Verkfærakista fyrir fyrirtæki
Í framhaldi af útgáfunni á verkfærakistu fyrir sveitarfélög var gefin út verkfærakista um innleiðingu fyrirtækja á heimsmarkmiðunum. Verkfærakistan kom út í október 2021 og veitir fyrirtækjum leiðbeiningar um hvernig þau geta lagt sitt af mörkum til heimsmarkmiðanna með því að aðlaga starfsemi sína, áætlanir sem og árangursmælingar að markmiðunum.
Hún byggir á erlendum fyrirmyndum auk dæma frá Íslandi og þá var Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, ráðgjafa einnig innan handar um efnistök og innihald.
Verkfærakista fyrir sveitarfélög
Verkfærakista um innleiðingu sveitarfélaga á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna var gefin út í maí 2021, en henni er ætlað að vera þeim til leiðbeiningar um hvernig þau geta lagt sitt af mörkum til að vinna að heimsmarkmiðunum. Verkfærakistan var unnin fyrir hönd verkefnastjórnar stjórnvalda um heimsmarkmiðin í nánu samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og samstarfssvettvang ríkis og sveitarfélaga um heimsmarkmiðin.
Verkfærakistan setur fram fimm skref sem er ætlað að leiðbeina sveitarfélögum við að vinna markvisst að innleiðingu heimsmarkmiðanna. Kistan byggist á erlendum fyrirmyndum auk dæma frá Íslandi. Listinn yfir aðgerðir við innleiðingu heimsmarkmiðanna í sveitarfélögum er ekki tæmandi, heldur er tilgangurinn að leggja til leiðir og gefa hugmyndir að hagnýtum aðferðum við að nálgast markmiðin, tengja við markmiðsetningu sveitarfélaga og efla um leið sjálfbæra þróun í daglegri starfsemi.
Verkfærakista fyrir sveitarfélög