúar 2025.
Á vef Insight Crime kemur fram að CJNG hafi orðið til árið 2010 úr leifum Milenio-samtakanna eftir innri átök og valdabaráttu. Undir stjórn Nemesio Oseguera Ramos, betur þekkts sem „El Mencho“, hafi samtökin stækkað hratt og náð fótfestu víða um Mexíkó sem og erlendis. Samtökin séu þekkt fyrir gróft ofbeldi, árásir á lögreglu og embættismenn, mannrán og morð, en þau hafi jafnframt reynt að bæta ímynd sína með áróðri og dreifingu hjálpargagna til íbúa á áhrifasvæðum sínum. Fram kemur að „El Mencho“ hafi verið felldur af mexíkóskum öryggissveitum í febrúar 2026 og síðan þá hafi óvissa ríkt um hver taki við forystunni. Fram kemur að dauði hans hafi leitt til óeirða í meira en 20 mexíkóskum fylkjum. Á vef Global Guardian kemur fram að mexíkósk stjórnvöld hafi í kjölfarið sent þúsundir hermanna og alríkislögreglumanna til að efla öryggi og draga úr ofbeldi. Hinn 26. febrúar 2026 hafi ástandið í Mexíkó náð stöðugleika. Seint 24. febrúar 2026 hafi stjórnvöld í Jalisco aflétt „rauðum kóða“ og opnað almenningssamgöngur og skóla um allt fylkið á ný. Á vef Insight Crime kemur fram að þrátt fyrir handtökur margra lykilmanna og aðgerðir gegn fjárhagslegri starfsemi samtakanna virðist CJNG enn halda sterkri stöðu og halda áfram útþenslu sinni. Í ágúst 2026 hafi bandaríska dómsmálaráðuneytið tilkynnt um ákærur á hendur fjórum meintum meðlimum samtakanna sem hafi verið handteknir í Tékklandi. Þeir hafi verið sakaðir um hryðjuverkatengd afbrot, fíkniefnasmygl og vopnasmygl eftir að hafa reynt að kaupa evrópsk hergögn, meðal annars vélbyssur, sprengjuvörpur og skotfæri, til sendingar til Mexíkó. Að sögn saksóknara hafi þeir boðið fentanyl og metamfetamín sem greiðslu fyrir vopnin og hafi tveir þeirra þegar verið framseldir til Bandaríkjanna.
Samkvæmt skýrslu European Observatory on Health Systems and Policies frá 2025 veiti ríkisstjórn Mexíkó heilbrigðisþjónustu í gegnum þrjár meginstofnanir. Heilbrigðisráðuneytið (MoH), mexíkósku almannatryggingastofnunin (IMSS) og almannatrygginga- og þjónustustofnun ríkisstarfsmanna (ISSSTE). IMSS og ISSSTE séu almannatryggingastofnanir sem beri ábyrgð á að veita heilbrigðisþjónustu til starfsmanna í einkageiranum og starfsmanna alríkis- og ríkisstofnana og fjölskyldna þeirra. Heilbrigðisráðuneytið (MoH) veiti heilbrigðisþjónustu til lágtekjufólks og til þeirra sem falli undir almannatryggingakerfið. Ráðuneytið sjái einnig um lýðheilsuþjónustu og samhæfingu heilbrigðiskerfis landsins. Þá sé IMSS-Bienestar, áætlun sem IMSS reki samkvæmt samningi við alríkisstjórnina, sem sé viðbót við heilbrigðisráðuneytið sem beini sjónum að íbúum í dreifbýli og þéttbýli sem búi við sára fátækt með takmörkuðum þjónustupakka. Þá veiti einkageirinn í Mexíkó einkaheilbrigðisþjónustu til þeirra sem hafa greiðslugetu til þess að sækja hana. Vegna hás kostnaðar hafi ótryggðir íbúar landsins ekki efni á að sækja sér einkaheilbrigðisþjónustu sem sé oft á tíðum með styttri biðlista og betri þjónustu. Hafi þetta ýtt undir félagslegan og efnahagslegan ójöfnuð í heilbrigðiskerfi landsins.
