23. september 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Heilbrigðisþjónusta skýrir stærstan hluta fjölgunar ríkisstarfa

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari
Stöðugildum hjá ríkinu hefur fjölgað um 16% á tímabilinu 2019-2025. Fjölgunin skýrist að langmestu leyti af fjölgun í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og kennslutengdum störfum.  Fjölgun í öðrum störfum ríkisins á sama tímabili er 2% en það eru um helmingur allra ríkisstarfa.

Öldrun þjóðar kallar á aukna heilbrigðisþjónustu

93% af fjölgun stöðugilda frá árinu 2019-2025 má rekja til starfa í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og kennslu. Heilbrigðisþjónustan vegur langþyngst og skýrir ein og sér um 72% af heildaraukningunni.

Fjölgun starfa í heilbrigðisþjónustu á sér lýðfræðilegar skýringar. Mannfjöldi á Íslandi jókst um 12,8% frá 1. janúar 2019 til 1. janúar 2026. Fjölgun í aldurshópnum 60 ára og eldri er um 22% á tímabilinu . Innan þess hóps sker aldursbilið 70 til 79 ára sig sérstaklega úr, en í þeim aldurshópi nemur fjölgunin um 35%, sem er hæsta hlutfallslega aukning allra aldurshópa. Til samanburðar hefur fólki undir 30 ára aldri fjölgað um 16% á sama tímabili.

Fjölgun starfa í heilbrigðisþjónustu má að hluta rekja til þess að verkefni tengd öldrunarþjónustu hafa á undanförnum árum færst frá sveitarfélögum til ríkisins. Þá hefur framboð á launuðum námsstöðum í heilbrigðisþjónustu aukist t.d. vegna sérnáms í heimilislækningum.

Öðrum störfum fjölgað um 2%

Að meðaltali hefur störfum hjá ríkinu fjölgað um 16% milli áranna 2019-2025. Eins og sjá má á mynd 2 er fjölgunin mest þegar kemur að grunnþjónustu. Öll önnur störf ná yfir um helming starfa ríkisins en fjölgun í þeim hefur verið 2% á tímabilinu sem um ræðir.

Fjölgun stöðugilda mest á tímum heimsfaraldurs

Fjölgun stöðugilda var mest á árunum 2021 og 2022, á tímum heimsfaraldurs, eins og sjá má á mynd 3. Þar er tímabilið jan-júlí borið saman frá 2019-2026.

Á sama tímabili stóð yfir innleiðing á styttingu vinnuvikunnar þar sem vikulegur vinnutími var færður úr 40 stundum í 36 stundir. Þessi breyting kallaði á aukna mönnun í vaktavinnu og starfsfólk var jafnframt hvatt til að hækka starfshlutfall sitt þar sem það átti við. Þannig hefur stöðugildum í vaktavinnu fjölgað um 28% á móti 13% í dagvinnu. Ef tekið er tillit til þess hvað klukkustundum hefur fækkað á bak við hvert ársverk (stöðugildi) vegna styttingarinnar er aukningin umtalsvert minni.

Hagstofan hefur leiðrétt tölur um fjölgun ríkisstarfsmanna

Hagstofan áætlaði að ríkisstarfsmönnum hefði fjölgað um 4,7% milli maí 2025 og maí 2026. Hagstofan hefur uppfært gögnin og nemur fjölgunin eftir breytingu 2,6%. Tölur úr launakerfi ríkisins sýna um 2,1% breytingu þegar fjöldi stöðugilda eru borin saman fyrir sama tímabil. Mismunurinn á sér eðlilegar skýringar þar sem forsendur Hagstofunnar eru aðrar en í launakerfi ríkisins.

Þá hafa tölur Hagstofunnar um störf í opinberri þjónustu sem mynd 15 í Peningamálum í mars sl. byggir á verið leiðréttar.