Einn mælikvarði er án skilgreindar aðferðafræði:
9.1.1 Hlutfall íbúa í dreifbýli sem býr í innan við 2 km fjarlægð frá heilsársvegi.
Af þeim mælikvörðum sem hvíla á skilgreindri aðferðafræði eru tveir sem gögnum er ekki safnað um á reglubundinn hátt að svo stöddu:
9.3.1 Hlutfall lítilla og meðalstórra fyrirtækja í heildarvirðisauka.
9.3.2 Hlutfall lítilla og meðalstórra fyrirtækja með lán eða lánalínu.
Verið er að kanna fýsileika þess að greina fimm mælikvarða á grundvelli fyrirliggjandi gagna:
9.1.2 Farþega- og vöruflutningageta, eftir flutningsmáta.
9.2.1 Framleiðsluvirðisauki sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og á mann.
9.4.1 Koltvísýringslosun á virðisaukaeiningu.
9.b.1 Hlutfall virðisauka meðal- og hátæknifyrirtækja af heildarvirðisauka.
9.c.1 Hlutfall íbúa með aðgang að farsímaneti, eftir tækni.