Samkvæmt framangreindum heimildum sé í Mexíkó almennt litið á geðheilbrigði sem einkamál en ekki opinbert áhyggjuefni. Fordómar gagnvart geðsjúkdómum séu útbreiddir og fólk með geðraskanir geti orðið fyrir fordómum eða mismunun, sem leiðir til þess að það hiki við að leita sér faglegrar aðstoðar. Mexíkósk stjórnvöld hafi þó innleitt stefnu sem hafi miðað að því að taka á geðheilbrigðismálum. Heilbrigðisráðuneytið hafi árið 2013 stofnað landsáætlun um geðheilbrigðismál, sem hafi miðað að því að veita fólki með geðraskanir alhliða þjónustu, þar á meðal greiningu, meðferð og endurhæfingu. Opinber heilbrigðiskerfi Mexíkó veiti íbúum landsins ókeypis og ódýra geðheilbrigðisþjónustu á opinberum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Samkvæmt heimasíðu heilbrigðisráðuneytis Mexíkó hafi eitt af markmiðum áætlana í geðheilbrigðismálum verið að auka aðgengi að þjónustu og hafi m.a. verið komið á fót neyðarsímum og geðheilbrigðisþjónustu úrræðum í nærsamfélaginu. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar í landinu bjóði einnig upp á þjónustu í borgum og stærri bæjum. Þá séu stofur og samtök sem bjóði upp á ýmis konar meðferðarúrræði við geðrænum vanda, m.a. sálfræðimeðferð, ráðgjöf og markþjálfun. Einnig leggi frjálsu félagasamtökin SAPTEL og Red Voz Pro áherslu á vitundarvakningu um geðheilbrigði og stuðningsþjónustu fyrir þá sem glími við geðrænan vanda.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi hefur borið fyrir sig að óttast glæpasamtökin Cártel de Jalisco Nueva Generación (CJNG) í heimalandi sínu, Mexíkó.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Kærandi greindi frá því að hafa unnið á næturvöktum í verksmiðju í heimaríki. Á leið sinni til vinnu hafi hann af og til komið við á fótboltavelli þar sem vinir hans hafi hist og spilað saman fótbolta. Eftir fótboltann hafi vinirnir stundum farið í áfengisverslun, keypt bjór og spjallað. Í apríl eða maí 2024 hafi kærandi orðið var við hóp ókunnugra manna, þar sem þeir vinirnir hafi hist, og haft á orði við félaga sinn að honum þætti þeir grunsamlegir. Umræddur vinur hafi vakið athygli á þessum orðum kæranda og það hafi vakið athygli mannanna. Í kjölfarið kvaðst kærandi hafa tekið eftir því að setið væri um hús hans og fólk á mismunandi bílum hafi birst fyrir framan hús hans eða nágrenni. Það ástand hafi varað í langan tíma. Í tvö skipti hafi kærandi séð dróna sveima fyrir ofan heimili sitt og í eitt skipti þegar kærandi hafi verið staddur í um fimm til sex klukkustunda fjarlægð frá heimili sínu hafi aðili, sem kærandi hafi ekki kannast við, tekið myndir af honum og mótorhjólinu hans. Kæranda hafi grunað að þetta hefði eitthvað að gera með átök milli glæpahópa og meðlimir annars glæpahópsins hafi hugsanlega talið kæranda í samstarfi með hinum hópnum. Í ágúst 2024 hafi maður sem kærandi kannaðist við hringt í hann og látið hann vita að tveir aðilar á mótorhjólum hafi komið að vinnustað kæranda með byssur. Maðurinn hafi heyrt samtal þessara aðila og varað kæranda við því að þeir væru morðingjar. Kærandi kvaðst sjálfur hafa séð umrædda aðila fyrir utan vinnustað sinn í öryggismyndavélum. Eftir það hafi kærandi flúið til Mexíkóborgar og tekið upp nýtt nafn. Hann hafi óttast að glæpamennirnir myndu finna hann eða gera dætrum hans mein. Kærandi kvaðst hafa fundið sér vinnu í Mexíkóborg en kvaðst hafa óttast að fyrrverandi lögreglumaður sem hann hafi starfað með hafi verið að rannsaka hann.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ljósmyndir sem hann kveður vera af fjölskyldu sinni, mynd af því sem virðist vera öryggismyndavélakerfi og myndir sem kærandi kveður sýna fram á útlitsbreytingu hans vegna andlegrar vanlíðan í kjölfar framangreindra atburða. Kærandi lagði einnig fram tvö myndbönd sem virðast vera tekin á síma eða myndavél af upptöku úr öryggismyndavélakerfi. Myndböndin sýna tvo hettuklædda menn á bifhjóli nema staðar við gangstétt í stutta stund og taka af stað aftur. Ekki liggur fyrir hver tók upp myndböndin, við hvaða tilefni eða hvar þau eru tekin upp. Þá lagði kærandi fram skjáskot af Whatsapp skilaboðum sem virðast sýna samtöl kæranda og vina hans. Á kærustigi hefur kærandi meðal annars lagt fram mynd af herbergi sem hann kvaðst hafa dvalið í í Mexíkóborg á flótta sínum og mynd af bifhjóli sínu. Framangreind gögn eiga það sammerkt að ekki er hægt að staðreyna uppruna þeirra. Þá er efni þeirra ekki til þess fallið að renna stoðum undir frásögn kæranda þess efnis að hann hafi upplifað ágang glæpahóps eða að meðlimir glæpahóps vilji honum illt. Verða þau því ekki talin hafa sönnunargildi fyrir frásögn kæranda um ástæður flótta hans. Á kærustigi lagði kærandi einnig fram skjáskot af fréttum um glæpi í heimabæ kæranda. Eru fréttirnar ekki sérstaklega taldar renna stoðum undir frásögn kæranda varðandi þá málsástæðu hans að hann hafi verið undir sérstöku eftirliti glæpahóps og eigi á hættu ofsóknir af hans hálfu í heimaríki.
Af fyrirliggjandi heimildum verður ráðið að glæpahópurinn CJNG sé með starfsemi og ítök í stórum hluta Mexíkó, þar á meðal í heimafylki kæranda. Samtökin hafa verið tengd við margs konar ofbeldi, mannrán, fjárkúgun og annars konar áreiti gagnvart almennum borgurum. Ekki verður því útilokað að kærandi hafi í daglegu lífi sínu orðið var við meðlimi glæpasamtakanna í nærumhverfi sínu. Kærandi hefur þó ekki greint frá neinum samskiptum við meðlimi umræddra glæpasamtaka eða lagt fram gögn sem benda til þess að hann sé sérstakt skotmark þeirra. Ekkert í frásögn kæranda eða gögnum málsins sem bendir til þess að hann eigi á hættu eða hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá benda framangreindar heimildir um heimaríki kæranda til þess að yfirvöld í landinu hafi staðið í aðgerðum gegn glæpahópnum og að lögreglan geti almennt veitt borgurum landsins vernd s.s. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærandi geti leitað til yfirvalda í Mexíkó eftir aðstoð og vernd telji hann þörf á því.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann eigi rétt á vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kröfu sinni til stuðnings vísar kærandi til alvarlegs almenns ástands í Mexíkó og ítaka glæpahópa þar í landi. Kærandi hafi einangrað sig mikið vegna ótta við glæpagengi sem fremji glæpi í landinu refsilaust vegna mikillar spillingar lögregluyfirvalda.
Samkvæmt vef ACLED er Mexíkó í 2. sæti á lista yfir ríki heims sem eru hættulegust fyrir almenna borgara. Á tímabilinu 14. ágúst 2025 til 20. ágúst 2026, áttu 15.693 öryggisatvik sér stað á tímabilinu og dauðsföll í slíkum atvikum voru 6.941. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Mexíkó sé víða ótryggt og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu glæpa- og skæruliðahópa. Að jafnaði hafi mexíkósk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra þó góða stjórn á flestum svæðum í Mexíkó. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Almennar heimildir benda ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Þá hafa ekki komið upp atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Mexíkó teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í borginni [...] í Guanajuato fylki auk þess að hafa dvalist um nokkurra mánaða skeið í Mexíkóborg fram að flótta frá heimaríki. Samkvæmt vef ACLED áttu 1.057 öryggisatvik sér stað í Guanajuato fylki á tímabilinu 20. ágúst 2025 til 20. ágúst 2026, og dauðsföll í slíkum atvikum voru 754. Í Mexíkóborg áttu sér stað 987 öryggisatvik á tímabilinu 24. ágúst 2025 til 24. ágúst 2026 og dauðsföll í slíkum atvikum voru 285. Í Guanajuato fylki eru lögregluyfirvöld undir miklum þrýstingi og þurfa reglulega á aukinni aðstoð að halda í löggæslumálum. Hins vegar hafa yfirvöld staðið fyrir aðgerðum gegn glæpahópum í fylkinu og benda landaheimildir til þess að manndrápum í fylkinu hafi fækkað umtalsvert síðasta árið. Eins og að framan er rakið hafa mexíkósk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra þó jafnan góða stjórn á flestum svæðum í Mexíkó, þ. á m. í Mexíkóborg, og eru lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu.
Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Mexíkó síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Kærandi kvaðst vera heilsuhraustur en hafa glímt við slæma andlega heilsu í heimaríki. Hann hafi fundið fyrir [...] og hafi haft sjálfsvígshugsanir. Þá kvaðst hann hafa sögu um áföll. Kærandi kvaðst hafa átt tíma hjá sálfræðingi í heimaríki en flúið heimaríki áður en að tímanum kom. Kærandi greindi jafnframt frá því að hafa sætt kynferðislegu ofbeldi af hálfu nákominna sem barn. Kynferðisofbeldi er refsivert samkvæmt 15. kafla almennra hegningarlaga í Mexíkó. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2025 sé réttarkerfið þó óskilvirkt og brestir séu á því að saksótt sé fyrir refsiverð brot. Líkt og fram hefur komið stendur íbúum Mexíkó til boða geðheilbrigðisþjónusta á opinberum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Heimildir herma að starfandi sérfræðingar í landinu bjóði einnig upp á þjónustu í borgum og stærri bæjum. Þá bjóði stofur og samtök upp á ýmis konar meðferðarúrræði, m.a. sálfræðimeðferð, ráðgjöf og markþjálfun. Frjáls félagasamtök á borð við Consejo Ciudadano para la Seguridad y Justicia de la Ciudad de México veita sólarhringsaðgengi að sálfræðilegri og lögfræðilegri aðstoð fyrir þolendur ofbeldis og annarra afbrota.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð, m.a. geðheilbrigðisaðstoð, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki, hafa átt húsnæði og haft atvinnu. Verður því ráðið að hann hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 3. apríl 2025 og hafði málsmeðferð í máli hans ekki náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku breytingalaganna og á ákvæðið því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við Schengen-svæðið og kvað brottvísun og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir